

Ástralski breikdansarinn Rachael Gunn hefur beðið um frið fyrir sig og sína eftir mjög neikvætt áreiti á hana og hennar fólk undanfarna daga.
Hólmfríður Magnúsdóttir, þriðja markahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi, er ekki hætt í fótbolta og hún skoraði í mikilvægum sigri Selfyssinga í Lengjudeildinni í fótbolta í kvöld.
Söngvarinn Ed Sheeran er ekki lengur aðeins harður stuðningsmaður enska knattspyrnufélagsins Ipswich því hann hefur nú eignast hlut í félaginu.
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, lagði upp bæði mörk liðsins er Blikar unnu sterkan 2-0 útisigur gegn Valsmönnum í Bestu-deild karla í kvöld.
„Þetta eru svekkjandi úrslit og það var óþarfi að tapa þessum leik,“ sagði Srdjan Tufegdzic, Túfa, eftir tap Vals gegn Breiðabliki í kvöld.
Víkingar rúlluðu yfir Tindastól og unnu 5-1 sigur. Víkingar byrjuðu af krafti og komust tveimur mörkum yfir eftir sex mínútur. Gestirnir frá Sauðárkróki komust aldrei í takt við leikinn og mörk Víkings hefðu getað verið fleiri en fimm.
Sumir leikmenn þurftu að taka tvær vítaspyrnur, svo löng var vítaspyrnukeppnin á milli Ajax og Panathinaikos í Amsterdam í kvöld þegar Ajax komst áfram í umspil Evrópudeildarinnar í fótbolta.
Tindastóll fékk skell í Víkinni þar sem liðið tapaði 5-1. Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Tindastóls, ætlaði þó ekki að dvelja lengi við þennan leik og var strax farinn að einbeita sér að næsta leik gegn Keflavík.
Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er á leið í læknisskoðun hjá ítalska félaginu Fiorentina á morgun og hefur félagið samið um kaup á honum frá Genoa.
Þór/KA og Stjarnan skildu jöfn á Akureyri í kvöld, 2-2, í Bestu deild kvenna í fótbolta. Sandra María Jessen jafnaði metin þegar tíu mínútur voru til leiksloka.
„Ég er bæði sáttur en líka ósáttur, þetta er blanda af tilfinningum. Ég er ánægður að við sýndum karakter og komum til baka eftir að hafa farið illa að ráði okkar,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þór/KA eftir 2-2 jafntefli á móti Stjörnunni á heimavelli í dag.
Keflavík kastaði frá sér þriggja marka forystu og þremur mikilvægum stigum í fallbaráttu sinni í Bestu deild kvenna í fótbolta þegar liðið fékk FH í heimsókn á HS Orku-völlinn í í 17. umferð deildarinnar í kvöld.
Aðra umferðina í röð unnu Víkingar útisigur í dag og tryggðu sér þar með áfram í umspil Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta, með því að vinna Flora í Eistlandi 2-1. Mörkin úr leiknum má nú sjá á Vísi.
Breiðablik vann virkilega sterkan 2-0 sigur er liðið heimsótti Val í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld.
Knattspyrnudeild KR hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frestunar á leik liðsins við HK, í Bestu deild karla, og ætlar að kæra ákvörðun stjórnar KSÍ varðandi málið.
KR hefur staðfest að Óskar Hrafn Þorvaldsson sé tekinn við þjálfun karlaliðs félagsins í fótbolta.
Helena Ólafsdóttir er mætt aftur og Mist Rúnarsdóttir sest í sérfræðingasætið. Þær hituðu vel upp fyrir umferðina sem framundan er í Bestu deild kvenna með góðum gestum, mæðgunum Kristínu Dís Árnadóttur og Kristínu Önnu Arnþórsdóttur.
Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur staðfest að félagið hafi sett malíska miðjumanninn Yves Bissouma í eins leiks bann vegna myndbands þar sem hann sást anda að sér hláturgasi.
Víkingur vann 2-1 sigur gegn Flora í Tallinn í dag og tryggði sér þar með sæti í umspili um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Fyrri leikurinn í Víkinni endaði 1-1.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum átján ára og yngri tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum á EM með sigri á Noregi, 31-25.
Argentínumaðurinn Mauricio Pochettino er við það að taka við bandaríska karlalandsliðinu í fótbolta. Frá þessu segir í þarlendum fjölmiðlum.
„Við eigum bara von á fjörugum og skemmtilegum leik, hellingur undir fyrir bæði lið,“ sagði Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks sem heimsækir Val á Hlíðarenda í kvöld.
Colin Kaepernick hefur boðist starf í þjálfarateymi Los Angeles Chargers, undir stjórn fyrrum þjálfara hans Jim Harbaugh. Kaepernick vill sjálfur komast aftur á völlinn sem leikmaður.
Valur og Breiðablik mætast í kvöld í gríðarlega mikilvægum leik í toppbaráttu Bestu deildar karla í fótbolta.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, vildi lítið tjá sig um skýrslumálið svokallaða þegar eftir því var leitað. Hann á þó erfitt með skilja umfjöllunina í kringum það.
Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik út næstu leiktíð. Fyrri samningur gilti þar til í haust.
Myndband með körfuboltagoðsögninni Michael Jordan vakti athygli fyrir meira en tveimur áratugum síðan en fór síðan aftur á flug á dögunum þegar fólk áttaði sig á því hver var þarna með honum.
Tveir leikmenn bandaríska blaklandsliðsins á Ólympíuleikunum í París sluppu heilar í gegnum alla leiki liðsins á Ólympíuleikunum en þær komust aftur á móti ekki heilar heim á hótelið eftir lokafögnuð bandaríska Ólympíuhópsins.
Liverpool hefur samþykkt að selja miðjumanninn Bobby Clark til austurríska liðsins Red Bull Salzburg.
Kolbeinn Kristinsson, Baltic Union meistari, mun verja beltið sitt í fyrsta skipti gegn Finnanum Mika Mielonen þann 3. september.