
Tónlist

Tileinka sjómönnum plötuna
Nýjasta plata KK og Magga Eiríks, Úti á sjó, hefur að geyma gömul sjómannalög.


Egill fær ungu kynslóðina í lið með sér
Egill Ólafsson og Moses Hightower leiða saman hesta sína á afmælistónleikum Egils í Hörpu.

Súpergrúppa siglir um landið í sumar
Hljómsveitin Áhöfnin á Húna spilar til styrktar Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Passar upp á Nirvana lögin
Courtney Love passar vel og vandlega upp á notkunarréttinn á lögum Nirvana.

Lambchop til Íslands
Bandaríska jaðarkántrísveitin Lambchop endar tónleikaferð sína um Evrópu með tónleikum í Iðnó sunnudagskvöldið 7. júlí. Lay Low mun hita upp.

Hátíðin Sumarmölin í fyrsta sinn
Tónlistarhátíðin Sumarmölin á Drangsnesi verður haldin í fyrsta sinn í sumar. Hún fer fram í samkomuhúsinu Baldri 15. júní. Í kjölfar góðra undirtekta við tónleikaröðinni Mölinni á Drangsnesi var ákveðið að halda þessa nýju tónlistarhátíð.

Metallica bætist í Hróarskelduhópinn
Hin goðsagnakennda rokksveit tekur sér frí frá plötugerð með einu tónleikum sínum í Evrópu.

Sign undirbýr nýja plötu
Hljómsveitin Sign stefnir að útgáfu nýrrar plötu seinna á þessu ári. Þeir Ragnar Zolberg og Arnar Grétarsson, forsprakkar hljómsveitarinnar, hafa undanfarið verið í Noregi þar sem þeir hafa lagt lokahönd á lagasmíðarnar.

Eyþór Ingi leiðbeinir litlu systur í söngnum
Ellen Ýr fær stuðning frá stóra bróður sem er eins og hennar besta vinkona.

Upptökur í 600 ára kastala
Þriðja plata Jóhanns Kristinssonar, Headphones, var að hluta til tekin upp í 600 ára gömlum kastala í Engelsholm í Danmörku. „Ég kom mér upp hljóðnemum þarna en þessi kastali er notaður sem listalýðháskóli í Danmörku,“ segir Jóhann. Lagið Typewriter var tekið upp í kastalanum og Jóhann segir andrúmsloftið þar öðruvísi en annars staðar.

Miðasala á Frank Ocean fer vel af stað
Áhugi fyrir tónleikum tónlistarmannsins Frank Ocean þann 16. júlí virðist vera gífurlegur. Óhætt er að segja að miðasalan fari vel af stað, en fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar að 3000 miðar væru seldir af þeim 5.5000 sem í boði eru. Nú eru innan við 1000 miðar eftir.

Sjáðu mishæfileikaríka Íslendinga taka Frank Ocean
Meðfylgjandi má sjá þegar fjölmargir mishæfileikaríkir einstaklingar sungu vinsælasta lagi Frank Ocean, Lost, í Kringlunni í von um að fá boðsmiða á tónleika Frank sem verða í Höllinni 16. júlí. Viti menn allir sem þið sjáið syngja í meðfylgjandi myndskeiði fengu boðsmiða.


Ekki “fansý” pakki heldur hörkuvinna
Trommuleikarinn Kristinn Snær Agnarsson hefur spilað með Íslandsvininum John Grant á um fjörutíu tónleikum um Evrópu og víðar á þessu ári.

Hraðamet í Bretlandi
Engin plata hefur selst hraðar á árinu í Bretlandi en Random Access Memories með franska rafdúettnum Daft Punk. Hún seldist í 133 þúsund eintökum á aðeins fjórum dögum og sló met Michael Buble sem seldi 121 þúsund eintök af plötu sinni fyrr á þessu ári, fyrstu vikuna eftir að hún kom út.

Ferskir og mjúkir vindar úr fortíðinni
Frönsku rafpoppararnir í Daft Punk hafa komið eins og stormsveipur inn í tónlistarheiminn með sinni nýjustu plötu, Random Access Memories, heilum átta árum eftir að síðasta hljóðversplata, Human After All, kom út.

