
Tónlist

Hjaltalín spilar á Hróarskeldu
„Okkur finnst þetta auðvitað æðislega gaman. Ég hef sjálf aldrei farið og var eiginlega búin að ímynda mér að ég myndi ekki fara úr þessu,“ segir Sigríður Thorlacius, söngkona í Hjaltalín. Hljómsveitin hefur verið bókuð til að koma fram á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku í sumar.

Spila á leikvöngum
Hljómsveitin U2 hyggur á umfangsmikla tónleikaferð um Bandaríkin á þessu ári þar sem hún mun spila á íþróttaleikvöngum. Þetta verður í fyrsta sinn síðan í PopMart-tónleikaferðinni árið 1997 sem U2 fer í slíka ferð um Bandaríkin.

Oasis aflýsir Kínaferð
Rokkararnir í Oasis hafa aflýst fyrirhugaðri tónleikaferð til Kína í apríl sem hefði orðið sú fyrsta á ferli hljómsveitarinnar. Engar útskýringar hafa verið gefnar á þessari ákvörðun.

Killers kæra umboðsmann
Rokkararnir í The Killers hafa höfðað mál gegn fyrrverandi umboðsmanni sínum, Braden Merrick. Krefjast þeir skaðabóta fyrir að hafa orðið af hundruðum milljóna króna vegna tónleika sem hefur verið frestað og annarra tekna af tónleikaferðum og varningi tengdum hljómsveitinni.

Besta hljómplata U2 í átján ár
Tólfta hljóðversplata U2, No Line on the Horizon, fær fimm stjörnur hjá Dave Fricke, gagnrýnanda bandaríska tímaritsins Rolling Stone. Hann segir plötuna þá bestu frá sveitinni í átján ár, eða síðan Achtung Baby kom út.

KK með endurvöktum Sextett
Stórviðburður í íslensku poppi á sér stað í Fríkirkjunni á föstudagskvöldið þegar Sextett Ólafs Gauks kemur saman á ný. Tónleikarnir eru hluti af Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar. „Við erum búin að vera í alltof langri pásu,“ segir Svanhildur Jakobsdóttir. Auk hennar eru Ólafur Gaukur og Karl Möller upprunalegir meðlimir í endurvakta bandinu, en lögin eru þau sömu, ógleymanlegir poppsmellir eins og „Segðu ekki nei“, „Þú ert minn súkkulaðiís“ og „Undarlegt með unga menn“, sem Rúnar Gunnarsson söng. Hann féll frá árið 1972 en KK kemur í staðinn.

Spilar fyrir milljónir Þjóðverja
Tónlistarmaðurinn Pétur Ben kemur fram í vinsælasta tónlistarþætti þýska ríkissjónvarpsins, WDR, í lok næsta mánaðar. Milljónir manna horfa á þáttinn í hverri viku og því er um sérlega góða kynningu að ræða fyrir Pétur.

Metallica meðal stóru nafnanna á Sonisphere
Bandaríska þungarokksveitin Metallica verður aðalnúmerið á nýrri tónlistarhátíð í Hertford-skíri á Englandi í sumar.

Rock spilar fyrir Kronik
Um fimmtán ár eru liðin síðan hip hop-þátturinn Kronik fór fyrst í loftið og af því tilefni verður slegið til veislu á Tunglinu 28. febrúar. Taktsmiðurinn Pete Rock stígur þar á svið en hann á langan feril að baki í hip hop-bransanum. Rock kom fyrst fram á sjónar-sviðið ásamt félaga sínum CL Smooth og

Fjallabræður sigla til Færeyja
Fjallabræður elska systur sínar og bræður í Færeyjum, eru stoltir af að verða fyrst íslenskra hljómsveita skráð á G-festival í ár og hafa gefið Færeyingum lag.

