
Lífið

Gefa þau skilaboð að hreyfihamlaðir eigi bara að vera á gömlum bílum
„Að mínu mati þarf að taka það kerfi alveg í gegn frá A til Ö, það er bara spurning hver vill taka þann bolta,“ segir Bergur Þorri Benjamínsson formaður Sjálfsbjargar um bifreiðastyrki, til dæmis fyrir einstaklinga sem þurfa að nota hjólastól.

Komin í einangrun stuttu fyrir Söngvakeppni Sjónvarpsins
Nú blæs duglega á móti systkinunum í Amarosis sem munu keppa í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár en Ísold Wilberg hefur greinst með Covid-19 og er þar af leiðandi í einangrun. Þau hafa því þurft að aflýsa æfingum fyrir undanúrslitakvöldið sem nálgast óðfluga.

Hulda hreppti annað sætið í World Top Model keppninni
Fegurðardrottningin Hulda Vigdísardóttir hreppti annað sætið í World Top Model keppninni sem fór fram um helgina. Keppnin var haldin í New York og er hluti af tískuvikunni þar. Þetta var í fyrsta skipti sem keppandi frá Íslandi tekur þátt.

Ástin sigraði þegar Sólbjört og Einar trúlofuðu sig
Ástin virðist hafa sigrað en dansarinn Sólbjört Sigurðardóttir og Einar Stefánsson sem er trommarinn í Hatara og gítarleikari Vök voru að trúlofa sig. Spurningin var borin upp á sjálfan Valentínusardaginn svo rómantíkin hefur verið allsráðandi hjá þeim á deginum.

„Þessi greyið kona þurfti að sitja þarna með mér á meðan ég grét ofan í trufflu makkarónurnar og ostinn“
Grínistinn Seth Rogen rifjar upp sitt allra versta stefnumót til þessa í þættinum hjá Jimmy Kimmel. Sem betur fer er langt síðan hann upplifði atvikið en hann kynntist eiginkonu sinni Lauren Miller árið 2004.

Byrjaði sem markaðsstönt en fór síðan út í meiri væntumþykju og vináttu
Hann er rétt rúmlega tvítugur en er orðinn ein stærsta TikTok stjarna landsins með yfir 35 þúsund fylgjendur.

Full flugvél Icelandair lent á Kúbu í tilefni stórafmælis Guðjóns í OZ
Guðjón Már Guðjónsson, eigandi og framkvæmdastjóri tæknifyrirtækisins OZ, fagnar fimmtugsafmæli sínu á morgun. Guðjón Már verður að heiman á sjálfan afmælisdaginn en þó í góðra vina hópi í afmælisferð á Kúbu.

Ljáir jaðarsettum einstaklingum rödd í nýju hlaðvarpi
Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason er farinn af stað með glænýtt hlaðvarp, Ósýnilega fólkið. Í hlaðvarpinu fá hlustendur að kynnast jaðarsettum einstaklingum í samfélaginu og heyra persónulegar sögur þeirra.

Júníus Meyvant og KK frumsýna nýtt lag og myndband
Júníus Meyvant og KK voru að gefa út lagið Skýjaglópur en lagið og textinn er samið af Júníusi og er hvoru tveggja mjög hugljúft. „Hvað myndi KK gera?“ og trúin var að hluta til innblásturinn á bakvið lagið sem þeir unnu svo saman.

Beggi Ólafs og Hildur Sif hætt saman
Fyrirlesarinn og doktorsneminn Beggi Ólafs og Hildur Sif Hauksdóttir, sérfræðingur hjá SaltPay, eru hætt saman eftir rúmlega átta ára samband.

Euphoria æði á samfélagsmiðlum
Þættirnir Euphoria hafa vakið mikla athygli frá því að fyrsta serían kom út en eftir að önnur serían kom virðast þættirnir vera að gera allt vitlaust á samfélagsmiðlum. Áhorf þáttanna tvöfaldaðist frá fyrstu til annarrar seríu og förðunin og tískan í þáttunum hefur farið eins og stormsveipur um netheimana.

„Ef þið viljið fá alla söguna, þá verðið þið bara að kaupa bókina“
„Ég veit ekki hvað hefur ekki gerst hjá Kanye West í þessari viku!“ segir Birta Líf Ólafsdóttir. Vikan hefur verið viðburðarík í lífi tónlistarmannsins sem hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum undanfarin misseri. Það skal þó tekið fram að West er með geðhvarfasýki sem hann opnaði sig um fyrir fjórum árum síðan.

Gæti opnað afeitrunarstöð fyrir íslenskar konur sem eru háðar Pepsi Max
Í þættinum Spegilmyndin á Stöð 2 í gærkvöldi var fjallað um mismunandi mataræði sem fólk hefur verið að nýta sér í gegnum tíðina.

Chris Burkard selur ljósmyndir til að safna fyrir fjölskyldu Haraldar
Ljósmyndarinn og Íslandsvinurinn Chris Burkard hefur sett af stað söfnun fyrir fjölskyldu flugmannsins Haraldar Diego, sem lést í flugslysi við Þingvallavatn fyrr í mánuðinum.

Kynnar á Óskarsverðlaunahátíðinni eftir þriggja ára hlé
Eftir þrjár Óskarsverðlaunahátíðir í röð án kynnis verður nú breyting á. Þrjár konur – þær Regina Hall, Amy Schumer og Wanda Sykes – munu sameiginlega taka að sér hlutverkið á 94. Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer 27. mars næstkomandi.

