Tónlist

Iceland Airwaves hafin: Ásgeir Trausti tróð upp á Grund
Iceland Airwaves tónlistarhátíðin var í dag formlega sett og í tilefni af því hélt Ásgeir Trausti tónleika á hjúkrunarheimilinu Grund.

Ný plata frá Björk í nóvember
Platan heitir Utopia.

Bestu og furðulegustu íslensku plötuumslögin
Í gær var opnuð í Hönnunarsafni Íslands sýning á íslenskum plötuumslögum og af því tilefni fannst Fréttablaðinu nauðsynlegt að fá nokkra álitsgjafa til að segja frá uppáhaldsplötuumslagi sínu. Álitsgjafarnir völdu einnig það plötuumslag sem þeim fannst skrítnast, skemmtilegast og líka það furðulegasta.

Föstudagsplaylisti Teejay Boyo
Tónlistamaðurinn Teejay Boyo setti saman föstudagsplaylista Lífsins að þessu sinni. Teejay var að gefa út nýtt lag, lagið Wine Your Body, og að sjálfsögðu fékk það að fljóta með á lagalistann.

Emmsjé Gauti kýs Svarta Framtíð: „Sexy strætóskýli“
Emmsjé Gauti virðist vera búinn að gera upp hug sinn í komandi kosningum en hann tístir um ákvörðun sína

Auglýsa Svikamyllu ehf. út um alla borg
Hljómsveitin Hatari gefur út sína fyrstu EP-plötu á laugardaginn næstkomandi. Sveitin mun koma fram á Neysluvöku sama dag með Cyber, Kuldabola og russian.girls. Bak við viðburðinn er hið dularfulla félag Svikamylla ehf.

Er það fugl eða er það Emil Stabil?
Rapparinn Emil Stabil frá Danmörku spilar á skemmtistaðnum Húrra í kvöld. Hann segist hafa miklar mætur á bæði íslensku rappsenunni sem og gestrisninni og er að undirbúa eitthvað alveg brjálað sem mun koma öllum á óvart.

Vill ekki setja tónlistina í box
Tónlistarkonan Jónína Ara heldur útgáfutónleika í Kaldalóni í Hörpu í kvöld. Hún ætlar að flytja lög af nýju plötunni sinni, Remember.

Auður snýr á þyngdarlögmálið í nýju myndbandi
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem AUÐUR, gaf í gær frá sér nýtt myndband við lagið I'd Love.

Föstudagsplaylisti Cell 7
Það er rappgoðsögnin hún Ragna Cell 7 sjálf sem sér um föstudagsplaylistann að þessu sinni. Ef hlustað er á listann í réttri röð er hann hin besta uppskrift að nokkuð fjörugu föstudagskvöldi.

Rappið komið inn á jólatónleikamarkaðinn
Rapp er gífurlega vinsælt og einungis tímaspursmál hvenær rappið færi inn á jólatónleikamarkaðinn. Emmsjé Gauti er búinn að láta vaða og heldur Júlevenner ásamt nokkrum góðum jólavinum.

Einlægni er nýi töffaraskapurinn
Joseph Cosmo Muscat er margreyndur tónlistarmaður sem flytur tónlist undir nafninu SEINT. Hann segir að tónlistin spretti frá líðan sinni og vonar að aðrir geti fundið sig í tilfinningum sem hann túlkar. Fráfall eins besta vinar hans er umfjöllunarefni næstu plötu.

Þekktast plötusnúður græmsins á landinu
Breski plötusnúðurinn Spooky Bizzle mætir til landsins og skemmtir dansþyrstum á Paloma í kvöld. Um er að ræða goðsögn úr senunni. Um upphitun sér GKR en hann ætlar að spila slatta af nýju efni.

Föstudagsplaylisti Denique
Kanadíski tónlistarmaðurinn Denique setti saman föstudagslagalista Lífsins að þessu sinni. Hann lýsir listanum sem dramatískum sem er í takt við hljómplötuna sem hann var að senda frá sér.

Jafnvígur á dönskuna og íslenskuna
Huginn hefur gert það gott með laginu Gefðu mér einn sem kom út fyrr á árinu. Nú í síðustu viku sendi hann frá sér lagið Eini strákur ásamt Helga Sæmundi og frumsýnir í kvöld myndband við lagið.

Ritskoðað myndband Reykjavíkurdætra komið á YouTube
Reykjavíkurdætur neyddust til að fjarlægja myndband við lagið Reppa heiminn af YouTube í lok ágúst.

