
Sport

„Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“
Phil Jones, fyrrverandi leikmaður Manchester United, segir að stríðnin sem hann varð fyrir meðan hann var að spila hafi haft mikil áhrif á hann.

Fylgist með þessum í Meistaradeildinni: Stór nöfn á nýjum stöðum
Á vef breska ríkisútvarpsins, BBC, má finna lista af leikmönnum sem vert er að fylgjast með í Meistaradeild Evrópu karla í vetur. Deildarkeppni Meistaradeildarinnar hefst í dag og er fjöldi leikja í beinni útsendingu á rásum Stöðvar 2 Sport.

Dagskráin í dag: Deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu fer af stað
Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld. Hið nýja deildarfyrirkomulag Meistaradeildar Evrópu fer af stað og Meistaradeildarmörkin eru á sínum stað. Þá eru Lokasóknin og leikur í MLB-deildinni í hafnabolta á dagskrá.

„Það er erfitt að loka mótum strákar“
Arnar Gunnlaugsson og Kári Árnason eru samstarfsmenn hjá Íslands- og bikarmeisturum en þegar á golfvöllinn er farið er vináttan tímabundið lögð til hliðar. Sérstaklega ef hvorugur er að eiga sinn besta hring.

Rúnar Páll: Fáránlega mikið af mörkum á okkur sem boðar ekki gott
Fylkir reyndist vera lítil fyrirstaða fyrir Víking í Árbænum í kvöld. Leikið var í 22. umferð Bestu deildar karla og enduðu leikar 0-6 fyrir Fossvogspilta. Þjálfari Fylkis, Rúnar Páll Sigmundsson sá það að liðið hans mætti ofjarli sínum í kvöld.

Aron: Að það þurfi tæklingu til þess að kveikja á liðinu finnst mér lélegt
KR tapaði fimmta leiknum á útivelli í röð í kvöld. Valur vann 4-1 sigur og Aroni Sigurðarsyni, leikmanni KR, fannst úrslitin gefa nokkuð rétta mynd af leiknum.

„Þetta er fokking Valur-KR og ef menn fá ekki að kljást í þeim leik þá er eitthvað að“
Valur vann sannfærandi 4-1 sigur gegn KR á heimavelli. Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Vals, var ánægður með sigurinn.

Arnar: Hleyptum þeim sjaldan úr skotgröfunum
Víkingur mætti heldur betur til leiks í Árbænum í kvöld. Komust snemma yfir og rúlluðu yfir Fylki í 22. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Arnar Gunnlaugsson gat leyft sér að vera stoltur af ýmsu.

Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham
Birmingham City vann Wrexham 3-1 í ensku C-deild karla í knattspyrnu.

Uppgjörið: Valur - KR 4-1 | Valsarar sleppa ekki takinu á Vesturbæingum
Valur vann 4-1 sigur gegn KR á heimavelli. Valsmenn voru 2-0 yfir í hálfleik en í seinni hálfleik gerði KR tilkall til þess að koma til baka en heimamenn svöruðu með tveimur mörkum og unnu sannfærandi sigur.

Undrabarnið Endrick giftur eftir innan við árs samband
Undrabarnið Endrick, framherji Real Madríd og brasilíska landsliðsins, og Gabriely Miranda eru gengin í það heilaga. Parið hefur ekki verið saman lengi en ástin spyr ekki að því.

Kristian Nökkvi metinn á tæplega tvo og hálfan milljarð
Kristian Nökkvi Hlynsson, miðjumaður hollenska stórveldisins Ajax, er þriðji verðmætasti leikmaður hollensku efstu deildar karla í fótbolta sem hefur ekki náð 21 árs aldri. Hann er metinn á tæplega tvo og hálfan milljarð íslenskra króna.

Nýr samningur sagður gera þá bestu að þeirri launahæstu
Aitana Bonmatí, besta knattspyrnukona heims um þessar mundir, hefur framlengt samning sinn við Evrópu- og Spánarmeistara Barcelona. Samningurinn er sagður gera hana að launahæstu knattspyrnukonu heims.

Uppgjörið: Fylkir - Víkingur- 0-6 | Miskunnarlausir Víkingar á toppnum
Íslandsmeistarar Víkings komu, sáu og sigruðu lánlausa Fylkismenn í Árbænum fyrr í kvöld. Frammistaða Víkings var næsta óaðfinnanleg og enduðu þeir á því að skora sex mörk í leiðinni í toppsæti deildarinnar.

