Viðskipti innlent

Dótturfélag Pipar/TBWA tekur yfir sögufræga skandinavíska hönnunarstofu
TBWA\Norway, dótturfélag íslensku auglýsingastofunnar Pipar\TBWA, hefur keypt rekstur hönnunarstofunnar Scandinavian Design Group (SDG). SDG hefur verið starfrækt frá árinu 1987 og er að sögn Pipar/TBWA meðal þekktustu hönnunarstofa á Norðurlöndunum.

Ein hópuppsögn tilkynnt í júní
Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í júní þar sem nítján starfsmönnum var sagt upp störfum í fiskvinnslu. Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda á tímabilinu ágúst til nóvember 2023.

Persónuvernd sektar Creditinfo um 37 milljónir
Persónuvernd sektaði Creditinfo um tæpar 38 milljónir vegna skráninga lántakenda smálána á vanskilaskrá. Sektin nemur 2,5 prósentum af 1,5 milljarðs ársveltu Creditinfo. Neytendasamtökin segir sektina þá langhæstu sem Persónuvernd hefur gert fyrirtæki að greiða.

Heildartekjur einstaklinga 8,4 milljónir að meðaltali á síðasta ári
Heildartekjur einstaklinga á Íslandi voru tæpar 8,4 milljónir króna að meðaltali árið 2022, eða rétt tæpar 700 þúsund krónur á mánuði.

Bein útsending: Hljóta Íslendingar evrópsku nýsköpunarverðlaunin?
Evrópsku nýsköpunarverðlaunin verða veitt í dag og kemur það þá í ljós hvort íslenskir vísindamenn hljóti þau. Sýnt er frá verðlaunaafhendingunni í beinni útsendingu frá Valencia á Spáni.

Telma stýrir ÍMARK
Telma Eir Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri ÍMARK, samtaka markaðsfólks á Íslandi.

Sýn gerir víðtækan samstarfssamning við Viaplay Group
Sýn og Viaplay hafa gert tímamótasamstarfssamning sem felur í sér einkarétt á sölu Viaplay með vörum Vodafone og Stöðvar 2 og tekur samningurinn gildi strax í ágúst.

Dæmdur í fangelsi og 153 milljóna sektar vegna skattabrots
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjórtán mánaða fangelsi og greiðslu 153 milljóna króna sektar fyrir meiri háttar skattabrot.

Fær 47 milljónir vegna starfslokanna
Bankastjóri Íslandsbanka segir stemningu meðal starfsmanna bankans þunga og mikla sorg ríkja eftir erfiða viku. Hann fundar með formanni VR í vikunni og mun gera sitt besta til að endurvinna traust hans.

Ákveða framhald viðskipta eftir hluthafafund bankans
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að stjórn félagsins muni ákveða framhald viðskipta við Íslandsbanka að loknum hluthafafundi 28. júlí. Á fundinum verður ný stjórn kjörin.

Spá samdrætti í komu nýrra íbúða á markaðinn
Vænta má þess að að samdráttur verði í nýjum fullbúnum íbúðum hér á landi á næstu árum, samkvæmt nýrri spá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Framkvæmdir eru hafnar við byggingu á 8.971 íbúð á landsvísu sem er fjölgun milli mælinga.

Einstök og Thule fá ekki ný nöfn í bráð
Ekki er á döfinni hjá Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi að enska nöfn fleiri vörumerkja á vegum fyrirtækisins í bráð. Vörutegundir líkt og bjórtegundirnar Einstök og Thule munu áfram verða með sín nöfn.

Starfsmannabreytingum hjá Íslandsbanka vegna útboðsins lokið
Þrír yfirmenn hjá Íslandsbanka hafa látið af störfum undanfarna viku, síðast í gær. Bankastjóri segir starfsmannabreytingum með þessu lokið. Greint verði frá frekari úrbótum á starfsemi bankans á hluthafafundi í lok mánaðar.

Kaupa um tvöfalt meira af lyfjum, heilsu- og snyrtivörum erlendis
Íslendingar versluðu í erlendum netverslunum fyrir 2,6 milljarða króna í maímánuði sem nemur 31,4% aukningu milli ára. Tæplega helmingur af innkaupunum eða rúmlega 1,2 milljarðar króna voru verslaðar í erlendum fataverslunum á netinu.

Gunnar Hörður til Brussel frá ríkislögreglustjóra
Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, hyggst kveðja félaga sína hjá embættinu en hann hefur þess í stað störf í Brussel við samskiptadeild uppbyggingarsjóðs EES.

Stjórn Regins fellur ekki frá yfirtökutilboði í Eik
Stjórn fasteignafélagsins Regins hyggst standa við áform sín um að leggja fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar. Stjórnir fasteignafélaganna Reita og Eikar tilkynntu á föstudag að þær hafi samþykkt að ganga til samrunaviðræðna.

