
Fótbolti

Fékk gult spjald fyrir að gefa eiginhandaráritanir
Markahrókurinn Chris Wood fékk gult spjald fyrir nokkuð sérstakar sakir í leik Nýja-Sjálands og Fídjí í undankeppni HM 2026.

Taldar mun meiri líkur á að Ísland falli niður í C-deild
Eftir 2-1 tapið gegn Kósovó í Pristina í gærkvöld er ljóst að Ísland verður að vinna sigur þegar liðin mætast aftur í heimaleik Íslands á sunnudag klukkan 17, í Murcia á Spáni, til að forðast fall í C-deild Þjóðadeildar karla í fótbolta.

Jóhann Berg kallaður inn í landsliðið
Arnar Gunnlaugsson hefur kallað Jóhann Berg Guðmundsson inn í íslenska landsliðið fyrir seinni leikinn gegn Kósovó í umspili um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar.

Hjartaáfallið stöðvar ekki Grétar Guðjohnsen
Besta deildin hefur upphitun sína fyrir fótboltasumarið formlega í dag þegar fyrsta auglýsing deildarinnar fer í loftið.

LUÍH: Kom aldrei til greina að fórna „Maggiball“
Magnús Már Einarsson tók við þjálfun Aftureldingar í nóvember 2019, þá þrítugur að aldri. Hann er nú mættur með liðið í efstu deild karla í fótbolta. Leikstíllinn hefur vakið athygli og Magnús fór yfir það í nýjasta þætti Lengsta undirbúningstímabils í heimi.

Andi á Hlíðarenda: „Viljum allir vera á stóra sviðinu“
Valsmenn hafa keypt varnarmanninn öfluga Andi Hoti frá Leikni og gert við hann samning til fimm ára. Andi, sem leikið hefur fyrir U19- og U21-landslið Íslands, segir erfitt að yfirgefa Breiðholtið en er spenntur fyrir að stíga inn á stóra sviðið.

Ærðust og fögnuðu með steinhissa Henry
Panama-menn gjörsamlega ærðust af fögnuði og hópuðust einhverra hluta vegna að frönsku goðsögninni Thierry Henry þegar þeir unnu hádramatískan sigur gegn Bandaríkjunum í gærkvöld.

Vill menntun fremur en refsingar: „Ótrúlega skakkt“
Davíð Smári Lamude, þjálfari karlaliðs Vestra í fótbolta, gagnrýnir þá leið íþróttayfirvalda að dæma leikmenn í leikbann vegna veðmálabrota og kallar eftir því að þeir fái aðstoð og menntun í staðinn. Gagnrýnin kemur fram í ljósi banns fyrirliða Vestra.

Alveg hættur í fýlu við Heimi
Matt Doherty, leikmaður Wolves, kveðst búinn að ná sáttum við Heimi Hallgrímsson eftir að hafa fundist Eyjamaðurinn sýna sér vanvirðingu í haust.

„Eigum við ekki að fara inn á EM og virkilega verðskulda það?“
Kári Árnason og Lárus Orri Sigurðsson voru afdráttarlausir á Stöð 2 Sport í gærkvöld varðandi það að Ísland þyrfti svo sannarlega að vinna Kósovó á sunnudaginn og halda sér í B-deild Þjóðadeildar UEFA. „Höfum smá stolt. Ekki neðar en B,“ sagði Lárus.

Sá Ronaldo í nærbuxum og vildi verða eins
Rasmus Höjlund, framherji Manchester United, segir að Cristiano Ronaldo hafi lengi verið sitt átrúnaðargoð. Þess vegna nýtti hann tækifærið í gærkvöld til að fagna eins og Ronaldo, beint fyrir framan goðið sitt, í 1-0 sigri Danmerkur gegn Portúgal í Þjóðadeildinni.

Reynslumikill Svíi skrifar undir í Úlfarsárdalnum
Þrítugi miðjumaðurinn Simon Hjalmar Friedel Tibbling hefur skrifað undir samning við Fram og mun leika með liðinu í Bestu deild karla á komandi tímabili. Svíinn hefur verið með liðinu í æfingaferð á Spáni síðustu daga og skrifaði undir samning í gær.

„Besta lausnin væri að vera með tvo Hákona“ en Gylfi gæti líka leyst hlutverkið
Hákon Arnar Haraldsson var settur í nýtt hlutverk í leiknum gegn Kósovó. Hann spilaði á miðjunni, sótti boltann og stýrði uppspilinu, frekar en að vera framar á vellinum. Sérfræðingar Stöðvar 2 Sports voru sammála um að hann væri góður í því hlutverki en best væri að hafa annan eins, eða svipaðan leikmann, með honum. Gylfi Þór Sigurðsson var snöggt nefndur í því samhengi.

„Ungu leikmennirnir þurfa að læra og læra mjög fljótt“
Arnar Gunnlaugsson var ánægður með margt sem hann sá í sínum fyrsta leik sem landsliðsþjálfari Íslands en segir fyrstu fimmtán mínútur seinni hálfleiks hafa verið „algjöra hörmung“. Frammistaðan gefi þó ljós fyrir framhaldið, en ungir leikmenn verði að læra hratt að hafa stjórn á leikjum.

