Sport

Willum Þór með stoðsendingaþrennu í stórsigri
Willum Þór Willumsson lagði upp þrjú mörk þegar Birmingham City lagði U-21 lið Fulham 7-1 í EFL-bikarnum á Englandi. Alfons Sampsted lagði upp sjöunda mark Birmingham.

„Hefði viljað fá að lemja Elvar aðeins meira“
Ísak Gústafsson átti góðan leik fyrir Val er liðið tók á móti toppliði þýsku úrvalsdeildarinnar, MT Melsungen, í fjórðu umferð Evrópudeildar karla í handbolta í kvöld.

Alexis: Þetta gefur okkur mikið sjálfstraust
Alexis Morris, leikmaður Grindavíkur, var hetja liðsins þegar Grindavík lagði Keflavík í háspennuleik í Smáranum í kvöld. Morris Skoraði 34 stig og seinustu tvö stigin frá henni tryggðu sigurinn fyrir heimakonur í leiknum sem endaði 68-67.

„Man ekki eftir að hafa tapað hérna“
Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson skoraði sjö mörk fyrir þýska stórliðið MT Melsungen er liðið vann fimm marka sigur gegn Val í fjórðu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld.

Napoli jók forskotið á toppi deildarinnar
Napoli lagði AC Milan 2-0 á útivelli í stórleik kvöldsins í Serie A, efstu deild karla í fótbolta á Ítalíu. Lærisveinar Antonio Conte eru komnir með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar.

Þorsteinn Leó öflugur í stórsigri
Þorsteinn Leó Gunnarsson stóð fyrir sínu þegar Porto gjörsigraði Vardar í Evrópudeild karla í handbolta.

Dinkins sökkti Aþenu
Brittany Dinkins var stigahæst þegar Njarðvík lagði nýliða Aþenu í Bónus-deild kvenna í körfubolta, lokatölur í Njarðvík 70-63.

Sunnlendingar sóttu sigur í Garðabæinn
Sameiginlegt lið Hamars frá Hveragerði og Þórs frá Þorlákshöfn, Hamar/Þór, gerði sér lítið fyrir og sóttu sigur í Garðabæinn þegar liðið lagði Stjörnuna með tveggja stiga mun í Bónus-deild kvenna í körfubolta, lokatölur í Garðabæ 82-84.

Misjöfn úrslit hjá Íslendingunum í Evrópudeildinni
Þrír Íslendingar voru í eldlínunni með liðum sínum í Evrópudeild karla í handbolta í kvöld. Úrslitin voru upp og ofan.

Hafnfirðingar stóðu í Svíunum
FH mátti þola fjögurra marka tap gegn Sävehof ytra í Evrópudeild karla í handbolta, lokatölur 30-26.

Uppgjörið: Grindavík - Keflavík 68-67 | Háspenna í Smáranum þegar Grindavík vann Keflavík
Grindavík vann frábæran sigur á Keflavík háspennuleik í Smáranum í kvöld í Bónus deild kvenna. Munurinn ekki nema eitt stig og réðst á lokasekúndunum. Lokastaðan 68-67 og Grindavík jafnaði Keflavík að stigum í deildinni.

Uppgjörið: Valur - Melsungen 28-33 | Héldu í við þýska toppliðið
Valur mátti þola fimm marka tap er liðið tók á móti MT Melsungen, toppliði þýsku úrvalsdeildarinnar, í fjórðu umferð Evrópudeildar karla í handbolta í kvöld, 28-33.

Luke Shaw verður lengur frá keppni en talið var fyrst
Luke Shaw, vinstri bakvörður enska landsliðsins í knattspyrnu og Manchester United, hefur lent í enn einu bakslaginu og verður lengur frá keppni en spáð var til um. Upprunalega átti hann að snúa aftur í september, svo október en nú er alls óljóst hvenær þessi meiðslahrjáði leikmaður mun snúa aftur á völlinn.

Eiður Aron riftir við Vestra
Eiður Aron Sigurbjörnsson er samkvæmt heimildum Fótbolti.net með lausan samning eftir að hafa rift samningi sínum við Vestra eftir að tímabilinu í Bestu deild karla í fótbolta lauk.

Sonur Dagnýjar leiddi Bowen inn á fyrir leikinn gegn United
Brynjar Atli Ómarsson, sonur Dagnýjar Brynjarsdóttur, fyrirliða kvennaliðs West Ham United, leiddi fyrirliða karlaliðs félagsins inn á fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudaginn. West Ham vann leikinn og daginn eftir var knattspyrnustjóri United, Erik ten Hag, svo rekinn.

