Skoðun

Gert að búa á sorphaug við Sævarhöfða
Ég fór í morgun og heimsótti hjólabúa við Sævarhöfða og brá illa við. Þessu fólki er gert að búa á hreinum sorphaug. Af hverju er ekki hægt að finna reit fyrir hjólabúa í borgarlandinu sem er mannsæmandi og nálægt helstu grunnþjónustu?

Stuðningur við fólk með krabbamein á Íslandi og núvitund
Eftir að ég veiktist af krabbameini hef ég kynnst helstu stofnunum á Íslandi og forsvarsmönnum þeirra sem vinna að rannsóknum á sjúkdómnum og veita endurhæfingu í kjölfar krabbameinsmeðferða en krabbamein snertir flesta einhverntíma á lífsleiðinni með einum eða öðrum hætti.

Róum í sömu átt!
Skólamál njóta stöðugt meiri athygli í íslensku samfélagi. Það finnst mér vel enda er það fullkomlega hlutdræg skoðun mín að ekki sé að finna mikilvægari málaflokk til að varpa ljósi á með opinni samfélagsumræðu.

Hræsni Diljár
Í viðtali sem Vísir gerði útdrátt úr og birti í morgun viðrar þingkonan Diljá Mist sem jafnframt er formaður utanríkismála Alþingins mjög skaðlegar hugmyndir og talar af vanþekkingu um málefni innflytjenda, menningu og heimilisofbeldi.

Óupplýsingaröld
Eftir tíu ára skólaskyldu skilur helmingur drengja og þriðjungur stúlkna ekki einfaldan upplýsingatexta. Þessi skortur á grunnlesskilningi sem hefur farið vaxandi undanfarna áratugi þýðir ekki einungis að færri öðlist undirbúning til frekara náms - heldur erum við að horfa upp á framtíðarkynslóðir sem geta hvorki lesið fréttir, skilið stjórnarskrána né fylgst með þjóðfélagsumræðunni - hvað þá tekið þátt í henni.

Lygamörður
Lyga-Mörður var orðið sem kom í huga minn eftir að hafa hlustað á Guðna Ágústsson í viðtali við Jóhönnu Vilhjálmsdóttur í síðdegisútvarpi Bylgjunnar 15. júlí síðastliðinn.

Klæðaleysi keisarans
Hvar væri maður ef ekki væri fyrir menn eins og Ole Anton Bieltvedt sem veitir manni hvert tilefnið á fætur öðru til þess að stinga niður penna og fjalla um Evrópumálin. Málaflokk sem varðar mikilvæga hagsmuni okkar enda snýst hann fyrst og fremst um það hvort við förum áfram með valdið yfir okkar eigin málum eða framseljum það til Evrópusambandsins þar sem vægi okkar færi einkum eftir íbúafjölda landsins.

Rangfærslur um rannsóknarverkefni Running Tide í nýlegri umræðu
Í júnímánuði 2024 var töluverð umfjöllun og umræða um kolefnisbindingu í hafi og Running Tide. Á sama tíma og Running Tide fagnar umræðu um jafn mikilvægt mál, hafa rangfærslur og staðreyndavillur því miður verið áberandi.

Hver eru áhrif þess að selja sumarbústað?
Fastir liðir í útvarpi á sumrin hafa lítið breyst á undanförnum árum. Bylgjulestin er með skottið fullt af stuði, veðurfræðingur svarar fyrir 11 gráður og rigningu og Magnús Hlynur segir frá hundi sem kann eitthvað voða áhugavert.

Vatnið og tíminn
Carbfix-aðferðin við að binda koldíoxíð þarfnast vatns. Ekki með neysluvatnsgæðum en þó ferskvatn eða jafnvel sjó. Sérstaklega verður kannað betur hvort sjór henti aðferðinni. Ferksvatnsstreymi á Íslandi er takmarkað eins og annars staðar og þarft að vita hvort saltvatn dugar til kolefnisbindingar.

„Eru ekki allir pínu einhverfir í dag?“
„Þú ert ekkert einhverf! Hvað meinaru!? Það er ekkert að þér! Láttu ekki eins og smákrakki! Það eru allir með einhverskonar „einkenni“!“

Betri leið til að velja keppendur inn á Ólympíuleika
Ólympíuleikarnir í París hefjast eftir tvær vikur. Fimm Íslendingar taka þátt, sem er vel, þótt mörg okkar myndi eflaust gleðjast ef þau yrðu örlítið fleiri. Er það má síðan spyrja sig: Er er kerfið til að velja fólk inn á Ólympíuleikanna mögulega ekki nægilega sanngjarnt og gegnsætt?

