Viðskipti erlent
298 299 300 301 302 303 304 305 306 … 334 ›
Hagtölur frá Kína valda mikilli hækkun á álverði Heimsmarkaðsverð á áli hefur tekið mikið stökk upp á við frá því í gær og þar til í morgun eða um 80 dollara á tonnið. Það eru nýjar hagtölur frá Kína sem valda þessari hækkun en samkvæmt þeim mædist hagvöxtur landsins á síðasta ársfjórðungi 7,9%. Viðskipti erlent 16.7.2009 08:54
Enn eru háar bónusgreiðslur við lýði Starfsmenn fjárfestingabankans Goldman Sachs eiga von á því að fá að meðaltali um 770 þúsund bandaríkjadala bónusgreiðslur, jafnvirði um 98 milljónum króna, á árinu í kjölfar góðrar afkomu bankans á fyrri helmingi ársins. Hagnaður bankans nam 3,4 milljörðum dala á öðrum ársfjórðungi og kom sú niðurstaða mjög á óvart beggja vegna Atlantshafsins. Times online greinir frá þessu. Viðskipti erlent 15.7.2009 15:30
Atvinnuleysi eykst á Bretlandi Atvinnuleysi fer vaxandi á Bretlandi. Á undanförnum þremur mánuðum hafa 281 þúsund manns orðið atvinnulausir sem er mesta aukning atvinnuleysis á einum ársfjórðungi í sögu Bretlands. Atvinnuleysi mælist nú 7,6% sem er meira en spár höfðu gert ráð fyrir og það versta síðan í janúar 1997, síðan Verkamannaflokkurinn tók við völdum. Sky fréttaveitan greinir frá þessu í dag. Viðskipti erlent 15.7.2009 10:08
Boeing boða 1.000 uppsagnir Boeing-flugvélaverksmiðjurnar þurfa að segja upp 1.000 starfsmönnum í vopnaframleiðsuhluta fyrirtækisins eftir að bandaríska varnarmálaráðuneytið skar niður styrki til verksmiðjanna. Viðskipti erlent 15.7.2009 08:09
Er von að glæðast á bandarískum fjármálamarkaði? Bandaríski fjárfestingabankinn Goldman Sachs, skilaði hagnaði uppá 3,4 milljarða bandaríkjadala á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Tekjur bankans á ársfjórðungnum námu 13,8 milljörðum dala sem eru mestu ársfjórðungstekjur bankans frá upphafi. Viðskipti erlent 14.7.2009 15:51
Verðbólga á Bretlandi mælist 1,8% Ársverðbólga á Bretlandi mælist nú 1,8 prósent sem er lægsta verðbólga sem mælst hefur í sameinaða konungsríkinu í næstum tvö ár. Orsakirnar eru aðallega lækkandi verð á bensíni og matvöru. Viðskipti erlent 14.7.2009 11:50
Hægir á efnahagsbata í Þýskalandi Væntingavísitala þýskra fjárfesta minnkaði óvænt í júlí sem bendir til þess að það muni taka stærsta hagkerfi í Evrópu lengri tíma að jafna sig en vonir stóðu til. Vísitalan féll úr 44,8 stigum í júní og í 39,5 stig í júlí, en hagfræðingar höfðu spáð því að vísitalan í júlí myndi mælast 47,8 stig. Viðskipti erlent 14.7.2009 10:50
Frístundahús í Danmörku hækka í verði Mikill munur er á verðþróun íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis í Danmörku ef marka má frétt danska ríkisútvarpsins, DR. Á síðasta ársfjórðungi hefur verð á sumarhúsum haldist óbreytt en það hefur fallið um fjögur prósent á síðasta ári. Á sama tímabili hefur sérbýli og lúxushúsnæði fallið í verði um 13% og íbúðarhúsnæði hefur fallið um 9%. Viðskipti erlent 14.7.2009 10:22
Reikna með miklum hagnaði hjá Goldman Sachs Goldman Sachs bankinn mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung í þessari viku sem og nokkrir aðrir stórbankar vestan hafs. Reiknað er með miklum hagnaði af rekstri bankans eða ríflega 2 milljarða dollara eftir skatta. Það gera hátt í 260 milljarða kr. Viðskipti erlent 13.7.2009 14:02
