
Körfubolti

Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót
Njarðvík hefur rift samningi sínum við bandaríska leikmenn liðsins, en deildarkeppnin sjálf hefst 3. október.

Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann
Hlynur Bæringsson verður elsti leikmaðurinn í Bónusdeild karla í vetur. Hann gat ekki hugsað sér að hætta eftir síðasta vonbrigðatímabil.

Viktor aftur heim í Stjörnuna
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við Viktor Lúðvíksson sem kemur til liðsins frá Munster í Þýskalandi.

Clark slegin í augað í frumraun
Eftir að hafa verið valin nýliði ársins í WNBA-deildinni í körfubolta, með fullt hús stiga, varð Caitlin Clark að sætta sig við stórt tap með Indiana Fever í sínum fyrsta leik í úrslitakeppni.

Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru
Adrian Wojnarowski hefur ákveðið að vanda kvæði sínu í kross og breyta um starfsvettvang. Hann hefur því sagt starfi sínu hjá íþróttafréttarisanum ESPN lausu. Frá þessu greindi Woj, eins og hann er öllu jafnan kallaður, á samfélagsmiðlum sínum.

Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“
„Við erum svekkt yfir þessu en skiljum ákvörðunina,“ segir Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands. Bikarkeppnunum í handbolta og körfubolta hefur verið úthýst úr Laugardalshöll.

Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin
Íslenski körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson hefur verið gerður að fyrirliða Alba Berlin.

Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli
Áhugi Íslendinga á körfuboltakonunni Caitlin Clark hefur vakið athygli en stór hópur safnaðist saman í Minigarðinum á sunnudaginn til að fylgjast með leik í bandarísku WNBA-deildinni.

Boban kveður NBA og fer til Tyrklands
Miðherjinn Boban Marjanovic hefur ákveðið að flytja til Tyrklands og binda enda á níu ára langan feril í NBA deildinni.

Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet
Caitlin Clark setti skoraði 35 stig í 110-109 sigri gegn Dallas Wings. Fjöldi íslenskra kvenna kom saman og horfði á leikinn, að frumkvæði Silju Úlfarsdóttur og Helenu Sverrisdóttur.

„Sem samfélag erum við að vakna“
„Við finnum meðbyr," segir Helena Sverrisdóttir, ein allra besta körfuboltakona Íslands frá upphafi, sem ásamt Silju Úlfarsdóttur stendur fyrir áhorfspartýi í Minigarðinum í kvöld sem hefur vakið mikla athygli. Þar verður horft á leik Indiana Fever og Dallas Wings í WNBA deildinni í körfubolta en Caitlin Clark, stórstjarna deildarinnar, leikur með Indiana Fever.

Færir sig á milli liða á Suðurlandinu
Franski bakvörðurinn Franck Kamgain mun spila áfram í Bónus deildinni í körfubolta þrátt fyrir að hafa fallið niður í 1. deild með Hamri á síðustu leiktíð.

Njarðvík fær tvo
Njarðvík hefur samið við Alexander Smára Hauksson og Isaiah Coddon fyrir komandi tímabil í Bónus-deild karla í körfubolta.

Valin best þriðju vikuna í röð
Nýliðinn Caitlin Clark heldur áfram að blómstra í WNBA deildinni í körfubolta og hún er ekki aðeins besti nýliðinn í deildinni heldur hefur hún nú verið valin besti leikmaður Austurdeildarinnar þrjár vikur í röð.

Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið
Sá leikjahæsti í sögunni hefur sterka skoðun á því af hverju Michael Jordan geti ekki talist vera besti NBA leikmaður allra tíma.

KR fær króatískan miðherja
KR heldur áfram að styrkja hóp sinn fyrir komandi leiktíð í Bónus-deild karla í körfubolta. Króatískur miðherji er genginn í raðir félagsins.

Keyrði niður körfuboltamann sem lést
Tyrkneski körfuboltamaðurinn Ilkan Karaman lést um helgina eftir eftir slys í heimalandi sínu.

Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð
Nýliðinn og frákastadrottningin Angel Reese, leikmaður Chicago Sky, spilar ekki meira í WNBA-deildinni í körfubolta á þessari leiktíð eftir meiðsli á úlnlið. Frá þessu greindi hún á samfélagsmiðlum sínum.

Sá besti í Lettlandi semur við KR
KR hefur samið við Lettann Linards Jaunzems um að spila með liðinu í Bónus-deild karla í körfubolta í vetur. Það fjölgar í hópi framherja í hópi liðsins.

Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA
NBA goðsögnin Sir Charles Barkley er allt annað en hrifinn af meðferðinni á nýliðanum Caitlin Clark í umfjöllun kvenna um WNBA deildina í Bandaríkjunum.

„Það verður ný og skrýtin tilfinning“
KR hefur borist mikill liðsstyrkur fyrir komandi átök í Bónusdeild karla í körfubolta. Landsliðsmaðurinn Þórir Guðmundur Þorbjarnarson er kominn heim í Vesturbæ.

„Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“
KR-ingar kynntu í gær nýjan leikmann hjá körfuboltafélagi félagsins en jafnframt leikmann sem stuðningsmenn KR þekkja vel. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson kemur til liðsins frá Tindastól þar sem hann spilaði síðasta vetur.

Þórir mættur heim í KR
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson er kominn á heimaslóðir og hefur samið við KR um að leika með liðinu í Bónusdeild karla í körfubolta í vetur. Hann kemur til liðsins frá Tindastóli.

Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil
NBA körfuboltamaðurinn Stephen Curry hefur náð samkomulagi við Golden State Warriors um að framlengja samningi sínum um eitt ár.

„Ég gæti auðveldlega verið dauður“
Fyrrum NBA leikmaður sagði frá miður skemmtilegri lífsreynslu sinni í nýju viðtali. Hann er þakklátur fyrir að vera enn á lífi.

Setti enn eitt metið í nótt
Caitlin Clark heldur áfram að skrá sig á spjöld sögunnar í WNBA-deildinni í körfubolta. Þessi magnaði nýliði leiddi Indiana Fever til sigurs í nótt og leyfir félaginu þar með að dreyma um að komast í úrslitakeppnina í fyrsta sinn síðan 2016.

Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“
Þórsarar hafa nú opinberað nýjan bandarískan bakvörð á miðlum sínum en Marreon Jackson mun spila með Þorlákshafnar Þórsurum í Bónus deild karla í körfubolta í vetur.

Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir
Körfuboltakonan Caitlin Clark heillar flesta sem á hana horfa enda bæði frábær skotmaður og frábær sendingamaður. Það er einkum henni að þakka að áhorf hefur stóraukist á kvennakörfuna í Bandaríkjunum.

Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna
Leó Curtis mun ekki leika með ÍR í Bónus deild karla í körfubolta á næsta tímabili. Hann hefur samið við Cats Academy prep school í Bandaríkjunum.

Morris spilar með Grindavík í vetur
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur fundið bandarískan leikmann fyrir kvennalið sitt fyrir komandi leiktíð í Bónus-deildinni.