
Skoðun

Hvenær á að skattleggja lífeyrissjóðsgreiðslur?
Lengi hafa verið deildar meiningar um skattlagningu lífeyris. Ekki hvort eigi að skattleggja lífeyri heldur hvenær, við greiðslur í sjóðinn eða þegar greitt er úr honum.

Við erum heit, græn og orkumikil – gerum kröfur um sjálfbærni, nýsköpun og betri nýtingu auðlinda!
Við í Suðurkjördæmi búum á heitasta svæði landsins, þar sem fjögur háhitasvæði og jarðvarmavirkjanir veita okkur einstaka orkuauðlind. En það er ekki nóg að nýta þessar auðlindir eingöngu til rafmagnsframleiðslu eða húshitunar.

Kæru smiðir, hárgreiðslufólk og píparar!
Lokun ehf-gatsins snýst um að tekjur einstaklinga umfram 1,3 milljónir á mánuði beri sama skatt – hvort sem þær eru teknar út sem arður eða laun. Lokun ehf-gatsins hefur þess vegna engin áhrif á fólk sem er með mánaðarlegar tekjur undir þessum mörkum. Þetta þarf að vera alveg á hreinu.

Vilja miklu stærra bákn
Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.

Vantar fleiri lyftara í heilbrigðiskerfið?
Stjórnmálamönnum hefur verið tíðrætt um sóun í heilbrigðiskerfinu á undanförnum árum. Minna hefur verið um raunhæfar lausnir til að takast á við vanda heilbrigðiskerfisins.

Inngilding – nýyrði sem enginn skilur?
Ég ætla að rekja hér aðeins merkingu orðsins inngilding því ég held að margt fólk hafi misskilið það, og nú er það allt í einu á milli tannanna á fólki í aðdraganda kosninga.

Að sætta sig við brot á samkomulagi eða ekki
Árið 2016 skrifuðu forsvarsmenn kennara undir samning (samkomulag) við aðila á vegum íslenska ríkisins og sveitarfélaga landsins. Eitthvað hefur það vafist fyrir mönnum hverjar hinar svokölluðu ,,kröfur” kennara eru í þessari baráttu eru og þess vegna langar mig að setja upp litla dæmisögu:

Afhendum raunverulegum eigendum hlut sinn í Íslandsbanka til jafns
Í gær kynntum við kosningaáherslur Miðflokksins. - Ekki alla stefnu flokksins heldur stefnu í þeim málaflokkum sem hafa áhrif á alla hina. Skyndilegt fall ríkisstjórnarinnar hafði ýmsa kosti. Meðal annars þann að ekki gafst tækifæri til að klára ýmis mál þar sem var hægt og þarf að gera betur.

Geðheilbrigðismál og landsbyggðin
Því miður er það svo og hefur verið alla tíð – að geðsjúkdómar og meðhöndlun þeirra er ekki litin sömu augum og meðferð annarra meinsemda. Geðheilbrigðismál rata einkum í umræðuna þegar skelfileg áföll dynja á samfélaginu eins og gerst hefur ítrekað á þessu ári. Þá vakna stjórnmálamenn og tjá sig um nauðsyn breytinga. Það er jákvætt en þessi mál verða ekki löguð í átaksverkefnum. Það þarf að gera breytingar. Nýja forgangsröðun.

Er píparinn þinn skattsvikari?
"Lokum ehf-gatinu með aðferðum sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum til að koma í veg fyrir að launagreiðslur séu ranglega taldar fram sem fjármagnstekjur."

Frelsi til að búa þar sem þú vilt
Áður en tæknin og aukning í notkun fjarvinnutækni varð gat fólk tæplega flutt innanlands nema því stæði til boða atvinna á nýja staðnum. Í dag er komin upp allt önnur staða, góð nettenging er eina sem þarf til að geta sinnt atvinnu hvort sem það er á Siglufirði eða á Djúpavogi.

Kosningar og ,ehf gatið‘
Það er eðlilegt að skattamál beri á góma í aðdraganda kosninga og síðustu daga hefur nokkuð verið rætt um tillögu sem snýr að því að takmarka tekjutilflutning þeirra sem starfa í eigin atvinnurekstri, sem einnig hefur verið kallað ‚að loka ehf-gatinu‘. Sú tillaga felst í því að endurskoða fyrirkomulag reiknaðs endurgjalds og koma í veg fyrir að launatekjur séu ranglega taldar fram sem fjármagnstekjur. Áformin eru umdeild, stjórnmálamenn tala um „meintar skattaglufur“ og telja sumir að tillögurnar hafi sérstaklega neikvæð áhrif á iðnaðarmenn. Hvort tveggja er rangt.

Grípum tækifærin og sköpum bjartari framtíð
Það er margt sem fara má betur á Íslandi í dag. Síðustu ár hafa verðbólga og vextir yfirtekið samtöl yngri kynslóða og hversu erfitt, og jafnvel óraunhæft það virkar að eignast eigið húsnæði í slíkum aðstæðum. Geðheilsa landsmanna fer versnandi, tímafrekt er að fá tíma í heilsugæslu og ekki lækkar verð á vörum og þjónustu.

