

María Gomez, matgæðingur og áhrifavaldur, deilir hér sumarlegri og ljúffengri grilluppskrift sem er tilvalin að bjóða upp á sólríkum sumardegi.
Leikarinn Ari Freyr Ísfeld Óskarsson leikari og Vigdís Perla Maack, sýningarstjóri í Þjóðleikhúsinu og verkefnastjóri, eignuðust stúlku þann 7. júní síðastliðinn. Vigdís lýsir fæðingu dótturinnar á einlægan og kómískan hátt í færslu á samfélagsmiðlum.
Alfreð Finnbogason knattspyrnumaður og Fríða Rún Einarsdóttir létu skíra dóttur þeirra við fallega athöfn á dögunum. Stúlkan fékk nafnið Eva Kolbrún. Seinna nafnið er í höfuðið á móður Fríðu.
Við Vatnsholt í Reykjavík er að finna tignarlegt parhús sem var byggt árið 1965. Húsið hefur verið innréttað á sjarmerandi máta þar sem klassískar hönnunarmublur eru í forgrunni. Óskað er eftir tilboði í eignina.
„Maður var kannski búinn að sakna þess innst inni að koma fram í tónlistinni,“ segir leikarinn og tónlistarmaðurinn Haraldur Ari, sem er að fara af stað með nýtt sóló verkefni. Hann og æskuvinur hans Unnsteinn Manúel voru að senda frá sér lagið Til þín en blaðamaður ræddi við þá um tónlistina og vináttuna.
Guðrún St. Guðbrandsdóttir, forseti Hinsegin Vesturlands, segir heilan helling framundan á Brákarhátíð og Hinseginhátíð Vesturlands sem fer fram um helgina.
Hvað er dásamlegra en sólríkar sumarnætur í guðs grænni náttúrunni í góðum félagsskap? Að mati margra er það ómissandi þáttur af sumrinu. Þegar kemur að því að pakka niður fyrir ferðalagið er að mörgu að huga fyrir utan þann grunnbúnað sem fylgir útilegunni.
Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á fimmtudögum á Stöð 2, Vísi og á Stöð 2+.
Damon Younger leikari, sem heitir sínu rétta nafni Ásgeir Þórðarson, og Ásdís Spanó myndlistarkona eru hætt saman eftir átta ára samband. Damon greinir frá sambandslitunum í einlægri færslu á Facebook á dögunum.
Landsliðskona í körfubolta og slökkviliðsmaður, frændsystkini sem komust bæði inn í læknisfræðideild Háskóla Íslands í ár, segja þessi tímamót hafa komið þeim mikið á óvart. Hvorugt þeirra hafi í upphafi stefnt á þá vegferð.
Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Ágúst Beinteinn, jafnan þekktur sem Gústi B, er genginn út. Kærastan heitir Hafdís Sól, fyrrum fimleikadrottning og nemi í rekstrarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Sömuleiðis er hún besta vinkona Friðþóru kærustu súkkulaðistráksins Patriks Atlasonar, sem er besti vinur Gústa B.
Smárabíó bauð upp á sérstaka snigla sýningu í gærkvöldi á mótorhjólamyndina Bikeriders. Um það bil 70 meðlimir Sniglanna komu í hópkeyrslu á sýninguna klædd í leðurföt og með hjálma.
Ingi Hilmar Thorarensen fór eins langt út fyrir þægindarammann og hann gat hugsað sér þegar hann ákvað að kýla á það að verða hluti af risastórri bandarískri raunveruleikaseríu ásamt kærustu sinni Coronu.
Við Byggðarholt í Mosfellsbæ er að finna einstaklega fallegt 180 fermetra einbýlishús á einni hæð sem var byggt árið 1977. Húsið er innréttað á sjarmerandi máta og fengið heilmikla yfirhalningu og endurbætur á síðustu árum með tilliti til hins upprunalega byggingarstíls.
Stjarneðlisfræðingurinn og vísindamiðlarinn bandaríski Neil deGrasse Tyson heimsótti í dag jarðhitasýninguna við Hellisheiðarvirkjun. Jarðhitasýningin er eins konar fræðslusetur þar sem gestir geta lært um hvernig jarðvarmi er nýttur til að framleiða rafmagn fyrir landið og heitt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið.