Launakröfur upp á allt að tíu milljónir og Helgi vill milljarð
Kröfur í þrotabú Torgs ehf., sem gaf út Fréttablaðið sáluga og fleiri miðla, nema tæplega einum og hálfum milljarði króna. Langsamlega stærsta krafan er krafa frá Helga Magnússyni, eiganda Torgs, upp á rétt tæpan milljarð. Samþykktar kröfur upp á 235 milljónir samanstanda nánast alfarið af forgangskröfum starfsmanna.

Ný stjórn kosin á hluthafafundi
Stjórn Íslandsbanka hefur boðað til hluthafafundar í lok mánaðar þar sem kosið verður í stjórn, varastjórn og embætti formanns stjórnar auk þess sem fjallað verður um sátt bankans við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands.

Ásmundur Tryggvason hættur hjá Íslandsbanka
Ásmundur Tryggvason, framkvæmdastjóri á sviði fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka, hefur ákveðið að stíga til hliðar. Kristín Hrönn Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í hans stað.

Bíður sjálf í röð ólíkt Kardashian-systrunum
Guðrún Kristmundsdóttir, eigandi Bæjarins beztu, segist sjálf bíða í röð eftir pylsu. Það hafi hins vegar Kardashian-systurnar ekki gert á sínum tíma. Hún segir vinsældir Bæjarins beztu vera miklar, það stafi af vinnu sem farið var í fyrir mörgum árum síðan.

Sven sem Jobs kom RÚV í klandur
Ríkisútvarpið var talið hafa gerst brotlegt við nýbreytt fjölmiðlalög með því að birta auglýsingar verslunarkeðjunnar Svens, sem selur einungis nikótínpúða svokallaða.

Borgin riftir samningi um uppbyggingu 176 íbúða
Reykjavíkurborg hefur rift samningi sínum við Vesturbugt ehf. um uppbyggingu í Vesturbugt við gömlu höfnina í Reykjavík. Reykjavíkurborg ber fyrir sig vanefndir vegna tafa en Vesturbugt ehf. telur riftunina ólögmæta, meðal annars vegna þess að deiliskipulag fyrir svæðið hefur ekki enn verið samþykkt.

Hefja gjaldtöku við Fjaðrárgljúfur
Nýjir eigendur jarðarinnar Heiðar í Skaftárhreppi, þar sem má finna náttúruperluna Fjaðrárgljúfur, hafa síðustu mánuði unnið að því að lagfæra bílastæði og göngustíga ásamt því að laga til salernisaðstöðu á svæðinu. Samhliða því hefur gjaldtaka verið tekin upp á bílastæðum á svæðinu.

Reitir og Eik kanna sameiningu
Stjórnir fasteignafélaganna Eikar og Reita hafa samþykkt að ganga til viðræðna um mögulega sameiningu félaganna. Fasteignafélagið Reginn gerði nýverið yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar en stærsti eigandi félagsins lagðist gegn tilboðinu. Vill stjórn Eikar kanna hvort grundvöllur sé fyrir samruna við Reiti sem væri hluthöfum hagfelldari en fyrirhugað yfirtökutilboð.

Stefán Þór til First Water
Stefán Þór Winkel Jessen hefur verið ráðinn sem tæknistjóri fiskeldisfyrirtækisins First Water, sem áður hét Landeldi. Stefán tekur meðfram því sæti í framkvæmdastjórn félagsins sem hann hefur starfað hjá síðan í lok síðasta árs.

Öll félög hækkað eftir Alvotech vendingar
Gengi allra skráðra félaga í Kauphöll Íslands hefur hækkað það sem af er degi eftir miklar lækkanir í gær. Líftæknifyrirtækið Alvotech er hástökkvari dagsins með 14,30 prósent hækkun en næst á eftir koma Sýn með 6,67 prósenta hækkun og Skel með 6,09 prósent. Þá hefur velta markaðarins verið umfram meðaltal mánaðarins bæði í dag og í gær.

Verslanir Iceland munu brátt heyra sögunni til á Íslandi
Verslanir sem reknar eru undir merkjum Iceland munu hverfa af markaðnum hér á landi á næstu mánuðum.

Mardís, Tracey og Elísabet ráðnar til atNorth
Mardís Heimisdóttir, Tracey Pewtner og Elísabet Árnadóttir hafa allar verið ráðnar til starfa hjá gagnavers- og ofurtölvufyrirtækinu atNorth.

Fastus innkallar spaða vegna arómatísks amíns
Fyrirtækið Fastus hefur innkallað „Paderno World Cuisine“ eldhússpaða úr plasti. Ástæðan er að flæði arómatísks amíns fer yfir leyfileg mörk samkvæmt reglugerðum. Viðskiptavinir eru beðnir um að hætta notkun vöru hennar og farga henni eða skila.

Viðræðum Kviku og Íslandsbanka slitið: „Það kom mér á óvart hvernig þessar niðurstöður voru“
Forstjóri Kviku banka segir Íslandsbanka eftir sem áður gott fyrirtæki og að hann sjái vel fyrir sér að hægt verði að taka upp þráðinn í viðræðum um sameiningu félaganna tveggja, að loknum hluthafafundi Íslandsbanka.