Innlent

Fresta leitinni að Illes
Lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir af Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu hafa frá því í gærkvöld leitað af Illes Benedek Incze, ungverskum ríkisborgara á stóru svæði í kringum Vík í Mýrdal. Þeirri leit hefur nú verið frestað.

Sex ferðamenn festust í helli við Reynisfjöru
Sex ferðamenn festust í helli við Reynisfjöru í dag. Björgunarsveitarmenn sem höfðu verið að leita að manni við Vík í Mýrdal fóru á vettvang og björguðu ferðamönnunum.

Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu
Systir karlmanns sem er í haldi lögreglu grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana segist sár yfir því hve seint nánustu aðstandendum í föðurlegg stúlkunnar voru færð tíðindin. Hún leggur áherslu á að feðginin hafi átt í mjög góðu sambandi.

Nafn stúlkunnar sem lést
Stúlkan sem fannst látin á sunnudagskvöld hét Kolfinna Eldey Sigurðardóttir.

Til rannsóknar hvar stúlkan var myrt
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar það nú hvort að tíu ára stúlka hafi verið myrt í hrauni gegnt Vatnsskarðsnámu við Krýsuvíkurveg á sunnudag eða hvort hún hafi verið myrt annars staðar. Lögreglan leggur mikla áhersla á aðdraganda morðsins í rannsókn sinni. Frá þessu var greint í hádegisfréttum RÚV.

„Langveikt barn í hjólastól peð og fórnarlamb átaka við ríkisstjórnarborðið“
Þingmenn stjórnarandstöðunnar sumir hverjir þjörmuðu að ríkisstjórninni vegna máls Yazans en víst er að mikil spenna ríkir um framtíð ríkisstjórnarinnar undir dagskrárliðnum Störf þingsins nú rétt í þessu.

Telur litlar líkur á að Yazan verði vísað úr landi
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra segir það hans skoðun að líta eigi til Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna við úrlausn mála eins og í máli Yazans Tamimi. Samspil Barnasáttmálans við aðra löggjöf þurfi að skoða betur og það þurfi að vinna betur.

Sigmundur segir fjölmenningastefnuna komna í þrot
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins hefur verið gestur í hlaðvörpum undanfarna daga og fer mikinn. Enda virðist vindur í segl hans nú. Vandræðagangur ríkisstjórnarinnar í málefnum Yazans litla verða ekki til að draga úr því.

Brýnt að finna þyrluflugi nýjan samastað
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra telur það brýnt að finna þyrluflugi annan samastað en á Reykjavíkurflugvelli. Á sama tíma þurfi að vinna að aðgerðum til að draga úr hávaða vegna flugs á Reykjavíkurflugvelli í nærsamfélagi flugvallarins.

Bein útsending: Málþing um sjúklingaöryggi
Embætti landlæknis stendur fyrir málþingi um sjúklingaöryggi milli klukkan 13 og 17 í dag. Hægt verður að fylgjast með þinginu í beinu streymi.

Finnum sérstaklega til þegar börn eigi í hlut
Aldrei hafa verið framin jafn mörg manndráp á Íslandi á einu ári líkt og það sem af er þessu ári. Afbrotafræðingur vonast til þess að um sé að ræða topp sem gangi svo aftur niður. Þjóðin finni sérstaklega til þegar börn eiga í hlut í málunum.

Óráðlegt að undirbúa flutning barns sem dvelur á sjúkrahúsi
Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Framsóknarflokksins segir mál Yazans ekki þrengja líf ríkisstjórnarinnar. Það sé samt auðvitað þannig að hver flokkur innan hennar hafi ólíka afstöðu til málaflokksins og bakland þeirra líka. Það sé mikilvægt að fylgja lögum en líka að tekið sé tillit til þess að þarna hafi verið sérstakt tilvik sem varði dreng í viðkvæmri stöðu.

„Ég hótaði ekki stjórnarslitum“
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Vinstri grænna, segist ekki hafa hótað stjórnarslitum yrði brottflutningi Yazans Tamimi og fjölskyldu ekki frestað. Hann vill þó ekkert gefa upp um það hvort málið gæti leitt til stjórnarslita.

Vandræðalegt að fylgjast með svörum ráðherra
Björn Levi Gunnarsson þingmaður Pírata segir stöðuna viðkvæma hvað varðar Yazan Tamimi sem á að brottvísa til Spánar. Hann segist vilja vita hvort að ráðherrarnir séu sáttir við að þetta séu aðstæðurnar sem skapist miðað við þau lög sem eru í gildi.

Segir lögin skipta máli en líka mannúð
Svandís Svavarsdóttir þingkona Vinstri grænna segir mikla spennu innan ríkisstjórnarinnar um mál Yazans en að ríkisstjórnin hafi ekki verið í hættu vegna brottvísunarinnar. Málið hafi verið rætt frá hinum ýmsu hliðum en að enda sé það ekki hlutverk ríkisstjórnar að taka ákvörðum um það hvort hann verði áfram eða ekki.