„Mér fannst hann brjóta á mér“
Hákon Arnar Haraldsson tók á sig sök í öðru marki Kósovó í dag en fannst hann þó eiga skilið aukaspyrnu í atvikinu. Hann sagði íslenska liðið geta bætt margt í seinni leiknum á sunnudag.

„Ég hef ekki miklar áhyggjur“
Orri Steinn Óskarsson skoraði mark Íslands gegn Kósovó í kvöld í sínum fyrsta leik sem landsliðsfyrirliði. Orri Steinn var kokhraustur eftir leik og sagðist ekki hafa áhyggjur fyrir seinni leik þjóðanna á sunnudag.

„Vitum að svona getur gerst þegar áherslurnar eru eins og þær eru“
„Þetta er mjög svekkjandi,“ segir Guðlaugur Victor Pálsson eftir 2-1 tapið gegn Kósovó í kvöld, í umspilinu um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta. Hann segir eðlilegt að margt þurfi að bæta eftir fyrsta leik undir stjórn nýs þjálfara.

Fagnaði eins og Ronaldo fyrir framan Ronaldo
Danmörk vann 1-0 gegn Portúgal í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar. Rasmus Hojlund skoraði sigurmarkið og fagnaði að hætti Cristiano Ronaldo, sem horfði svekktur á.

Sigurvegarinn verður með Íslandi í riðli: Króatar unnu fyrri leikinn gegn Frökkum
Króatía vann 2-0 í fyrri leiknum gegn Frakklandi í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar. Sigurvegari einvígisins verður með Íslandi í riðli í undankeppni HM.

Umfjöllun: Kósovó - Ísland 2-1 | Rándýr mistök og tap í fyrsta leik Arnars
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta varð að sætta sig við 2-1-tap gegn Kósovó í kvöld, í fyrsta leiknum undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar. Ísland þarf því að vinna upp eins marks forskot þegar liðin mætast í seinni leik sínum, í Murcia á Spáni á sunnudag, í umspilinu um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar.

Orri skoraði í fyrsta leiknum sem fyrirliði
Ísland mætir Kósovó á útivelli á Fadil Vokrri leikvanginum ytra. Leikurinn er sá fyrsti undir stjórn nýja landsliðsþjálfarans Arnars Gunnlaugssonar.

Fyrsta byrjunarlið Arnars: Ísak og Hákon fyrir framan þrjá reynslubolta
Arnar Gunnlaugsson hefur nú tilkynnt sitt fyrsta byrjunarlið sem landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, fyrir leikinn við Kósovó í kvöld í umspili um sæti í B-deild Þjóðadeildar UEFA.

Stuðningsmenn Barcelona þurfa að bíða lengur eftir nýja Nývanginum
Barcelona mun ekki snúa aftur á Nývang, Nou Camp, sinn heimavöll fyrr en á næsta tímabili.

Tuchel segir að Englendinga hafi vantað stefnu, takt, frelsi og hungur á EM
Thomas Tuchel þótti ekki mikið til frammistöðu enska fótboltalandsliðsins á EM síðasta sumar koma og skaut á forvera sinn í starfi landsliðsþjálfara, Gareth Southgate, í viðtali við iTV.

Efnilegur táningur lést og fjölskyldan krefst svara
Bayern München syrgir hinn unga leikmann Guo Jiaxuan sem hefur verið úrskurðaður látinn, eftir höfuðhögg sem hann hlaut í fótboltaleik. Fjölskylda hans krefst skýringa og réttlætis.

Sauð á pabba Axels sem rauk heim af KR-leikjum
„Þessi tími hjá KR var stuttur og erfiður,“ segir Axel Óskar Andrésson. Axel og pabbi hans, kraftajötuninn Andrés Guðmundsson, ræddu um KR-tímann í fyrsta þætti nýrrar seríu af Lengsta undirbúningstímabili í heimi.

Japan fyrsta þjóðin til að vinna sig inn á HM
Japanir urðu í dag, 169 dögum áður en Ísland byrjar sína undankeppni, fyrstir þjóða til að vinna sér inn sæti á HM karla í fótbolta sumarið 2026.

Leikdagur með Gumma og Kjartani: Lá við milliríkjadeilu á pizzastað í Kósovó
Það er komið að leikdegi í Pristina í Kósovó en þar mun íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefja vegferð sína undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar gegn heimamönnum í kvöld í umspili um laust sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar.

Púllarinn dregur sig úr hópnum
Ryan Gravenberch, leikmaður Liverpool, hefur neyðst til að draga sig úr landsliðshópi Hollands vegna meiðsla. Meiðslin eru að líkindum ekki alvarleg en hann hefur verið máttarstólpi á miðju enska liðsins í vetur.

Mikael mjög leiður: „Var búinn að ætla honum stórt hlutverk"
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir Mikael Neville Anderson hafa verið mjög leiðan yfir því að geta ekki tekið þátt í komandi leikjum Íslands gegn Kósovó, í umspili Þjóðadeildarinnar, vegna meiðsla. Honum hafi verið ætlað stórt hlutverk.