Lífið

Ína Berglind vann Söngkeppni Samfés
Ína Berglind Guðmundsdóttir úr félagsmiðstöðinni Nýjung á Egilsstöðum stóð uppi sem sigurvegari í Söngkeppni Samfés í gær. Söng hún frumsamda lagið Tilgangslausar setningar.

Fréttakviss vikunnar: Ræðukeppni, kattarbúningur og afsögn verkalýðsforingja
Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Taktu þátt í Fréttakvissi vikunnar sem er í boði á Vísi á laugardögum.

Bílarnir sem Kaninn skildi eftir
Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk.

Geggjuð útgáfa af Murr Murr með Mugison og Eyþóri Inga
Skemmtiþátturinn Kvöldstund með Eyþóri Inga var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi.

Hélt hún væri með lágþrýsting en fékk heilablóðfall
Sigga Kling, spákona og skemmtikraftur með meiru, er ekki dauð! Hún mætti í Bakaríið á Bylgjunni í dag til að kveða niður flökkusögur um ótímabært fráfall sitt en hið sanna í málinu er að hún fékk á dögunum heilablóðfall í kjölfar blóðtappa.

Starfsmenn CCP fögnuðu tuttugu árum af EVE
EVE Online fagnar 20 ára afmæli í dag en af því tilefni var boðað til veislu í höfuðstöðvum CCP í Grósku í Vatnsmýri í seinni partinn gær þar sem fyrrverandi og núverandi starfsmenn komu saman til að fagna þessum tímamótunum.

Fór beint upp á flugvöll og aftur til Bandaríkjanna
Harry Bretaprins dreif sig aftur heim til Bandaríkjanna eftir að faðir hans, Karl III, var krýndur Bretlandskonungur í dag. Sonur hans fagnar fjögurra ára afmæli í dag.

Logi gekk út úr miðju viðtali
Handboltastjarnan Logi Geirsson rauk út í miðju viðtali á FM957 á dögunum. „Ég er ekki að fara svara þessu, ég veit alveg hvað þið eruð að fara að gera,“ sagði fjarþjálfarinn þegar hann gekk á dyr í kjölfar spurningaflóðs.

Prettyboitjokko grátbað um annað lag
Tónlistarmaðurinn Prettyboitjokko hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn undanfarið. Fyrst með samnefndu lagi, Prettyboitjokko, sem hann frumflutti í mars síðastliðnum, en í gær kom svo út fyrsta smáskífan. Listamaðurinn, sem heitir réttu nafni Patrekur Atlason, tók sér sviðsnafnið í upphafi ferils síns.

Viðurkennir að hafa misst prófið
Það vakti nokkra athygli á dögunum þegar veitinga- og athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson tilkynnti að hann myndi lifa bíllausum lífsstíl í sumar. Hann segir frískandi að hjóla en viðurkennir að hafa misst bílprófið.

Harry mætti einsamall
Eins og við var að búast mætti Harry Bretaprins einsamall í krýningarathöfn föður síns í Westminster Abbey í dag. Miklar vangaveltur voru uppi um hvort hann og Meghan Markle myndu mæta í athöfnina þar til það kom fram í yfirlýsingu frá Buckingham höll að Harry myndi mæta einn.

Ekki endilega viss um að símakosningin fari vel með Loreen
Eurovision-sérfræðingur segir sænskan sigur í Eurovision í ár alls ekki meitlaðan í stein; Finnar gætu vel hreppt hnossið ef dómnefndir verða þeim hliðhollar. Nú þegar stóra stundin nálgast óðfluga gæti hagur Íslands jafnframt vænkast í veðbönkum en hann hefur þó ekki trú á að framlagið hafni ofar en í 15. sæti.

HönnunarMars í dag: Örari hjartsláttur í Reykjavíkurborg
HönnunarMars stendur nú sem hæst og óhætt að segja miðborgina iða af lífi. Lífið á Vísi tók púlsinn á dagskránni í dag, laugardag, en af nægu er að taka.

Langar stundum að verða slaufað
„Ef einhver hefur skoðun á því að eitthvað sem ég segi í viðtali séu kannski fordómar eða eitthvað bla, bla, þá er það örugglega bara rétt. Eða ég get sagt að það sé vissulega sjónarmið,“ segir leikskáldið Tyrfingur Tyrfingsson í viðtali í Einkalífinu.

„Ég mun aldrei skilja hvernig ég var varð svona heppin að kynnast henni“
Alda Karen Hjaltalín athafnakona og áhrifavaldur skellti sér á skeljarnar nú fyrir stuttu en áður hafði ástkona hennar Katherine Lopez gert slíkt hið sama.

Bein útsending: Íslensk hönnun á tískusýningu í Listasafni Reykjavíkur
Tískusýning Farmers Market og Kormáks & Skjaldar í Listasafni Reykjavíkur í kvöld er einn af hápunktum Hönnunarmars. Sýningin verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Prufur í Idol eru hafnar
Prufur vegna Idol eru hafnar og fara þær næstu fram í Reykjavík um helgina, sunnudaginn 7. maí. Enn er tími til að skrá sig og verða prufur haldnar um land allt í maí.

