Innlent
283 284 285 286 287 288 289 290 291 … 334 ›
Segir ekki lengur hægt að sækja börnin til Íslands Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingkona, segir þá lagalegu stöðu komna upp að ekki sé hægt að sækja börn Eddu Bjarkar Arnardóttur til landsins. Ástæðan fellst meðal annars í því að búið sé að flytja hana úr landi. Innlent 3.12.2023 13:15
Hussein yfirgaf Ísland ásamt fjölskyldu sinni Hælisleitandinn Hussein Hussein, sem er í hjólastól, ákvað á síðustu stundu að yfirgefa Ísland og fór með fjölskyldu sinni til Grikklands í gær. Fjölskylduvinur segir að Hussein hafi ekki getað hugsað sér að dvelja hér án fjölskyldu sinnar, sem vísað var úr landi. Aðstæður séu ömurlegar hjá þeim úti. Innlent 3.12.2023 11:59
Í beinni: Hvatningarverðlaun ÖBÍ Hvatningarverðlaun ÖBÍ verða afhent í dag 3. desember, alþjóðadag fatlaðs fólks, í Mannréttindahúsinu í Sigtúni 42. Verðlaunahátíðin hefst klukkan 11. Innlent 3.12.2023 10:31
Sprengisandur: Ástandið, mál Eddu Bjarkar og staðan í Bandaríkjunum Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 3.12.2023 09:30
Búist við snjókomu víða um land Búist er við snjókomu á köflum víða um land í dag. Það á meðal annars við um höfuðborgarsvæðið, en sérstaklega er minnst á Reykjanesið varðandi snjókomuna. Innlent 3.12.2023 07:50
Mikið um hópslagsmál í miðborg Reykjavíkur Lögreglan fékk þónokkrar tilkynningar um hópslagsmál í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi og í nótt. Innlent 3.12.2023 07:20
Vilja bjarga síðustu kanínunum í Elliðaárdal Fólk vitjar enn kanína í Elliðaárdal, tæpum tveimur árum eftir að þeim var nánast öllum bjargað af dýravelferðarfélögum og Dýraþjónustu Reykjavíkur. Sjálfboðaliði Dýrahjálpar segir að enn séu eftir ellefu kanínur í dalnum en að um níutíu hafi verið bjargað. 47 þeirra vantar enn heimili. Innlent 3.12.2023 07:00
Viðurkenndi að hafa „lúbarið“ samfanga sinn en dró það svo til baka Karlmaður hlaut á dögunum þriggja mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands vegna tveggja líkamsárása sem áttu sér stað í fangelsinu Litla-Hrauni. Fyrri árásin átti sér stað í október árið 2021, og sú seinni í nóvember 2022. Maðurinn hafði áður hlotið 18 dóma fyrir refsiverða háttsemi. Innlent 2.12.2023 20:43
Edda Björk í gæsluvarðhaldi Edda Björk Arnardóttir, sem var framseld til Noregs í gær, hefur verið úrskurðuð í þrjátíu daga gæsluvarðhald í Þelamerkurfangelsi. Þetta staðfestir Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður Eddu í samtali við fréttastofu. Innlent 2.12.2023 18:54
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Systir Eddu Bjarkar Arnardóttur segist ekkert hafa heyrt frá henni síðan hún var framseld til Noregs í gær. Hún hafi síðast vitað af systur sinni á flugvellinum í Kaupmannahöfn. Óvissan sé afar erfið fyrir fjölskylduna. Barnamálaráðherra segir hug sinn allan hjá börnunum. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 2.12.2023 18:16
Segir málið á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segir að ráðuneytið sitt geti ekki blandað sér í mál Eddu Bjarkar Arnardóttur og barnanna hennar og segir málið alfarið vera á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins. Innlent 2.12.2023 17:53
Vissi síðast af Eddu Björk á flugvellinum í Kaupmannahöfn Systir Eddu Bjarkar Arnardóttur, sem var framseld til Noregs í gær, hefur ekkert heyrt frá henni frá framsalinu. Hún segir mikilvægt að hlustað verði á syni Eddu í forræðisdeilu hennar við barnsföður sinn. Innlent 2.12.2023 15:50
Setja á fót leigutorg aðeins ætlað Grindvíkingum Stjórnvöld leita nú að leiguhúsnæði fyrir Grindvíkinga sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Eigendum fasteigna gefst nú kostur á að skrá íbúð sína til leigu á sérstöku leigutorgi sem eingöngu er ætlað Grindvíkingum. Innlent 2.12.2023 14:44
Íbúum í Skagafirði fjölgar og fjölgar Íbúum Skagafjarðar fjölgar og fjölgar og eru nú orðnir rúmlega fjögur þúsund og fjögur hundruð en alls hefur fjölgað um 80 íbúa á árinu. Mikið er byggt út um allt í sveitarfélaginu en það, sem skortir eru vinnandi hendur því næga atvinnu er að hafa í Skagafirði. Innlent 2.12.2023 14:31
„Sorglegt“ ef pökkunum undir trénu fer ekki að fjölga Árleg jólagjafasöfnun Kringlunnar fyrir börn sem búa við bágan kost fer mjög illa af stað. Markaðsstjóri Kringlunnar segir það verða sorglega niðurstöðu ef söfnunin taki ekki við sér. Innlent 2.12.2023 13:47