Papar neyddir til nafnabreytingar
„Hljómsveitin Papar er ákveðið vörumerki sem maður á hlut í að hafa byggt upp. Einn daginn fór ég að fá símtöl og var spurður hvort ég væri að syngja hér og þar. Ég vissi ekkert hvað var í gangi,“ segir Matthías Matthíasson, kenndur við Papa.

Popplandsliðið minnist Rúnars
Synir Rúnars Júlíussonar skipuleggja nú stórtónleika í Laugardalshöll þar sem íslenska popplandsliðinu mun minnast fallins félaga. Lögin sem Rúnar söng verða flutt af stjörnum eins og Páli Óskari, KK og Björgvini Halldórssyni og hljómsveitum eins og Sálinni hans Jóns míns og Hjálmum.

Morrissey átti að herma eftir Sigur Rós
Tónlistarmaðurinn Morrissey situr ásamt hljómsveit sinni nakinn fyrir innan í umslagi nýjustu smáskífu sinnar, I"m Throwing My Arms Around Paris.

Veðurguðirnir enda með plötu
„Ég get nú ekki sagt að Idol hafi hjálpað mér mikið. Ég þurfti eiginlega að vinna mig út úr því. Menn komu til mín steinhissa eftir gigg og sögðu: Þetta var helvíti gott hjá þér, varst þú ekki í Idol? Eftir Idol gerðu eiginlega allir þær kröfur til manns að maður væri alveg vonlaus,“ segir Ingó í Veðurguðunum.

Minningartónleikar um Rúnar
Minningartónleikar um Rúnar Júlíusson verða haldnir í Laugardalshöllinni 2. maí. Synir Rúnars, þeir Baldur og Júlíus, sjá um skipulagninguna í samvinnu við Bravo. Flestir forkólfar íslenskrar dægurlagamenningar hafa boðað komu sína.

Gaf út smáskífu í Danmörku
Akureyrski tónlistarmaðurinn Rúnar Eff gaf nýverið út sína fyrstu smáskífu í Danmörku. Á henni er Aha-lagið Take on Me og You, sem bæði eru á fyrstu sólóplötu hans Farg.

Þrjár mínútur skipta öllu
Það kemur í ljós á laugardaginn eftir rúmlega viku hvaða lag verður Eurovision-framlag Íslands í ár. Átta lög eru komin í úrslit eftir snarpa keppni. Hvaða lag er sigurstranglegast? Keppendur síðasta árs spáðu í spilin. „Þetta er alltaf eins, góð lög og svo nokkur örlítið slappari. Það er mikið af nýjum flytjendum núna, sem mér finnst gott.

Syngur eigið lag í Sesame
Breski grínistinn Ricky Gervais ætlar að koma fram í bandaríska barnaþættinum Sesame Street. Í þættinum, sem verður tekinn upp í New York í næsta mánuði, mun Gervais syngja eigið lag með hjálp rauða skrímslisins Elmo.

Dönsku rokkararnir klikkuðu hvergi
Dönsku rokkararnir í D-A-D voru trúir sjálfum sér og héldu kraftmikla og vel heppnaða tónleika á Nasa á laugardagskvöld síðasta. Einkum fór bassaleikarinn á kostum á sínum tveggja strengja bassa, ber að ofan uppi á hátalarastæðum og bassatrommu, í níðþröngum buxum með áletrunina „nasty“ á rassinum – sem hann var ekki að fela fyrir hljómleikagestum. Upp í hugann kom óhjákvæmilega „mockumentary“, myndin um Spinal Tap, og gestir voru vel með á nótunum.

Coldplay og Duffy líkleg til sigurs
Duffy og Coldplay fengu flestar tilnefningar til Brit-verðlaunanna sem verða afhent 18. febrúar í London. Fengu þær hvor um sig fjórar tilnefningar, þar á meðal fyrir bestu bresku plötuna árið 2008.

Þriggja stjörnu diskórokk
Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn. Margir bíða hennar með mikilli eftirvæntingu enda sló sveitin rækilega í gegn fyrir fimm árum með sinni fyrstu plötu.