Sporting staðfestir áhuga United á Amorim
Manchester United ætlar sér að ráða Rúben Amorim sem næsta knattspyrnustjóra liðsins. Sporting hefur staðfest áhuga United á honum og að félagið sé tilbúið að greiða tíu milljóna evra riftunarákvæði í samningi hans.

Spenntur fyrir Valsleiknum: „Býst við að margir frá Selfossi og úr fjölskyldunni mæti“
Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson spilar með félögum sínum í Melsungen gegn Val í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Hann hlakkar til leiksins og að verja smá tíma á Íslandi.

Búið að reka meira en helming þjálfaranna í WNBA
Kvennadeild NBA hefur verið í mikilli sókn í ár og slegið öll met yfir áhorf og aðsókn á leiki. Það er líka ljóst að eigendur félaganna í deildinni sýna enga miskunn þegar kemur að þjálfarastöðunni.

Krukkuðu í handboltaheila Ásbjörns fyrir leikinn gegn Sävehof
Eftir frækinn sigur á Sävehof í síðustu viku mæta Íslandsmeistarar FH sænsku meisturunum í annað sinn í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld.

„Elvar er einn mesti stríðsmaður sem við eigum“
Valur mætir Elvari Erni Jónssyni, Arnari Frey Arnarssyni og félögum þeirra í Melsungen, toppliði þýsku úrvalsdeildarinnar, á Hlíðarenda í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, hlakkar til að takast á við Íslendingana og stjörnurnar í liði Melsungen og vonast eftir betri frammistöðu hjá sínum mönnum en í fyrri leiknum.

Haukar mæta liði í 5.000 kílómetra fjarlægð: „Rándýrt og erfitt“
Gjaldkeri handknattleiksdeildar Hauka, nú eða bara leikmenn sjálfir og þjálfarar, hafa eflaust ekki hoppað hæð sína af gleði þegar dregið var í 3. umferð EHF-keppni karla í dag.

Hver er þessi Rúben Amorim?
Rúben Amorim virðist vera líklegastur til að taka við sem knattspyrnustjóri Manchester United. En hver er maðurinn?

Hrokinn varð honum að falli
Þeir sem trúa ekki á karma ættu kannski að horfa á kraftaverkasnertimarkið í NFL deildinni um helgina.

Wade ver styttuna umdeildu: „Hún þarf ekki að líkjast mér“
Dwyane Wade kveðst ánægður með styttuna af sér sem var afhjúpuð fyrir utan heimavöll Miami Heat. Styttan þykir ekkert sérstaklega lík honum.

Rotaðist á marklínunni
Árlegt hlaup á milli frönsku borganna Marseilles og Cassis endaði afar slysalega.

Sá besti ekki einu sinn tilnefndur í ensku úrvalsdeildinni
Rodri fékk í gær Gullhnöttinn, Ballon d'Or, sem besti knattspyrnumaður ársins. Spænski miðjumaðurinn átti magnað ár og hafði betur í baráttunni við Vinícius Júnior.

Grétar í átta mánaða bann: Sakaður um ofbeldi og tal um typpalykt
Grétar Skúli Gunnarsson, kraftlyftingaþjálfari á Akureyri, hefur verið úrskurðaður í átta mánaða bann frá íþrótt sinni vegna ógnandi hegðunar og óíþróttamannslegrar framkomu á bikarmóti Kraftlyftingasambands Íslands (KRAFT) fyrir ári síðan.

Búinn að ná öllu út úr ferlinum: „Finn ég er orðinn sáttur“
„Ég hef náð öllu því sem ég vildi úr ferlinum," segir nýkrýndi Íslandsmeistarinn með Breiðabliki, Arnór Sveinn Aðalsteinsson sem hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og taka við starfi aðstoðarþjálfara hjá Íslandsmeistaraliðinu. Arnór er sáttur í eigin skinni með ákvörðunina og reiðubúinn til þess að gefa allt sem hann á í nýja starfið.

Haaland skrópaði líka og fór frekar á leik í Svíþjóð
Það voru ekki bara Real Madrid leikmennirnir Vinícius Júnior og Jude Bellingham sem skrópuðu á verðlaunahátíð Ballon d'Or í gær.

Segja Man. United tilbúið að borga einn og hálfan milljarð fyrir Amorim
Ruben Amorim virðist vera efstur maður á óskalista Manchester United sem leitar nú að framtíðarstjóra félagsins eftir að Erik ten Hag var rekinn í gær.