„Þó að það hafi verið mér þvert um geð“
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir að hún hafi ákveðið að verða við beiðni félags- og vinnumarkaðsráðherra um frestun brottflutnings Yazans Tamimi og fjölskyldu, þótt það hefði verið henni þvert um geð.

Brottvísun Yazans mótmælt á meðan ráðherrar funda
Í hádeginu verða mótmæli fyrir utan ríkisstjórnarfund í morgun fyrirferðarmest.

Segir Vinstri græn hafa þröngvað Guðrúnu til lögbrots
Eins og lýðum má ljóst vera gaf Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra út skipan um að brottflutningi hins ellefu ára Yazan frá Palestínu sem er með Duchenne sjúkdóminn yrði frestað. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir engan vafa á leika að þar með hafi hún framið lögbrot.

Bjarni segir brottvísunina standa
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir brottvísun Yazans Tamimi standa. Ríkisstjórnin muni ekki taka ákvörðun um brottvísun, það verði að fara að lögum. Yazan er ellefu ára drengur frá Palestínu sem glímir við hrörnunarsjúkdóm. Beiðni hans og fjölskyldu um vernd hér á landi var synjað á árinu.

„Þetta er ekki bara pjatt“: Segir eftirlits þörf með gráum markaði með snyrtivörur
Svartur markaður með vörur einkennist af því að fólk veit að það er að versla falsaða vöru, hvort sem það gerir það í gegnum netið eða á mörkuðum til að mynda.

Læknir hafi metið Yazan flugfæran
Verkefnastjóri heimferða- og fylgdadeildar Ríkislögreglustjóra segir að grænt ljós sé fengið hjá læknum veikra barna áður en þeim er fylgt úr landi. Þannig sé gengið úr skugga um að óhætt sé fyrir viðkomandi að ferðast.

Yazan mjög verkjaður og faðir hans brákaður
Kristbjörg Arna Elínudóttir Þorvaldsdóttir aðstoðarkona Yazans hitti hann og fjölskyldu hans í gær. Hún er ein þeirra sem mótmælir fyrir utan fund ríkisstjórnarinnar á Hverfisgötu. Hún segir Yazan þreyttan eftir að hafa setið í hjólastól í sjö tíma í gær og faðir hans brákaðan eftir aðgerðir lögreglu.

„Við viljum þetta ekki“
Mótmælendur á Hverfisgötu segja kröfu sína einfalda. Að Yazan og fjölskylda hans fái að vera á Íslandi. Það verði rof á þjónustu með brottflutningi til Spánar sem geti stytt ævi hans. Mótmælt hefur verið fyrir utan ríkisstjórnarinnar frá því klukkan átta í morgun.

Notuðu sönginn til að mótmæla vegna Yazan
Nokkur hundruð manns eru saman komin við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavík fyrir utan skrifstofur forsætisráðuneytisins þar sem ríkisstjórnin situr á reglubundnum þriðjudagsfundi sínum.

Leitin að Illes bar ekki árangur í nótt
Leitin að Illes Benedek Incze sem hófst í gærkvöldi á svæðinu í kringum Vík í Mýrdal hefur enn engan árangur borið.

Hundruð mótmæla brottvísun Yazan
Um tvö hundrað manns mótmæla fyrirhuguðum brottflutningi Yazan Tamini, ellefu ára langveiks drengs frá Palestínu, við Hverfisgötu. Ríkisstjórnin fundar þar núna í morgunsárið á sínum reglulega þriðjudagsfundi og er mál Yazans eitt þeirra sem er á dagskrá fundarins. Búið er að loka Hverfisgötunni við Lækjargötu vegna mótmælanna.

Sigríður áfram ríkislögreglustjóri
Staða ríkislögreglustjóra verður ekki auglýst, samkvæmt svörum dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins en í gær voru sex mánuðir þar til skipunartími Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur rennur út.

Viðurkennir að hafa ekki haft heimild til að stíga inn
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra kveðst ekki hafa haft lagaheimild til þess að stíga inn í mál Yazans Tamimi, ellefu ára langveiks drengs frá Palestínu, sem til stóð að vísa úr landi í morgun. Frá því var horfið þegar Guðrún fyrirskipaði að brottvísun hans yrði frestað, að ósk Guðmundar Inga Guðbrandssonar félagsmálaráðherra.

Litið til hæðarmunar og eiginkonan fyrrverandi sýknuð
Kona hefur verið sýknuð af ákæru um ofbeldi gagnvart fyrrverandi eiginmanni sínum. Litið var til hæðarmunar þeirra tveggja við aðalmeðferð og ekki talið hafið yfir allan vafa að hún hafi valdið þeim áverkum sem á honum voru.

Leita að Illes Benedek Incze í leiðindaveðri í Vík
Maðurinn sem leitað er að í Vík og nágrenni heitir Illes Benedek Incze og er búsettur í bænum. Síðast sást til Illes klukkan þrjú síðastliðna nótt en lögreglan á Suðurlandi leggur mikla áherslu á leitina vegna leiðindaveðurs sem er á svæðinu.