Óvinnufær eftir árás nemanda Valgerður Þórunn Ásgeirsdóttir var nýbyrjuð að vinna sem iðjuþjálfi í grunnskóla þegar hún varð fyrir árás af hálfu nemanda og slasaðist illa. Afleiðingarnar voru þær að hún varð óvinnufær og datt út af vinnumarkaði. Innlent 2.12.2023 13:28
Gleðjast yfir því að þurfa ekki í hálkuna á Hjallahálsi Vegfarendur sem ekið hafa nýja veginn um Teigsskóg eru byrjaðir að lýsa reynslu sinni og birta myndir á samfélagsmiðlum. Vegurinn var opnaður umferð í gær, átján mánuðum eftir að Vegagerðin og Borgarverk undirrituðu samning um vegagerðina, sem sannarlega má telja einhverja þá umdeildustu hérlendis, en áður hafði verið deilt hart um vegstæðið í tvo áratugi. Innlent 2.12.2023 12:40
Ísland verði að beita sér af krafti Forsætisráðherra boðaði áttatíu milljóna króna framlag Íslands í Loftlagshamfarasjóð í ræðu á COP28 ráðstefnunni í Dubai í morgun. Hún segir Ísland gegna mikilvægu hlutverki á ráðstefnunni. Forseti Ungra umhverfissinna segir ávarp ráðherra ekki endurspegla raunverulega stefnu Íslands í loftslagsmálum; stjórnvöld verði að viðurkenna að þau geri ekki nóg. Innlent 2.12.2023 12:14
Vélinni snúið við á miðri leið Flugvél Icelandair á leið til Þýskalands var snúið við vegna veðurs í morgun. Innlent 2.12.2023 12:07
Sparkað í höfuð í hópslagsmálum á Austurstræti Lögregla var kölluð að Austurstræti í Reykjavík í nótt, rétt fyrir fjögur, þar sem var tilkynnt um slagsmál milli nokkurra einstaklinga utandyra við skemmtistað. Innlent 2.12.2023 11:01
„Var búin að tapa öllu sem ég átti“ Ástrós Lind Eyfjörð var 24 ára gömul þegar hún ánetjaðist spilakössum. Hún þróaði strax með sér gífurlega sterka fíkn og þráhyggju og tapaði háum fjárhæðum á stuttum tíma. Á tímabili var vanlíðan hennar svo mikil að hún íhugaði að svipta sig lífi. Innlent 2.12.2023 09:00
Mikil harka færst í átökin eftir rof vopnahlésins Eftir að vopnahlé í Ísrael og Palestínu lauk í gær hafa átök hafist á ný fyrir botni miðjarðarhafs. Ísraelski herinn segist hafa gert árásir á rúmlega 400 skotmörk síðan þá. Innlent 2.12.2023 08:25
Fjórar árásir til rannsóknar eftir nóttina Lögreglunni var tilkynnt um fjórar árásir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt eftir því sem kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar af áttu þrjár þeirra sér stað í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 2.12.2023 07:21
Óvissan heldur áfram um útboð næstu jarðganga Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vísar því til Alþingis að ákvarða hvort bíða eigi með útboð næstu jarðganga þar til séð verður hvernig ný bortækni reynist. Hann vonast til að það skýrist fyrir vorið hvernig jarðgangaáætlun verður fjármögnuð. Innlent 1.12.2023 22:55
Minnsta fylgi VG frá upphafi Fylgi ríkisstjórnarinnar heldur áfram að minnka samkvæmt nýjum þjóðarpúls frá Gallup. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um eitt prósentustig á milli kannanna og situr nú í 33 prósentum. Innlent 1.12.2023 22:33
Eddu Björk hafi verið gert að tala norsku við börnin sín Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrverandi þingkona Samfylkingarinnar segir ekki nóg hlustað á börnin í forsjármáli Eddu Bjarkar Arnardóttur sem framseld var til Noregs í dag. Hún gagnrýnir einnig framferði norskra yfirvalda í málum sem varða börn. Þetta og fleira ræddi hún í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag Innlent 1.12.2023 21:28
Dæmdur fyrir ofsaakstur á stolnum bíl undan lögreglu Landsréttur hefur staðfest tveggja ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni vegna fjölda brota sem áttu sér flest stað í fyrra. Innlent 1.12.2023 19:57
Áfengi úr íslenskri mjólk á Sauðárkróki Íslenskri mjólk er nú breytt að hluta til í áfengi hjá Íslensku mysuafurðum á Sauðárkróki, sem er að framleiða etanól úr mjólkursykrinum. Ekki stendur þó til að fara að framleiða áfengi til sölu að svo stöddu en sá tímapunktur gæti þó komið fyrr en varir. Innlent 1.12.2023 19:40
Jákvætt að fulltrúum atvinnulífs hafi fjölgað á COP Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, heldur til Dúbaí eftir helgi á aðildríkjafund Loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna, COP 28, sem hófst í gær. Innlent 1.12.2023 19:34
Kláði, verkir, bólgur og sýkingar algeng vegna myglunnar á Reykjalundi Tugir starfsmanna Reykjalundar þurftu að rýma húsnæði sitt í dag vegna myglu og lélegra loftgæða. Talið er að hluti þess sé ónýtt. Starfsfólk og sjúklingar hafa þurft frá að hverfa til skemmri og lengri tíma vegna veikinda. Innlent 1.12.2023 18:30