Belgar fá endurgreitt frá Kaupþingi í þessari viku Þeir tæplega 16.000 Belgar sem áttu innistæður hjá Kaupþingi í Lúxemborg munu fá fé sitt endurgreitt í þessari viku, nánar tiltekið á föstudaginn kemur. Innistæðurnar hafa verið frosnar inni síðan í nóvember á síðasta ári. Viðskipti erlent 13.7.2009 09:56
Forbes: Shell er nú stærsta fyrirtæki heimsins Olíufélagið Royal Dutch Shell er nú stærsta fyrirtæki heimsins samkvæmt nýjum lista Forbes tímaritsins yfir 500 verðmætustu fyrirtæki heimsins. Velta Shell á síðasta ári nam 458,4 milljörðum dollara eða rúmlega 58.000 milljörðum kr. Viðskipti erlent 13.7.2009 08:55
Olíuverðið niður fyrir 60 dollara á tunnuna Heimsmarkaðsverð á olíu féll niður fyrir 60 dollara á tunnuna fyrir helgina og heldur verðið áfram að lækka í dag, stendur nú í rétt rúmum 59 dollurum. Viðskipti erlent 13.7.2009 08:39
Kostnaðurinn við Kaupþing á Mön nemur 40 milljörðum Kostnaðurinn við að endurgreiða innistæðueigendum hjá Singer & Friedlander banka Kaupþings á eyjunni Mön (KSFIOM) nemur 193 milljónum punda eða um 40 milljörðum kr. Viðskipti erlent 13.7.2009 08:21
Bretar geta ekki fjármagnað eigin björgunarpakka Bretland er eina þróa efnahagsríkið í heiminum sem ekki hefur efni á neinskonar efnahagslegum björgunarpakka á næsta ári, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Viðskipti erlent 12.7.2009 15:47
Verðbólga í Íran niður í 22,5% Verðbólga í Íran, einu stærsta olíuframleiðsluríki í heimi, er komin niður í 22,5 prósent. Verðbólgan lækkaði um 1,1 prósentustig frá fyrri mánuði en hún var mest 29% í September síðastliðnum. Viðskipti erlent 12.7.2009 11:57
Fyrstu greiðslur úr þrotabúi Kaupþings í Bretlandi hækka Fyrstu greiðslur úr þrotabúi Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi verða hærri en áður var áætlað. Þetta kemur fram hjá skiptastjórum Ernst & Young sem stjórna búinu. Viðskipti erlent 12.7.2009 09:02
Bílar seljast grimmt í Kína Bílar halda áfram að seljast vel í Kína og seldust rúmlega 873 þúsund bílar í síðasta mánuði. Það er 48% munur samanborið við júní á síðasta ári. Viðskipti erlent 12.7.2009 06:45
Nýtt General Motors út úr gjaldþroti Nýtt félag um bandaríska bílaframleiðslufyrirtækið General Motors hefur verið stofnað en rúmur mánuður er síðan að fyrirtækið fór fram á að vera tekið til gjaldþrotaskipta. Það var þriðja stærsta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna. Endurreisnarferlið tók mun skemmri tíma en margir þorðu að vona. Viðskipti erlent 11.7.2009 11:32
BIS bankanum blandað inn í japanska skuldabréfasmyglið BIS bankanum í Basel í Sviss, eða seðlabanka seðlabankanna í heiminum og síðasta vinnustað næstkomandi seðlabankastjóra á Íslandi hefur nú verið blandað í japanska skuldabréfasmyglið í smábænum Chiasso. Þar voru tveir menn gripnir með 17.000 milljarða kr. í bandarískum skuldabréfum. Viðskipti erlent 10.7.2009 16:21