Að verða fórnarlamb íslenskra skattyfirvalda
Tilefni þessarar greinaskrifa er vekja athygli á fimm ára baráttu eftirlaunaþega við Íslensk skattyfirvöld vegna tvísköttunar og synjun um undanþágu á skattlagningu lífeyristekna samkvæmt tvísköttunarsamningi. Þar sem ég bý erlendis og hef gert sl. 18 ár er mér refsað fyrir að yfirgefa Ísland. Borgaðu vinur, ella hefur það afleiðingar. Íslensk skattyfirvöld segja bara, „Ég má“.

Tilgangur atvinnurekstrarbanns
Árið 2022 var samþykkt á Alþingi að breyta lögum um gjaldþrotaskipti á þá leið að lögfesta nýjar relgur um svokallað atvinnurekstrarbann. Í stuttu máli felur það í sér að einstaklingur, sem ekki telst hæfur til að stýra félagi með takmarkaðri ábyrgð vegna skaðlegra og óverjandi viðskiptahátta við stjórnun félags, er með dómi meinað að stjórna félagið með takmarkaðri ábyrgð.

Loftslagsávinningur Coda Terminal er gífurlegur
EFLA verkfræðistofa tók að sér að vinna vistferilsgreiningu á fyrstu stigum hönnunar fyrir Coda Terminal verkefnið. Vistferilsgreining er stöðluð aðferð til að meta umhverfisáhrif framkvæmdar yfir hluta eða alla virðiskeðju framkvæmdarinnar. Umfang þessarar vistferilsgreiningar náði yfir sjóflutninga á milli landa til og frá Coda Terminal, uppbyggingu og rekstur stöðvarinnar og bindingu CO2 yfir 30 ára líftíma stöðvarinnar.

Bóluefni eða veirur
Öðru hverju rata fyrir augu mér textar gegn notkun bóluefna þar sem varað er við skaðsemi þeirra. Ég hefi ekki ástæðu til að ætla að textahöfundum gangi neitt illt til með skrifum sínum en mér sýnist flestum þessum skrifum vera sameiginlegt að þau lýsa þekkingar eða skilningsleysi á því í hverju virkni bóluefna felst og að horft er framhjá því að ræða mikilvægan mun á virkni bóluefna annars vegar og veirusýkinga hins vegar.

Skaðinn í leyndri meðferð á heimilum
Ef það á vera veruleiki allra að lifa við innantengda fjölskyldu? Þá er þjónusta við sannleikann í lífi foreldra fyrsta mikilvæga skrefið og opnunin.

Af glyðrugangi eftirlitsstofnana
Matvælastofnun (MAST) hefur veitt Arnarlaxi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis á þremur stöðum í Ísafjarðardjúpi. Samgöngustofa mat það hinsvegar svo að óheimilt væri að veita leyfi á tveimur staðanna, með tilliti til siglingaöryggis. Niðurstöður áhættumata svæðanna við Eyjahlíð og Óshlíð væru á þann veg að ekki væri ásættanlegt, með tilliti til siglingaöryggis, að leyfa fiskeldi á svæðunum.

Linnulaus þjáning íbúa á Gaza
Gaza er í dag rústir einar. Rúmir níu mánuðir eru nú liðnir frá því hernaðarátök hófust fyrir botni Miðjarðarhafs en umfang og eðli átakanna á Gaza hefur valdið gríðarlegum skaða á fólki, heimilum og öðrum innviðum.

Munurinn á þjóðerniskennd versus sálernis þarfar upplifun
Er veruleiki sem er að koma æ meira í ljós í einstaklingum í dag. Sú tilfinning hefur hugsanlega verið til um aldir. En kemur meira í ljós á tímum auðveldari ferðalaga og upplifunar á öðrum löndum sem og háttum.

Verða rangfærslur að sannleika, ef þær eru endurteknar nógu oft!?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifaði grein hér á Vísi í fyrradag með fyrirsögninni „Reglurnar eru óumsemjanlegar“. Fjallaði hann þar um samningamöguleika ríkja, sem hafa hug á ESB-aðild. Fullyrti hann, að nýtt aðildarríki gæti ekki um neitt samið. Annað hvort gengi það að grundvallarregluverki sambandsins, eins og það er, eða það gæti gleymt ósk sinni um aðild.