Sváfu úti í 27 stiga frosti: „Það sem var erfitt áður er núna ekkert mál“
Tuttugu manna hópur á vegum Ferðafélags Íslands var staddur á Þingvöllum um helgina á vetrarmennskunámskeiði og fólst það meðal annars í því að gista yfir nótt í tjaldi. Frost fór niður í 27 gráður um nóttina og segist einn útilegumanna aldrei hafa upplifað annað eins.

Kanye West og Julia Fox hætt saman
Tónlistar- og athafnamaðurinn Ye, sem almennt er þekktur sem Kanye West, og leikkonan og módelið Julia Fox, eru haldin hvort sína leið. Þau voru saman í um mánuð.

Hlátrasköll og faðmlög hjá fólkinu á bak við Verbúðina
Áttundi og síðasti þáttur Verbúðarinnar var sýndur á RÚV í gær eins og fór eflaust ekki framhjá neinum. Leikarar og aðstandendur hittust á Ölveri í gærkvöldi.

Sendi Valentínusarkveðju á ástina sína í kvöldfréttum
Elskendur hafa margir haldið Valentínusardaginn hátíðlegan í dag með blómum, böngsum og súkkulaðimolum. Við litum við í blómabúð þar sem rómantískt andrúmsloftið var nánast áþreifanlegt. Þar ræddum við við blómasala og tvo rómantíkusa, sem voru í leit að gjöfum fyrir maka sína í tilefni dagsins.

Hugmyndir fyrir Valentínusarsófakúrið
Í dag er Valentínusardagurinn, dagur ástarinnar og eru eflaust einhverjir sem ætla að taka stefnumót með ástinni sinni sem endar jafnvel upp í sófa að kúra yfir mynd. Færðin í dag er ekki upp á marga fiska svo það er upplagt að hafa stefnumótið heima, elda góðan mat eða jafnvel sækja veitingar af uppáhalds staðnum og velja svo ástarmynd af þessum lista.

Snoop Dogg og Kelly Clarkson kynnar í bandarísku útgáfunni af Eurovision
Bandaríkjamenn ætla að halda sína eigin útgáfu af Eurovision, Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva. Svo virðist sem keppnin muni einfaldlega einfaldlega heita American Song Contest.

Kanye herjar á Pete Davidson: „Sjáið þennan fávita“
Tónlistarmaðurinn Kanye West hefur farið stórum á Instagram um helgina en hann hefur greinilega haft Pete Davidson, kærasta Kim Kardashian fyrrverandi konu Kanye og grínista, á heilanum.

Stjörnulífið: Íslendingar flýja vonda veðrið
Svo virðist sem allir og amma þeirra séu erlendis þessa dagana. Kannski ekki skrítið að fólk stökkvi upp í flugvél þegar veðrið er svona leiðinlegt hér á klakanum.

Steindi og Anna Svava í miklum vandræðum með kransakökurnar
Í þættinum Blindum bakstri á Stöð 2 í gærkvöldi fengu þau Steinþór Hróar Steinþórsson og Anna Svava Knútsdóttir það verkefni að baka kransakökur eftir leiðbeiningum frá Evu Laufey.

Hálfleikssýning Ofurskálarinnar vakti upp mikla nostalgíu
Ofurskálin fór fram um helgina og var það var stórskotaliðið Dr. Dre, Snoop Dogg, Eminem, Mary J. Blige og Kendrick Lamar sem sáu um skemmtiatriðið í hálfleik. Enginn annar en 50 cent mætti sem óvæntur gestur í atriðinu og Anderson .Paak birtist líka.

„Þetta virkar ekki alveg saman“
Sólborg Guðbrandsdóttir er 25 ára kona sem hefur þrátt fyrir ungan aldur gefið út tvær bækur. Annarsvegar bókina Fávitar og síðan bókina Aðeins færri Fávitar.

Ghostbusters-leikstjórinn Ivan Reitman látinn
Kanadíski kvikmyndaleikstjórinn og framleiðandinn Ivan Reitman er látinn, 75 ára að aldri.

„Árið 1986 voru Einar og Freydís mjög dugleg að dansa TikTok“
„Ef þið vissuð ekki! ÁRið 1986 voru Einar og Freydís mjög dugleg að dansa TikTok með börnunum sínum og Hörpu.“

Nostalgía í því að skrifa eða fá sent eldheitt ástarbréf
Ástin svífur yfir vötnum um þessar mundir enda er Valentínusardagurinn á mánudag. Ákvað Pósturinn að leggja sitt af mörkum og aðstoða Amor við að hugsanlega kveikja smá ástarbál í brjósti þjóðar.

Stökkið: „Ég veit ekki betur en að ég sé eini Íslendingurinn í Kyoto eins og er“
Fatahönnuðurinn Sigmundur Páll Freysteinsson er búsettur í Kyoto í Japan og stundar þar mastersnám í fatahönnun með áherslu á textíl og sjálfbærni. Þar sem strangt bann var sett á landamærin vegna heimsfaraldursins er hann einn eins og er en eiginkona hans Ída Pálsdóttir og dóttir þeirra Kaía Blær koma loksins til hans í mánuðinum.