Hinir geysivinsælu þættir Viltu finna milljón? sem eru í umsjón Hrefnu Bjarkar Sverrisdóttur og Arnars Þórs Ólafssonar, hefja göngu sína á ný á Stöð 2 í vetur.
Einkaþjálfarinn, áhrifavaldurinn og nú listamaðurinn Guðmundur Emil Jóhannsson, betur þekktur sem Gummi Emil, hefur hafið sölu á bolum með áletruninni Free Gemil eða frelsum Gemil. Hann segir ágóðann af bolasölunni fara uppi í málskostnaðinn en hann var nýverið dæmdur í þrjátíu daga óskilorðsbundið fangelsi.
Pétur G. Markan bæjarstjóri Hveragerðis og eiginkona hans Margrét Lilja Vilmundardóttir prestur hafa sett einbýlishús sitt við Austurgötu í Hafnarfirði á sölu. Húsið var byggt árið 1906. Ásett verð er 91,9 milljónir.
Góð stemning var í Snæfellsjökulshlaupinu síðastliðinn laugardag þegar hlauparar hlupu tuttugu og tvo kílómetra frá Arnarstapa yfir jökulhálsinn til Ólafsvíkur.
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir er komin á fast. Sá heppni heitir Charlie Christie og vinnur hjá útgáfurisa í tónlistarbransanum í Los Angeles.
Linda Benediktsdóttir, uppskriftahöfundur og matgæðingur, deilir hér sumarlegri og ljúffengri grilluppskrift sem er tilvalin að bjóða upp á í útilegunni í sumar.
Ástarsamband ruðningsleikmannsins Travis Kelce og súperstjörnunnar Taylor Swift hefur vakið mikla athygli um allan heim enda er Swift ein frægasta kona jarðar um þessar mundir, með fjórtán Grammy verðlaun undir beltinu. Kelce ræddi opinskátt um ástina í hlaðvarpsviðtali á dögunum þar sem hann opnar sig meðal annars um það hvernig hann féll fyrir poppstjörnunni.
Sumar UNBOXING Blökastsins verður haldið í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 klukkan 19:30, föstudaginn 28. júní.
Shifty Shellshock, söngvari hljómsveitarinnar Crazy Town, er látinn 49 ára að aldri. Söngvarinn, sem heitir Seth Binzer, lést í gær samkvæmt upplýsingum frá réttarmeinafræðingum í Los Angeles. Söngvarinn fannst látinn heima hjá sér en ekkert hefur verið gefið upp um dánarorsök.
Thelma Thorarensen, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Kea hótelum, hefur sett glæsilega íbúð við Jötunsali í Kópavogi á sölu. Um er að ræða 210 fermetra þakíbúð með stórbrotnu útsýni. Ásett verð er 159,9 milljónir.
Íslenska hljómsveitin Kaleo hitti bandarísku stórstjörnuna Cher á dögunum á tónleikaferðalagi þeirra um Norður Ameríku. Hljómsveitin birti mynd af þeim með tónlistarkonunni á Instgram.
Tamayo Perry, brimbrettakappi og leikari, lést eftir að hafa orðið fyrir árás hákarls við strendur Hawaii.
Nýgiftu hjónin Mariane Sól Úlfarsdóttir Hame og Kristján Eldur Aronsson eru búin að vera saman síðan þau voru unglingar. Þau áttu drauma brúðkaupsdag í Reykjavík og njóta nú saman í ævintýralegri brúðkaupsferð. Mariane ræddi við blaðamann um brúðkaupið.
Brasilíska ofurfyrirsætan Alessandra Ambrósio hefur verið á ferðalagi um Ísland síðastliðna daga. Ambrósio er hvað þekktust fyrir að ganga pallana á árlegri tískusýningu fyrir nærfatarisann Victoria's Secret.
Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri og fyrrverandi forsetaframbjóðandi hyggst senda sjálfboðaliðum sínum yfir þúsund þakkarkort og lætur fylgja með birkifræ í hverju einasta korti. Hún er búin að pakka inn fjögur hundruð kortum en á rúm sexhundruð eftir.