FM Belfast sendir frá sér glænýtt stuðlag
"Við höfum pillað út öll vangalögin, þau passa ekki inn. Þetta verður stuðplata, svipuð okkar fyrri plötum,“ segir Lóa Hjálmtýsdóttir, teiknari og söngkona í sveitinni FM Belfast. Sveitin gaf nýverið frá sér nýja smáskífu, lagið We Are Faster Than You, sem eflaust á eftir að verða einn af sumarsmellunum í ár.

Skemmtileg lög um tilfinningar og dauða
Sjötta plata The National, sem tók þátt í gjörningi listamannsins Ragnars Kjartanssonar í New York í byrjun maí, kemur út eftir helgi.

Þungarokksfræði í háskólanum
"Námið er hluti af gráðu, svo það verður strangt. Þungarokk hefur sjaldan verið tekið alvarlega. En það er bara menningarleg túlkun,“ segir höfundur námsleiðarinnar.

Úr ferskeytlum í rapp
"Ég fór um bekki hér og þar og kenndi börnum að semja ljóð. Ég byrjaði á því að láta þau finna orð sem þeim þóttu falleg og svo unnu þau út frá þeim. Ljóðin þurftu hvorki að vera rytmísk né rímuð,“ segir Arnljótur Sigurðsson tónlistarmaður sem kenndi grunnskólabörnum að semja ljóð, en kennslan var liður í barnamenningarhátíð Reykjavíkur sem fram fór dagana 23. til 28. apríl.

Creed valin versta hljómsveit tíunda áratugarins
Lesendur Rolling Stone völdu tíu verstu hljómsveitirnar.

Breikdans við klassíska tóna
„Hópurinn er margfaldur heimsmeistari í breikdansi og þau tvinna saman breikdans og klassíska tónlist í þessu atriði. Þetta er mjög skemmtilegt og heillar breiðan aldurshóp,“ segir Sóley Kristjánsdóttir, vörumerkjastjóri Red Bull. Danshópurinn Flying Steps kemur hingað til lands í sumar á vegum Red Bull orkudrykkjarins.

XXX Rottweiler hundar frumsýna nýtt myndband
"Lagið er sönnun á því hvernig fullkomið lýðræði virkar, það eru allir í öllu, Rottweiler er bara kommúnistasjitt,“ segir Erpur Eyvindarson rappari en hin goðsagnakennda rappsveit, XXX Rottweiler hefur sent frá sér nýtt lag og myndband með því.

Warwick með tónleika í júní
Dionne Warwick stígur á svið í Eldborgarsal Hörpu 19. júní. Hún er ein þekktasta söngkona popptónlistarsögunnar.

Yo La Tengo á Airwaves
Bandaríska índírokksveitin Yo La Tengo hefur bæst við dagskrá tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves sem verður haldin í fimmtánda sinn í haust.

ESB tónleikar í tilefni af Evrópudeginum
Í tilefni Evrópudagsins 2013 stendur Evrópustofa – upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi – fyrir hátíðartónleikum í Eldborgarsal Hörpu, laugardaginn 11. maí með Ungsinfóníu Evrópusambandsins og söngvurum frá Evrópsku óperumiðstöðinni undir stjórn hins virta hljómsveitarstjóra Laurent Pillot og er aðgangur ókeypis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Evrópustofu.

Sigurtextinn fluttur
Mosi frændi spilar á sínum fyrstu tónleikum í 4 ár.

Spiluðu sama lagið 105 sinnum í röð
Bandaríska hljómsveitin The National stóð sig prýðilega í gjörningi Ragnars Kjartanssonar.

Hvolpaást skoðað 10.000 sinnum
Myndband rapparans Emmsjé Gauta og Larry BRD ásamt Unnsteini Manuel við lagið Hvolpaást hefur verið skoðað tíu þúsund sinnum á síðunni Youtube síðan það kom út fyrir tveimur vikum.