
Körfubolti

Þórsarar unnu oddaleikinn og halda áfram í undanúrslit
Þór vann Skallagrím 85-80 í oddaleik í 8-liða úrslitum 1. deildar karla í körfubolta.

Öruggur sigur í fyrsta leik úrslitakeppninnar
Fyrsta leik úrslitakeppni NBA lauk með 97-83 sigri Cleveland Cavaliers gegn Orlando Magic.

Miami og New Orleans síðustu liðin inn: Svona lítur úrslitakeppni NBA út
Miami Heat og New Orleans Pelicans léku bæði án síns besta leikmanns í nótt en tókst engu að síður að tryggja sér sæti í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta. Með því er ljóst hvernig úrslitakeppnin lítur út í ár.

„Við treystum á Remy og guð í kvöld“
„Við hittum úr stórum skotum og náðum stoppum varnarlega. Það var kannski munurinn á þessu, sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari Keflavíkur, eftir að hans menn komust 2-1 yfir í einvígi sínu við Álftanes í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta.

„Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“
Keflavík tók forystuna á ný í kvöld þegar þeir höfðu betur gegn Álftanes 88-84 í þriðja leik liðana í 8-liða úrslitum Subway-deild karla í körfubolta. Remy Martin var frábær í liði Keflavíkur og var ánægður með svar sinna manna eftir tap í leik tvö.

„Særð dýr eru hættulegustu dýrin“
Svavar Atli Birgisson var stoltur af sínu liði eftir frammistöðu kvöldsins gegn Grindavík þó lið Tindastóls hafi fallið úr leik í 8-liða úrslitum. Hann viðurkenndi að tímabilið væri búið að vera erfitt.

Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Álftanes 88-84 | Keflvíkingar tóku forystuna í hörkuleik
Keflavík lagði Álftanes í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. Keflavík leiðir nú einvígið 2-1 og þarf aðeins einn sigur til að komast í undanúrslit.

„Fínt að enda þetta þannig að fólk fái eitthvað fyrir peninginn“
„Ég er bara mjög ánægður að við séum komnir í gegn. Þetta er í fyrsta skipti síðan 2017 sem við förum í gegnum fyrstu umferðina,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur eftir að hans menn sópuðu Íslandsmeisturum Tindastóls úr leik í 8-liða úrslitum Subway-deildarinnar.

Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum
Grindvíkingar urðu í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Subway-deildar karla. Þetta varð ljóst eftir að liðið vann Tindastól í þriðja sinn í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum.

Uppgjör og viðtöl: Valur - Njarðvík 67-82 | Íslandsmeistararnir í sumarfrí
Njarðvík er komið í undanúrslit Subway-deildar kvenna í körfubolta eftir þægilegan sigur á Val á Hlíðarenda. Tapið þýðir að Íslandsmeistarar Vals eru komnir í sumarfrí. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

Verður fyrsta konan til að dæma í úrslitakeppni NBA í tólf ár
Ashley Moyer-Gleich verður aðeins önnur konan í sögunni og sú fyrsta í meiri áratug sem dæmir í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta.

Segir að hann verði bráðum bestur í NBA
Það vantar ekki sjálfstraustið í Anthony Edwards, leikmann Minnesota Timberwolves. Hann segir að hann verði orðinn besti leikmaður NBA-deildarinnar áður en langt um líður.

„Með því glórulausasta sem ég hef séð“
Það er um fátt annað rætt í körfuboltaheiminum í dag en pungspark David Ramos, leikmanns Hattar, í leik Vals og Hattar í úrslitakeppni Subway-deildar karla í dag.

Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér
Blaðamaður í nýrri heimaborg körfuboltastjörnunnar Caitlin Clark hefur beðist afsökunar á hátterni sínu og segir hegðun sína á fyrsta blaðamannafundi körfuboltakonunnar hafa verið heimskulega.

„Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“
Njarðvík tók á móti Þór Þorlákshöfn í þriðja leik liðana í 8-liða úrslitum í Subway-deild karla í kvöld. Liðin voru jöfn með sitthvorn sigurinn fyrir leikinn í Ljónagryfjunni í kvöld en Þór Þ. tók forystu í einvíginu með 107-110 sigri hér í kvöld eftir framlengingu.

Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“
Frank Booker kenndi sér enn meins í klofinu þegar hann mætti í viðtal eftir 94-74 sigur Vals gegn Hetti.

Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum
Þór Þorlákshöfn er komið 2-1 yfir í einvígi sínu við Njarðvík í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta eftir magnaðan sigur í framlengdum leik í Ljónagryfjunni.

Uppgjörið: Valur - Höttur 94-74 | Valsmenn taka forystuna í einvíginu
Valur vann 94-74 gegn Hetti í þriðja leik liðanna í úrslitakeppni Subway deildar karla.

Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers
David Ramos, leikmaður Hattar, var rekinn af velli í leik Hattar og Vals sem nú fer fram á Hlíðarenda í rimmu liðanna í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla. Atvikið má sjá í spilaranum hér að neðan.

Curry reyndi að fá Clark til Under Armour en Nike hafði betur
Körfuboltakonan Caitlin Clark mun skrifa undir nýjan risa skósamning við Nike. Hún fær sinn eigin einkennisskó hjá Nike.

Lét leikmenn Tindastóls heyra það: Fólk hérna á þetta ekki skilið
Titilvörn Tindastóls hefur verið ein sú lélegasta í sögunni og aðeins algjör hugarfarsbreyting og söguleg endurkoma getur bjargað úrslitakeppninni hjá liðinu. Kannski væri góð byrjun að hlusta aðeins á sérfræðing Körfuboltakvölds.

Baulað á Sixers en liðið kom til baka og komst áfram
Philadelphia 76ers tryggði sér sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta með eins stigs sigri á Miami Heat í umspilinu í nótt en Miami bíður úrslitaleikur á móti Chicago Bulls um síðasta sætið í úrslitakeppni Austurdeildarinnar.

„Við bara fóðruðum dýrið og dýrið borðaði“
Keflavík átti ekki í neinum vandræðum með lið Fjölnis þegar þau áttust við í Blue höllinni í Keflavík í kvöld. Þetta var þriðji sigur Keflavíkur í seríunni og sópuðu þær Fjölni úr leik í 8-liða úrslitum Subway deildar kvenna.

„Þær skoruðu full auðveldlega á okkur í dag“
Stjörnukonur voru grátlega nálægt því að knýja fram framlengingu á Ásvöllum í kvöld en lokaskot Ísoldar Sævarsdóttur var örlítið of stutt. Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, notaði skrautleg orð um hversu litlu munaði áður en viðtalið hófst formlega og verða þau ekki færð í prent að þessu sinni.

„Sem betur fer var leikurinn bara 40 mínútur í dag“
Ingvar Þór Guðjónsson, þjálfari Hauka, var ekkert sérlega upplitsdjarfur eftir leik þrátt fyrir að landa 80-78 sigri gegn Stjörnunni. Eftir að hafa náð upp 18 stiga forskoti gekk lítið upp hjá hans konum á lokakaflanum.

Uppgjörið: Keflavík - Fjölnir 88-72 | Deildarmeistararnir flugu í undanúrslit
Keflavík er komið í undanúrslit Subway-deildar kvenna eftir þriðja sigurinn í einvígi liðsins gegn Fjölni í 8-liða úrslitum.

Uppgjör, viðtöl og myndir: Haukar - Stjarnan 80-78 | Haukasigur eftir dramatík
Haukar eru komnir í 2-1 í einvígi liðsins gegn Stjörnunnar í 8-liða úrslitum Subway-deildar kvenna. Stjörnukonur voru afar nálægt ótrúlegri endurkomu í fjórða leikhluta eftir að Haukar höfðu náð góðri forystu.

LeBron fer fyrir ógnarsterku liði Bandaríkjanna á ÓL
Bandaríkin mun senda stjörnum prýtt lið til leiks í körfubolta á komandi Ólympíuleikum sem fara fram í París þetta árið. Landsliðshópurinn hefur verið opinberaður. LeBron James verður fyrirliði liðsins.

Golden State komst ekki í úrslitakeppnina en Lakers verður með
Umspilskeppni NBA-deildarinnar í körfubolta hófst í nótt og þar sendu liðsmenn Sacramento Kings Stephen Curry og félaga í sumarfrí. Los Angeles Lakers vann aftur á móti sinn leik og tryggði sér með því sæti í úrslitakeppni.

„Erum að spila á móti ríkjandi Íslandsmeisturum og þurfum að vera klárar“
Njarðvík kjöldróg Valsliðið í Ljónagryfjunni í kvöld 92-59 þegar liðin mættust í þriðja leik í 8-liða úrslitum Subway deildar kvenna í körfubolta.