Lífið

Lenya Rún og Siffi G nýtt par
Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, og Sigurjón Guðjónsson rannsóknarsálfræðingur eru nýtt par.

Matti úr Hatara til Þjóðleikhússins
Matthías Tryggvi Haraldsson, leikskáld og sviðshöfundur, hefur verið ráðinn í starf listræns ráðunautar Þjóðleikhússins. Matthías hefur víðtæka reynslu úr íslensku leikhús- og menningarlífi en er þekktastur fyrir leikverk sín og þátttöku í hljómsveitinni Hatara.

NCIS-stjarnan David McCallum er látinn
Breski leikarinn David McCallum, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í þáttunum The Man From U.N.C.L.E frá sjöunda áratugnum og í seinni tíð þáttunum NCIS, er látinn. Hann varð níræður.

Náði að fjarlægjast ástarsorgina með tónlistinni
„Þetta lag fjallar um að komast út úr erfiðu tímabili og inn í nýjan kafla. Fyrsta platan mín var mjög mikið um ástarsorg og þetta lag er smávegis leiðin út úr því,“ segir tónlistarkonan Nína Solveig Andersen, jafnan þekkt sem Lúpína, um nýja lagið sitt Yfir skýin.

Segir erfitt að átta sig á hvað Bruce Willis geri sér grein fyrir
Emma Heming Willis, frumkvöðull, fyrirsæta og eiginkona Bruce Willis, Hollywood leikara, segir erfitt að vita hvort að hann geri sér grein fyrir því að hann sé heilabilaður. Viðtal við Emmu má horfa á neðst í fréttinni.

Gleði og margmenni á frumsýningu Soviet Barbara í Bíó Paradís
Kvikmyndin Soviet Barbara eftir Gauk Úlfarsson var frumsýnd í Bíó Paradís síðastliðinn miðvikudag. Húsfyllir var á frumsýningunni og góð stemning eins og sjá má á myndum hér fyrir neðan.

Svandís matvælaráðherra hefur eignast nöfnu í Keldudal
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra hefur eignast nöfnu en það er kýr á bænum Keldudal í Hegranesi í Skagafirði. Kýrin, sem er rétt rúmlega eins árs þykir efnileg og á vonandi eftir að mjólka mikið í framtíðinni.

GameTíví: Bankar rændir og dýrin slást
Strákarnir Í GameTíví hafa í nógu að snúast í streymi kvöldsins. Framin verða bankarán, eða þeir munu allavega reyna að fremja bankarán, í leiknum Payday 3.

Lið FM957 byrjar vel í leiknum Leikið um landið
Lið FM957 sigraði fyrstu þrautina í leiknum Leikið um landið sem fór fram fyrr í dag. Í leiknum skora Bylgjan, FM957 og X977 á hver aðra í skemmtilegum þrautabrautum víða um land.

Borguðu fyrir máltíðir allra til að fá staðinn út af fyrir sig
Söngkonan Taylor Swift er sögð hafa greitt fyrir mat allra sem snæddu á veitingastað í Kansas gegn því að þeir myndu yfirgefa staðinn. Vildi hún geta borðað þar í friði á stefnumóti sínu með ruðningskappanum Travis Kelce.

Grímur og Svanhildur giftu sig á spænskum herragarði
Grímur Garðarsson eigandi Bestseller á Íslandi og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir fjárfestir gengu í það heilaga á spænsku eyjunni Mallorca um helgina.

Kutcher stígur til hliðar eftir umdeilt meðmælabréf
Bandaríski leikarinn Ashton Kutcher hefur ákveðið að stíga til hliðar sem formaður samtakanna Thorn sem vinna gegn kynferðisofbeldi og mansali. Eiginkona hans og leikkonan Mila Kunis stígur einnig úr sínu hlutverki í samtökunum.

Sophia Loren vistuð á spítala
Ítalska leikkonan Sophia Loren var í dag send í aðgerð eftir að hafa fallið illa á heimili sínu í Sviss. Mun aðgerðin hafa gengið vel að sögn talsmanns hennar.

Æsispennandi slagur milli útvarpsstjarna berst um landið
Bylgjan, FM957 og X977 hafa skorað á hver aðra í þrautabraut Leikið um landið. Þrjú vel mönnuð lið lögðu af stað í dag í fjögurra daga hringferð þar sem stórskemmtilegar áskoranir bíða þeirra víða um land og við ætlum ekki að missa af neinu.

Kelly Clarkson kom götulistamanni á óvart
Tónlistarkonan Kelly Clarkson kom götulistamanni í Las Vegas á óvart á dögunum. Clarkson var að eigin sögn að setja pening í fötu listakonunnar sem söng lög eftir Tinu Turner af mikilli ástríðu.