Svifhrifavaldar
Í myrkri næturinnar svífa þeir, óséðir og þögulir, eins og óorðinn leyndardómur. Svifhrifavaldar sem líkjast örsmáum, ósýnilegum vetrarbrautum sem leika um andrúmsloftið.

Forseti ÍSÍ hvattur til að hefja tiltektina í eigin starfsemi
Í síðustu viku óskaði Lárus Blöndal, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), eftir því í viðtali við Vísi að stjórnvöld myndu hlutast til um og stöðva starfsemi erlendra veðmálasíðna sem fjöldi Íslendinga kýs að spila á af eigin fúsum og frjálsum vilja. Nefndi Lárus sérstaklega það framferði eins af erlendu fyrirtækjunum að styrkja útilegu nemenda í Verslunarskólanum. Um þann hluta málflutnings Lárusar er hægt að taka heilshugar undir. Ótækt er að veðmála- og happdrættisfyrirtæki stýri markaðssetningu sinni sérstaklega að ungmennum.

Hvernig og hvenær en ekki hvort
Venjulega þykir það góður siður að lesa greinar sem maður hyggst svara áður en maður svarar þeim. Hins vegar má ljóst vera að sumir hafa það ekki að leiðarljósi. Til að mynda minn góði vinur Ole Anton Bieltvedt. Ég fjallaði þannig um það í grein á Vísir.is í gær að reglur Evrópusambandsins væru óumsemjanlegar þegar ný ríki gengju þar inn. Þar vitnaði ég beint til orða sambandsins sjálfs, nánar tiltekið bæklings sem það hefur gefið út til þess að útskýra inngönguferlið. Ole hefði ljóslega afar gott af því að kynna sér efni hans:

Það er víst hægt að semja um aðildarskilmála! Mörg dæmi sanna það!
Hjörtur J. Guðmundsson, sennilega ákafasti ESB-, Evru- og Evrópuandstæðingur landsins, og um leið landsins mesti og hollasti stuðningsmaður Boris Johnson og Brexit, notar sem titil hér á Vísi: Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).

Orðatónar: Aukinn orðaforði og lesskilningur barna með íslenskri tónlist
Íslensk börn hafa alla tíð verið alin upp við ríkulega menningu og fjölbreyttan tónlistararf. Í dag, þegar tæknin og nútímasamfélagið gera meiri kröfur um lesskilning og sköpunargáfu en nokkru sinni fyrr, er mikilvægt að finna nýjar og skapandi leiðir til að efla menntun barna.

Tilfinningalegur athyglisbrestur og heilbrigt tilfinningalíf
Í um 10.000 klukkutíma sem börn - í 10 mánuði á ári í 10 ár er okkur kennt að grípa athyglina okkar og beina henni að hugrænum viðfangsefnum. Einhverjum upplýsingum til að skilja og muna, og geta svo notað. Skiljanlega, því athygli er grundvöllur fyrir nánast öllum lærdómi. Og ef það er athyglisbrestur þá tökum við oft þau skref að breyta efnabúskap heilans. Við tökum inn efni eins og koffín og ADHD lyf til þess að geta leitt hugan að einhverju viðfangsefni og lært.

Reglurnar eru óumsemjanlegar
Til þess að útskýra fyrir almenningi ferlið sem sem fer í gang þegar ríki sækja um inngöngu í Evrópusambandið hefur framkvæmdastjórn sambandsins gefið út sérstakan bækling sem ber heitið „Understanding enlargement“. Þar er meðal annars útskýrt með ágætlega skilmerkilegum hætti hvers eðlis þær viðræður eru sem fram fara á milli Evrópusambandsins og umsóknarríkja í ferlinu. Óhætt er að segja að sú lýsing rími ekki beinlínis vel við fullyrðingar sumra um að hægt sé nánast að semja um hvað sem er við sambandið.

3.200 aumingjar (mín skoðun)
Varðandi þessa fyrirsögn, þá er ég ekki að fullyrða, að þeir menn, sem ég mun fjalla hér um, séu allir aumingjar, hins vegar er það mín skoðun, að svo sé.

Ber endurhæfing ávöxt?
Reykjalundur er stærsta endurhæfingarstöð landsins. Til endurhæfingar á Reykjalundi koma einstaklingar eftir margs konar veikindi, slys og áföll og þar er veitt sérhæfð endurhæfingarþjónusta óháð búsetu.