Ellý Ármanns komin á flugfreyjulestina
Ellý Ármannsdóttir, listakona og hóptímakennari hjá Reebok Fitness, mun starfa sem flugfreyja hjá Icelandair í sumar. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Reykjavíkurdóttir gekk út í Túnis
Anna Tara Andrésdóttir, Reykjavíkurdóttir með meiru, er gengin út. Hún gifti sig um helgina í Túnis, sem er heimaland hennar heittelskaða Oussama Achour.

Eftir áfallið fór Edda í sálgæslunám
Edda Björgvinsdóttir leikkonan dáða er núna á tímamótum því hún vill flytja og vera nær börnunum sínum og er hún því að hugsa um að selja fallegu íbúðina sína í 101.

Hugi á markaðinn eftir sextán ára samband
Fjölmiðlamaðurinn Hugi Halldórsson, sem lengi var þekktastur sem Ofur-Hugi í sjónvarpsþáttunum 70 mínútum, er orðinn einhleypur. Hugi greindi frá þessu í hlaðvarpi þeirra Sigmars Vilhjálmssonar vinar síns, sem ber einmitt heitið 70 mínútur.

Ekki talið öruggt fyrir hana að vera á almannafæri
Ágústa Eva Erlendsdóttir söng- og leikkona, sem fór fyrir Íslands hönd í Eurovision í gervi Silvíu Nætur árið 2006, lýsir algjöru fjölmiðlafári kringum atriðið á sínum tíma. Skapofsi Silvíu Nætur kom henni ítrekað í klandur, bæði gagnvart skipuleggjendum Eurovision og grísku þjóðinni. Skömmu eftir keppnina var henni beinlínis ráðið frá því að vera á almannafæri, slík var heiftin úti í Grikklandi.

HönnunarMars í dag: Miðborgin iðar af lífi og tískusýning í beinni
HönnunarMars stendur nú sem hæst og óhætt að segja miðborgina iða af lífi. Lífið á Vísi tók púlsinn á dagskránni í dag, föstudag, en af nægu er að taka.

Maíspá Siggu Kling er komin á Vísi
Stjörnuspá Siggu Kling fyrir maí er lent á Vísi. Sigga Kling birtir stjörnuspá fyrir öll stjörnumerkin fyrsta föstudag hvers mánaðar.

Maíspá Siggu Kling: Hrúturinn á leið inn í sigurtímabil
Elsku Hrúturinn minn, það er svo margt búið að vera að gerast, og þú hefur ekki alveg getað haft þá stjórn sem þú vilt hafa. Svo þér finnst að allt renni saman í eitt, því að þú hefur ekki haft tök til þess að sinna öllu eins og þú vildir. Núna er hins vegar umbylting á hlutverki þínu og þú sérð að það var þér fyrir bestu að ýmislegt fór ekki nákvæmlega eins og þú vildir.

Maíspá Siggu Kling: Meyjan fer inn í merkilegt tímabil
Elsku Meyjan mín, þú ert að fara inn í mikið og merkilegt tímabil sem gefur þér afl í tilfinningum og kraft til að segja hvað þú vilt. Og þú færð sterka stefnu, því að það sem er mikilvægast er náttúrulega að vita hvert maður er að fara og hvert maður vill fara, þá er komin sterk stefna í því hvernig leiðin verður.

Maíspá Siggu Kling: Ljónið verður að hætta að slást við sjálft sig
Elsku Ljónið mitt, þú ert fallegasta og sterkasta dýrið í skóginum og hefur yfir þér þann þokka að fólk beygir sig eða jafnvel getur ekki horft á þig. Þau stríð sem þú átt eftir að heyja á því tímabili sem þú ert að fara í eru aðallega bara við sjálft þig. Þú annað hvort rífur þig niður eða byggir þig upp og þarna vantar þig þann stöðugleika sem er nauðsynlegur fyrir fallega Ljónið.

Maíspá Siggu Kling: Mikil ástríða í lífsloga vatnsberans
Elsku Vatnsberinn minn, að vera trúr og tryggur er einkenni þitt og það er það sem mun koma þér svo langt á komandi tímum. Að fyrirgefa leiðindin sem hafa verið lögð fyrir þig og að sleppa þeim tökum alveg. Þú átt eftir að gera svo margt fyrir aðra án þess að monta þig af því hversu góður þú sért.

Maíspá Siggu Kling: Sporðdrekinn eins og leiftrandi og fegursta eldgos
Elsku Sporðdrekinn minn, þú verður að sjá og athuga að þú ert eldgos og það vilja allir fara og sjá eldgos ef þeir mögulega geta. Annaðhvort bíðum við í langan tíma eftir eldgosi eða þau koma aftur og aftur með stuttu millibili. Núna er fulla fallega Sporðdrekatunglið 5. maí og skapar það mikið sjáanlegt fallegt eldgos hjá þér.

Maíspá Siggu Kling: Bogmaðurinn sveiflast frá góðsemi til stjórnsemi
Elsku Bogmaðurinn minn, það er í mörg horn að líta hjá þér. Þér finnst eins og þú sért ekki búinn að klára það sem þú varst búinn að lofa sjálfum þér eða öðrum að ganga frá. Allt er samt á réttum tíma, því að það eru ástæður fyrir öllu sem gerist hjá þér.