Viðskipti innlent

Fráfarandi forstjóri fékk 88 milljónir
Laun og kostnaður vegna starfsloka fyrrverandi forstjóra HB Granda á síðasta ári námu rúmum 88 milljónum króna.

Einhuga vegna launahækkana bankastjóra
Fjármálaráðherra segir stjórnendur Íslandsbanka og Landsbankans ekki hafa virt tilmæli um hófsemi og varfærni við launahækkanir og boðar aðgerðir. Forsætisráðherra og samgönguráðherra taka undir í samtali við Fréttablaðið.

Skúli segist alltaf vera vongóður
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi Wow air, segist alltaf vera vongóður aðspurður um hvort takist að sigla kaupum Indigo Partners á stórum hlut í Wow Air í heimahöfn fyrr en síðar.

Wow air og Indigo ekki náð samkomulagi en viðræður halda áfram
Wow air og Indigo Partners hafa ekki gengið frá endanlegu samkomulagi um kaup bandaríska félagsins á stórum hlut í Wow air. Viðræður munu halda áfram og vonast er til að þeim verði lokið fyrir 29. mars.

Afkoma Eimskips veldur vonbrigðum
Eimskipafélag Íslands hagnaðist um 7,4 milljónir evra á síðasta ári, samanborið við 16,8 milljóna króna hagnað árið þar á undan. Afkoman veldur vonbrigðum að því er fram kemur í uppgjörstilkynningu félagsins.

Kauptilboð dótturfélags Icelandair í Cabo Verde Airlines samþykkt
Kauptilboð Loftleiða Icelandic á 51 prósenta hluta í ríkisflugfélaginu Cabo Verde Airlines á Grænhöfðaeyjum verið samþykkt. Undirritun kaupsamningsins fer fram á morgun.

Bjarni fer fram á tafarlausa endurskoðun launa bankastjóra
Segir launahækkanirnar senda ósættanleg skilaboð inn í yfirstandandi kjaraviðræður.

Hefja viðræður um möguleg kaup ríkisins á Landsneti
Ríkisstjórnin samþykkti fyrir nokkrum vikum að teknar yrðu upp viðræður um kaup ríkisins á eignarhlutum núverandi eigenda Landsnets en fyrirtækið á og rekur allar meginflutningslínur rafmagns hér á landi.

Myllan innkallar vatnsdeigsbollur
Myllan hefur ákveðið með tilliti til neytendaverndar og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla vatnsdeigsbollur sem voru vanmerktar með tilliti til ofnmæis- og óþolsvalds, mjólkur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Myllunni.

Bein útsending: Ársfundur Landsvirkjunar 2019
Ársfundur Landsvirkjunar hefst klukkan 14 í dag í Silfurbergi í Hörpu.

Kabbalah tórir þrátt fyrir gjaldþrotið
Ekkert fékkst upp í rúmlega 8 milljóna kröfur í þrotabú félagsins Kabbalah á Íslandi ehf, sem tekið var til gjaldþrotaskipta í fyrravor.

Tilnefningar til Lúðursins 2018
ÍMARK, félag íslensks markaðsfólks, í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa, mun þann 8. mars næstkomandi veita Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, í 33. sinn.

Gistinóttum fækkar milli ára
Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum í janúar síðastliðnum voru um 543.000, en þær voru um 566.000 í sama mánuði fyrra árs.

Island Aviation fær útgefið flugrekstrarleyfi
Félagið mun hefja flugrekstur í Reykjavík í útsýnisflugi.

Kerfinu geta fylgt "verulegir ókostir“
Bankaráð Seðlabankans segir illa fara á því að sömu einstaklingar beri ábyrgð á eftirliti annars vegar og hins vegar þeirri kjarnastarfsemi að móta peningastefnu. Það sýni reynslan.

Tekjur Sýnar aukast en hagnaður minnkar
Sýn hf. hagnaðist um 473 milljónir króna á síðasta ári sem er um 56 prósent lækkun á milli ára. Heildartekjur fyrirtækisins námu 21,9 milljörðum króna, um 54 prósenta hækkun á milli ára.

Stefán hættir sem forstjóri Sýnar
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sýn.

Héraðssaksóknari hefur lokið rannsókn á skattamálum Sigur Rósar
Ákvörðun um hvort ákært verður í málinu liggur ekki fyrir.

Varnarorð Seðlabankans um aflandskrónufrumvarpið ekki orðin að veruleika
Seðlabankinn mælir með að frumvarp um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum verði samþykkt sem fyrst.

Gera breytingar á skipulagi HR
Skipulag akademískra deilda Háskólans í Reykjavík mun breytast frá og með 1. mars næstkomandi.

„Ólíkt harðar slegist um íslenska stjórnendur erlendis en norska“
Misjafnt er eftir forsendunum hve há meðallaun norskra stjórnenda eru talin vera.

„Mannleg mistök“ settu sófa á útsölu
Neytendastofa telur Húsgagnahöllina hafa farið á svig við lög þegar verslunin auglýsti sófa á afslætti undir lok síðasta árs

Framlegð Skeljungs batnaði verulega í fyrra
Skeljungur tapaði einni milljón króna á fjórða fjórðungi síðasta árs borið saman við 29 milljóna króna tap á sama fjórðungi árið 2017, eftir því sem fram kemur í fjórðungsuppgjöri olíufélagsins sem birt var síðdegis í gær.

Arion, Capacent og Landsbankinn hækka verðmöt sín á Marel
Greinendur þriggja fyrirtækja hækkuðu fyrr í vikunni verðmöt sín á Marel og telja að þrátt fyrir mikla hækkun á hlutabréfaverði félagsins undanfarnar vikur eigi bréfin nokkuð inni.

Hagnaður KPMG dróst saman um fimmtung
KPMG hagnaðist um 298 milljónir króna á síðasta rekstrarári ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtækisins, frá október 2017 til september 2018, og dróst hagnaðurinn saman um 81 milljón króna frá fyrra rekstrarári.

Setja léttkolsýrðan kollagendrykk á markað
Drykkurinn er unninn úr íslensku fiskroði.

Einkafjárfestar þurfa að láta til sín taka
Helgi Magnússon fjárfestir segir víða hafa skort örugga forystu í hluthafahópum skráðra félaga á Íslandi. Stjórnarmenn þurfi að hafa beina hagsmuni af velgengni þeirra fyrirtækja sem þeir sitja í stjórn hjá.

Tekjurnar jukust lítillega
Síminn tapaði 2.436 milljónum króna á fjórða fjórðungi síðasta árs borið saman við 607 milljóna króna hagnað á sama fjórðungi árið 2017, að því er fram kemur í fjórðungsuppgjöri sem fjarskiptafélagið birti eftir lokun markaða í gæ

Tilboðum í Icelandair Hotels skilað í vikulok
Fjárfestar sem fóru áfram í aðra umferð söluferlisins á Icelandair Hotels, dótturfélagi Icelandair Group, hafa frest fram til 1. mars næstkomandi til að skila inn skuldbindandi tilboðum í hótelkeðjuna, samkvæmt heimildum Markaðarins.

LSR bætir við sig í HB Granda en Lífeyrissjóður verslunarmanna selur
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins hefur á undanförnum sex mánuðum bætt við sig í HB Granda með kaupum á samanlagt ríflega 0,9 prósenta hlut í útgerðinni, samkvæmt nýjum lista yfir stærstu hluthafa hennar.