Eurovision skórnir skítugir og Svala komin í reifgallann
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir segir frá því á Facebook að Eurovision skórnir séu orðnir skítugir og því hafi verið tilvalið að gefa frá sér nýtt tónlistarmyndband með Blissful.

Cell7 er komin aftur
Cell7, sem var meðal annars í hinni goðsagnakenndu rappsveit Subterranean, frumsýnir glænýtt lag og myndband af komandi plötu. Annað kvöld prufukeyrir hún svo nýtt efni í Stúdentakjallaranum.

Vínylplatan lifir enn góðu lífi
Lífið heyrði í þremur söfnurum vínylplatna en sala á þeim hefur risið síðustu ár. Sum safnanna byrjuðu bara sem eðlileg plötukaup á þeim tíma sem ekkert annað var í boði, sum vegna atvinnu en öll eru þau ákveðið form áráttu.

Hætt að semja fyrir skúffuna
Hildur Vala söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar fyrir 12 árum í sjónvarpsþættinum Idol stjörnuleit. Hún hvarf úr sviðsljósinu í nokkur ár og tónlistin hennar endaði ofan í skúffu. Nú er komið út nýtt lag og plata á leiðinni. Hún segist gera hlutina á eigin forsendum.

Mammút frumsýnir myndband: Geggjuð ábreiða af Believe með Cher
Hljómsveitin Mammút frumsýndi í dag glænýtt myndband í dag og er um að ræða ábreiðu af laginu Believe með Cher.

Bubbi er hrifinn af laginu B.O.B.A.
Lagið B.O.B.A með JóaPé og Króla er eitt vinsælasta lag Íslands um þessar mundir en það byggir á fleygum orðum sem tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens lét flakka í beinni útsendingu á sínum tíma, árið 2002 nánar tiltekið. Þá ætlaði Bubbi að stafa orðið "bomba“ en í miklum ákafa gleymdist einn bókstafur.

Hryllingurinn í hversdagsleikanum
Hljómsveitin Cyber gefur út plötuna Horror föstudaginn 13. október. Platan fjallar um hryllinginn sem við þekkjum öll úr hversdagsleikanum. Í kvöld verður svo frumsýnt nýtt myndband við lagið Psycho.

Braust úr fátæktinni í Bronx með strippi og hirti toppsætið af Taylor Swift
Rapparinn Cardi B skráði nafn sitt í sögubækur bandarískrar tónlistarsögu í vikunni þegar hún varð fyrsti kvenkyns rapparinn til að toppa Billboard-vinsældalistann síðan Lauryn Hill var á toppnum árið 1998.

Reyna að koma í veg fyrir gjaldþrot hjá Eistnaflugi
Tónlistarhátíðin hefur verið haldin árlega, aðra helgina í júlí, í Neskaupstað síðan sumarið 2005.

Ætlar að spila glænýtt efni frá Gus Gus
Tveir af þekktustu plötusnúðum landsins koma fram á Paloma á morgun. Biggi veira úr Gus Gus er aðalnúmerið en honum til halds og trausts verður Thor úr Thule Records.

Föstudagsplaylistinn: JóiPé og Króli
JóiPé og Króli eru líklega skærustu stjörnur dagsins í dag eftir að hafa gert allt gjörsamlega vitstola með laginu B.O.B.A. og svo plötunni GerviGlingur sem fylgdi fast á eftir því. Þá lá beinast við að fá þá til að koma lesendum Fréttablaðsins í föstudagsgírinn.

Risasveitin Foreigner til Íslands
I Want to Know What Love Is mun hljóma á Íslandi þann 18. maí þegar hin goðsagnakennda hljómsveit Foreigner stígur hér á svið. Sveitin er á ferðalagi um þessar mundir og fær góða dóma.

Verða eins og Bob Ross við strigann í kvöld
Moses Hightower ætla að halda upp á útgáfu plötunnar Fjallaloft í kvöld á glæsilegum tónleikum í Háskólabíói. Með þeim verður blásarasveit og fleiri hjálparkokkar.

Íslensk útgáfa af sænskum rappsmelli
Jóhann Kristófer, Jóhanna Rakel og Birnir hafa hoppað á remix af sænska rapphittaranum Gucci Song sem er upphaflega með rapparanum Michel Dida. Stór nöfn í sænsku senunni hafa horft til Íslands og því lá beint við að gera eitt remix.