Verð á eldislaxi heldur áfram að hækka í Evrópu Verð á eldislaxi heldur áfram að hækka í Evrópu og er nú komið yfir 40 norskar kr. fyrir kílóið af minnsta laxinum eða um 800 kr. Verð a stærsta laxinum er komið í 44 norskar kr. Viðskipti erlent 10.7.2009 13:32
Villtustu veislur milljarðamæringa í uppsveiflunni Börsen.dk hefur tekið saman yfirlit yfir nokkrar af villtustu veislum milljarðamæringa heimsins í uppsveiflunni síðustu árin fyrir fjármálakreppuna á síðasta ári. Milljón dollara koma Elton John í afmæli Ólafs Ólafssonar hér um árið bliknar og blánar í samanburðinum. Viðskipti erlent 10.7.2009 11:13
Er kreppunni að ljúka í Bandaríkjunum? Talið er að bandaríska hagkerfið muni rétta úr kútnum á seinni hluta þessa árs, það er mun fyrr en hagfræðingar höfðu áður gert ráð fyrir. Þetta kemur fram í nýrri könnun á vegum Bloomberg fréttaveitunnar. Ástæðan er að meðal annars aukin einkaneysla. Viðskipti erlent 10.7.2009 11:01
Yfir 100 sóttu um stöðu nornar í enskum fjölskyldugarði Fjölskyldugarðurinn Wookey Hole í Englandi auglýsti nýlega stöðu nornar lausa til umsóknar í garðinum. Yfir 100 sóttu um stöðuna. Viðskipti erlent 10.7.2009 10:24
Hver Dani tapaði 2,4 milljónum að meðaltali í fyrra Hver Dani tapaði að meðaltali 101.000 dönskum kr. eða um 2,4 milljónum kr. af persónulegum auði sínum á síðasta ári. Tapið er að miklu leyti tilkomið vegna þess hve hlutabréf lækkuðu mikið í verði á síðasta ári. Viðskipti erlent 10.7.2009 09:36
Lloyds TSB tekur yfir skuldbindingar Landsbankans í All Saints Tískuvörukeðjan All Saints hefur nú náð samningi við Lloyds TSB bankann um lán upp á 30 milljónir punda eða um 6,3 milljarða kr. Með þessu hefur bankinn tekið yfir skuldbindingar Landsbankans gagnvart All Saints að því er segir á vefsíðu RetailWeek. Viðskipti erlent 10.7.2009 08:57
Ólöglegar vörueftirlíkingar flæða yfir Evrópu Falskar sígarettur, ónothæfar viagra pillur, merkjavörur í ódýrum eftirlíkingum, sjóræningja CD og DVD diskar. Ólöglegar vörueftirlíkingar flæða yfir Evrópu sem aldrei fyrr. Viðskipti erlent 9.7.2009 15:07
Heimurinn er að losna undan taki kreppunnar Samkvæmt nýrri hagspá Alþjóðagjaldeyrisjóðsins (AGS) er kreppan nú að losa um tak sitt á alheimshagkerfinu og bati, þó veikur sé, er í sjónmáli. Viðskipti erlent 9.7.2009 11:15
Sænsk herrasetur til sölu á tombóluverði Fjármálakreppan og lágt gengi sænsku krónunnar hefur gert það að verkum að nú er hægt að kaupa sænsk herrasetur (herregård) á tombóluverði. Dæmi eru um að verð á þeim hafi fallið niður í 60 milljónir kr. sem er svipað og kostar að kaupa fjögurra herbergja íbúð í Kaupmannahöfn. Viðskipti erlent 9.7.2009 11:05
AGS fær 10 milljarða dollara lán frá Kanada Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur gengið frá lánasamningi við stjórnvöld í Kanada um lán upp á allt að 10 milljarða dollara eða tæplega 1.290 milljarða kr. Viðskipti erlent 9.7.2009 08:55
Tap Alcoa minna en væntingar voru um Bandaríski álrisinn Alcoa, sem m.a. á Fjarðarál, skilaði minna tapi á öðrum ársfjórðungi en væntingar voru um. Tapið nam 454 milljónum dollara eða um 59 milljörðum kr. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður af rekstrinum hinsvegar 546 milljónir dollara. Viðskipti erlent 9.7.2009 08:22