D-A-D nýtir Íslandsferðina vel
Danska rokksveitin D-A-D hyggst ekki sitja auðum höndum og eyða sínum tíma í einhverju vitleysu þegar þeir koma hingað til lands og spila á á Nasa. Þeir ætla sér að taka upp myndband við nýtt lag sveitarinnar og það staðfestir Finni Jóhannsson hjá True North fyrirtækinu sem mun aðstoða dönsku rokkarana við myndbandsgerðina.

Grapevine á Grand
Fyrsta tölublað Grapevine með nýjum ritstjóra, Hauki S. Magnússyni, er komið á götuna. Til að fagna áfanganum verða haldnir ókeypis tónleikar á Grand Rokk í kvöld kl. 22. Hljómsveitirnar Agent Fresco, Reykjavík! og Sudden Weather Change koma fram, auk bandaríska tónskáldssins Nico Muhly, sem gaf út plötuna Mothertongue í fyrra og hefur dvalið hér langdvölum. Dj Sveppi P verður við fóninn svo ein mínúta fari ekki til spillis.

Kvennagrúppa spilar
Kvennagrúppan Trio Nordica hefur um fimmtán ára skeið haldið saman og spilað margbreytilega tónlist fyrir landann og erlenda áheyrendur, tekið upp hljómplötur og gefið út. Á sunnudaginn koma þær fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaðakirkju.

Undirbýr sólóplötu
Corey Taylor, forsprakki grímurokkaranna í Slipknot, er að undirbúa sína fyrstu sólóplötu. „Ég finn að ég þarf að gera þessa plötu," sagði Taylor í viðtali við Billboard. „Ég er þannig náungi að ef ég get ekki gert hana þá heldur það aftur af mér í öðru sem ég geri."

Bretar hrifnir af Hjaltalín
Breskir gagnrýnendur eru ákaflega hrifnir af plötu íslensku hljómsveitarinnar Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons. Gagnrýnandi Guardian, Michael Hann, biður hlustendur um að standast þá freistingu að líkja hljómsveitinni við Sigur Rós, tónlist þeirra eigi fátt ef eitthvað sameiginlegt. Hann fer síðan fögrum orðum um plötuna og hrósar söngvaranum, Högna Egilssyni. „Hann er ekki fullkominn söngvari en það er einmitt þessi ófullkomleiki sem kemur í veg fyrir að platan lendi í sætabrauðsflokknum,“ skrifar Hann.

Tíunda sólóplatan
Gítarleikari Red Hot Chili Peppers, John Frusciante, gefur út sína tíundu sólóplötu 26. janúar. Platan nefnist The Empyrean og koma þar við sögu Flea, bassaleikari Red Hot, og Johnny Marr, fyrrverandi gítarleikari The Smiths.

Nýtt lag frá Lifun
Hljómsveitin Lifun vakti athygli síðasta sumar með laginu „Hörku djöfuls fanta ást“ eftir Björgvin Ívar Baldursson við texta Bjartmars Guðlaugssonar. Björgvin er sonarsonur Rúnars Júlíussonar.

Tónlistarárið mikla hafið
Fjöldi hljómsveita verður á faraldsfæti árið 2009 og ætlar sér stóra hluti úti í hinum stóra heimi. Lay Low, Emilíana Torrini, Hjaltalín og Gus Gus verða öll áberandi.

Búlgaríuplata tafðist í kreppu
Fyrsta plata hljómsveitar Hauks Gröndals, Narodna Muzika, tafðist í framleiðslu erlendis á síðasta ári og kom því ekki út fyrr en rétt fyrir jólin. „Svona þjóðlagamúsík er maður ekki að fara að selja eins og Bubbi Morthens hér á landi. Þeir eru ekki að setja þig í rosalegan forgang,“ segir hann og játar að vera pínulítið svekktur.