Kæra unga móðir
Frá einni nýbakaðri móður til annarrar móður: Ég held með þér og vona að það gangi allt vel. Það er þó sjaldnast alveg þannig, hvort sem það er svefnleysi, brjóstagjöfin, kveisa, erfiðleikar við þyngdaraukningu hjá litla krílinu, fæðingarþunglyndi eða hvaðeina.

Niðurskurðarhnífnum beitt á skólana
Allt of gróflega er verið að skera niður, draga úr þjónustu við börn eins og rakið er í mörgum liðum í yfirliti frá skóla- og frístundasviði í Greinargerð fagsviða sem birt var með í Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025.

Verði þitt val, svo á jörðu sem á himni
Andúð á leiðtogum stjórnarflokka vekur upp spurningar um eðli stjórnmálalegrar gagnrýni og hlutverk stjórnarandstöðu í lýðræðislegu samfélagi.

Öryggis annarra vegna…
Ég hef undanfarið rúmt ár fylgst af töluverðum áhuga með vaxandi fjölda manndrápsmála og manndrápstilrauna á Íslandi, og því hvernig íslenska dómskerfið virðist dálítið ráðþrota í slíkum málum.

Verðmæti leikskólans
Verðmæti leikskólans er ótvírætt. Leikskóli sem mannaður er fagfólki og býður börnum upp á nærandi uppeldis- og menntaumhverfi er kjöraðstæður barna. Skóli sem starfar í anda skóla fyrir öll og byggir starfsemi sína á röddum og þörfum barna.

Íslenskur landbúnaður er ekki aðeins arfleifð heldur líka framtíð okkar Íslendinga
Íslenskur landbúnaður er ekki aðeins hluti af arfleifð okkar heldur einnig ómissandi þáttur í framtíð landsins, sjálfstæði og fæðuöryggi þjóðarinnar. Hann er grunnstoð blómlegrar byggðar og efnahagslegs stöðugleika fyrir komandi kynslóðir, auk þess að vera burðarás í sjálfbærni og loftslagsaðgerðum.

Vítahringur ofbeldis og áfalla
Ofbeldi meðal barna og ungmenna hefur farið vaxandi í íslensku samfélagi og er mikið áhyggjuefni. Mikil gagnrýni hefur verið á þá aðstoð og þjónustu sem er í boði fyrir börn og unglinga með fjölþættan vanda og fjölskyldur þeirra.

Heilbrigð sál í hraustum líkama
Grundvallar þörf hverrar fjölskyldu frá vöggu til grafar er traust aðgengi að heilbrigðisþjónustu í heimabyggð. Það vill Flokkur fólksins tryggja.

Að segja bara eitthvað
„Bíddu, geta pólitíkusar bara sagt eitthvað til að verða kosnir og þurfa svo ekkert að standa við það?“ Þessi spurning fyrrum nemanda míns hefur verið mér ansi hugleikin undanfarna daga.

Halldór 9.11.2024
Mynd dagsins eftir Halldór Baldursson.

Litlu fyrirtækin – kerfishyggja og skattlagning
Mikill meirihluti fyrirtækja á Íslandi hefur starfsmannafjölda undir 10 starfsmönnum. Þessi minni fyrirtæki eru bakbein hins íslenska efnahagskerfis og samanstanda af vinnandi fólki á einkamarkaði sem drífur áfram verðmætasköpunina.

„Þörfin fyrir nýtt upphaf: Af hverju hrista þarf upp í stjórnmálum“
Af hverju er nauðsynlegt að breyta um stefnu þegar ríkjandi flokkar hafa staðið sig illa?

Reiknileikni Sambandsins
„Kjör kennara hafi vaxið langt umfram almennan markað“

Vegurinn heim
Það er búið að vera ánægjulegt að sjá hvernig Vestfirðir hafa vaxið og dafnað á síðustu árum. Fólki fjölgar og fjölbreyttari atvinnutækifæri verða til með vexti fiskeldis, ferðaþjónustu og Kerecis.

Framsókn setur heimilin í fyrsta sæti
Kæri lesandi.Þann 30. nóvember göngum við að kjörborðinu og veljum okkur fólk til að vera í forystu fyrir íslenskt samfélag næstu fjögur ár. Í þessum kosningum leggjum við í Framsókn þann árangur sem flokkurinn hefur náð í dóm kjósenda og leggjum fram stefnu okkar og framtíðarsýn fyrir íslenskt samfélag. Í þessari grein fjalla ég um hugmyndir okkar um heimilin.

Allt mannanna verk - orkuöryggi á Íslandi
Raforka er ein af grunnþörfum okkar samfélags og er afhendingaröryggi raforku ekki aðeins grundvallarþjónusta heldur einnig lykilþáttur í daglegu lífi landsmanna og í efnahagslegum vexti og velferð landsins.

Hvert er planið?
Það verður sífellt sýnilegra í Íslenskum stjórnmálum hvernig sumir ætla sér áfram til metorða með skítkasti og leiðindum einum saman, en eiga svo fá svör önnur en „við erum með plan“, „af því bara“ eða „ég veit það ekki alveg“, „þegar stórt er spurt“.