Höjlund enn fjarri góðu gamni en varnarþríeykið klárt í slaginn
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, hefur staðfest að framherjinn Rasmus Höjlund sé ekki klár í slaginn fyrir deildarbikarleikinn gegn C-deildarliði Barnsley. Varnarmenn liðsins sem höltruðu af velli um helgina eru hins vegar klárir í slaginn.

Englandsmeistarinn Ingle með slitið krossband
Englandsmeistarar Chelsea hafa orðið fyrir áfalli þegar gríðarlega stutt er í að ofurdeild kvenna í fótbolta fari af stað á nýjan leik. Hin 33 ára gamla Sophie Ingle sleit nefnilega krossband í hné í vináttuleik á dögunum og verður ekki með á komandi leiktíð.

Langyngst og eina konan í framboði til forseta IOC
Sjö manns sækjast eftir því að verða næsti forseti Alþjóða ólympíusambandsins, IOC, í mars á næsta ári þegar núverandi forseti, Thomas Bach, lætur af störfum.

Áfall fyrir Barcelona
Meistaradeild Evrópu hefst í vikunni en þar verður enginn Dani Olmo á ferðinni því spænski Evrópumeistarinn verður frá keppni næstu fjórar til fimm vikurnar vegna meiðsla.

Sagði fjölmiðlum að hætta að kalla Valgeir „Friðriksson“
Valgeir Lunddal lék sinn fyrsta leik fyrir Fortuna Düsseldorf í gær, í þýsku 2. deildinni í fótbolta. Fjölmiðlafulltrúi þýska félagsins nýtti tækifærið til að kenna fjölmiðlum rétta notkun á nafni Íslendingsins.

Graham Potter verður á Hlíðarenda í kvöld
Enski knattspyrnuþjálfarinn Graham Potter er staddur hér á landi og verður í stúkunni þegar Valur mætir KR í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.

Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið
Arnar Pétursson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta, hefur valið sextán leikmenn í landsliðshóp fyrir æfingamót í Tékklandi síðar í þessum mánuði.

Fannst mark Gabriels vera ólöglegt
Að mati sérfræðinga Sky Sports átti að dæma eina markið í Norður-Lundúnaslag Tottenham og Arsenal af.

Laus við veikindin og klár í slaginn
Gylfi Þór Sigurðsson hefur æft af krafti með Valsmönnum eftir nýafstaðið landsleikjahlé og veikindi sem hann glímdi við aftra honum ekki frá því að spila við KR að Hlíðarenda í kvöld.

„Ósanngjarnt“ að kærastinn fái margfalt meira fyrir sömu vinnu
Knattspyrnuparið Alisha Lehmann og Douglas Luiz færði sig um set í sumar, frá Aston Villa til Juventus, en óhætt er að segja að launakjör þeirra hjá ítalska risanum, rétt eins og á Englandi, séu gjörólík.

Kyssti andstæðing í miðjum bardaga
Sérkennilegt atvik kom upp í bardaga Seans O’Malley og Merabs Dvalishvili í UFC 306 um helgina.

Gat ekki kastað því liðsfélaginn ældi á boltann
Furðulegt atvik átti sér stað í leik Green Bay Packers og Indianapolis Colts í NFL-deildinni vestanhafs í gær. Magapest sóknarlínumanns fyrrnefnda liðsins hafði áhrif á leikinn.

Neymar fannst helvíti líkast að spila með Mbappé
Brasilíumaðurinn Neymar þoldi ekki að spila með Kylian Mbappé hjá Paris Saint-Germain og varaði landa sína hjá Real Madrid við honum.

Klutz réði ekkert við GoldDiggers
Baráttan var hörð og ýmislegt gekk á í 2. umferð Míludeildarinnar í Valorant á föstudagskvöld þar sem sannfærandi sigur GoldDiggers á Klutz kom lýsendunum Mist Reykdal Magnúsdóttur og Daníel Mána Óskarssyni einna helst á óvart.

Hljóp á ljósmyndara en setti met
Minnstu munaði að tillitslaus ljósmyndari ylli því að tvöfaldi ólympíumeistarinn Beatrice Chebet næði ekki að klára 5.000 metra hlaupið á Demantamótinu í Brussel á föstudagskvöld.

Sjáðu markaflóðið úr Bestu deild karla í gær
Sextán mörk voru skoruð í leikjunum fjórum í Bestu deild karla í gær. Þau má öll sjá í fréttinni.