Saga Garðars blómleg á uppistandi: „Það er nýtt barn á leiðinni“
Leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir og tónlistarmaðurinn Snorri Helgason eiga von á sínu öðru barni í lok árs.

Spjallaði of mikið og gleymdi sér
Í öðrum þætti af Útliti kepptu sjö hæfileikaríkir förðunarfræðingar í tveimur spennandi og krefjandi áskorunum.

Hulk Hogan orðinn giftur maður
Glímukappinn fyrrverandi Hulk Hogan gekk í það heilaga um helgina. Þetta er í þriðja sinn sem hann gengur í hjónaband en einungis tveir mánuðir eru síðan hann trúlofaðist.

Tveggja barna faðir aðeins 25 ára
Jakob Birgisson skemmtikraftur og handritshöfundur og Sólveig Einarsdóttir, eignuðust stúlku 26. ágúst síðastliðinn. Stúlkan hefur verið nefnd Sigríður.

Frábær nostalgíu kvöldstund með öllum lögunum sem þú elskar
Tónlistarveislan Aftur í tímann hefst á Grímsborgum laugardaginn 7. október en þar fara gestir aftur í tímann til níunda áratugar síðustu aldar.

Víkingur Heiðar fær fimm stjörnur frá The Guardian
Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson fær fimm stjörnur frá gagnrýnanda The Guardian fyrir flutning sinn á Goldberg Variations eftir Johann Sebastian Bach. Hlaut Víkingur lófatak sem einungis rokkstjörnur fá segir gagnrýnandinn.

Draumahús Tómasar og Idu varð enn fallegra
Viðskiptamaðurinn Tómas Þóroddsson hefur endurgert fallegt einbýlishús í Skógsnesi á Suðurlandinu. Húsið var til umfjöllunar í síðasta þætti af Bætt um betur á Stöð 2.

Stjörnulífið: Stórafmæli, skvísupartý og ástin
Síðastliðin vika einkenndist af tímamótum hjá íslensku stjörnunum. Stórafmæli, nýtt snyrtivörumerki og ferðalög voru áberandi á samfélagsmiðlunum.

„Vissi strax hvað hafði gerst“
Ingólfur Davíð Sigurðsson þurfti að fara í gegnum þá lífsreynslu að jarða son sinn eftir of stóran skammt af lyfjum.

Kyndir undir orðróminn um nýtt ástarsamband
Síðustu daga hefur mikið verið rætt um meint ástarsamband bandarísku tónlistarkonunnar Taylor Swift og bandaríska fótboltakappans Travis Kelce sem spilar með Kansas City Chiefs. Segja má að söngkonan hafi heldur betur kynt undir orðróminn eftir að hafa mætt á leik Chiefs og Chicago Bears á Arrowhead-vellinum í Kansas City í kvöld.

Er siðferðislega í lagi að taka „instamyndir“ við minnisvarðann um helförina?
Reglulega blossa upp umræður í athugasemdakerfum samfélagsmiðla þar sem notandi birtir mynd af sér, uppstilltum, brosandi eða jafnvel með stút á vörunum við minnisvarða um hörmungar fyrri tíma. Þetta hefur verið sérstaklega áberandi í tengslum við hinn mikla minnisvarða um helförina í þýsku höfuðborginni Berlín og sýnist sitt hverjum.

Fékk millinafnið svo hún yrði ekki önnur Edda Björgvins
Edda Lovísa Björgvinsdóttir segir því hafa fylgt ákveðin pressa að bera nafn ömmu sinnar Eddu Björgvinsdóttur. Foreldrar hennar hafi gefið henni millinafnið Lovísa ef ske kynni að nafnið væri of stórt til að bera. Hún segir fjölskylduna hafa átt erfitt með OnlyFans ferilinn í upphafi og segist Edda stefna á kvikmyndagerð.

Usher sér um hálfleikstónleika Ofurskálarinnar
Bandaríski tónlistarmaðurinn Usher mun mun troða upp í hálfleik Ofurskálar NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta á næsta ári.

„Heiðrum minningu hans í dag“
„Námið við Söngskólann í Reykjavík var stór þáttur í vegferð minni,“ segir Eivör Pálsdóttir söngkona. Hún er meðal þeirra gesta sem koma fram á 50 ára afmælishátíð Söngskólans í Reykjavík sem haldin verður í dag.

Einstakar ljósmyndir sýna stemninguna á Kvennafrídeginum árið 1975
24. október 1975. Tugir þúsunda íslenskra kvenna ganga út af vinnustöðum sínum og safnast saman á einum stærsta útifundi Íslandssögunnar. Fjölmargir fundir eru haldnir um allt land sem eru einnig vel sóttir. Karlmennirnir sitja eftir og sinna ritstörfum, símavörslu, móttöku og barnagæslu. Kvennafrídagurinn er runninn upp.