Kalla þarf saman Alþingi hið fyrsta 4. júní 2004 00:01 Hannes Smárason, eigandi Prímusar og stjórnarformaður Flugleiða
Þingflokkar Samfylkingar og Vinstri grænna telja nauðsynlegt að Alþingi verði kallað saman sem fyrst svo taka megi ákvörðun um fyrirkomulag og tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Flokkarnir telja jafnframt að nánar samvinnu allra þingflokka sé þörf. Þingflokkarnir sendu frá sér yfirlýsingar um ákvörðun forseta Íslands um synjun á staðfestingu fjölmiðlalaga í gær. Fram kom í yfirlýsingu Samfylkingarinnar að þingflokkurinn teldi að sú ákvörðun forseta Íslands að vísa fjölmiðlalögum ríkisstjórnarinnar í þjóðaratkvæði treysti lýðræðið og styrkti rétt hins almenna borgara gagnvart framkvæmdavaldinu. Vinstri grænir sögðu að virða virða beri ákvörðun forsetans, og um leið rétt þjóðarinnar, vafningalaust. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði að svo að þjóðaratkvæðagreiðsla geti farið fram þurfi Alþingi að samþykkja lög um framkvæmd kosninganna og síðast en ekki síst um hvenær kosningin á að vera, en mesta óvissan ríki um það. "Sömuleiðis höfum við óskað eftir náinni samvinnu og samráði við aðra þingflokka á Alþingi um þetta mál. Þjóðaratkvæðagreiðslan er í eðli sínu óflokkspólitísk, stjórnmálaflokkarnir eiga að stíga til hliðar og leyfa þjóðinni að ráða niðurstöðunni. Til þess að það sé hægt þarf þingið að setja leikreglur sem ekki eru fyrir hendi og málið er þess eðlis að það kallar á sem mesta samvinnu og slíkt samráð tryggir líka breiða samstöðu um niðurstöðuna, hver sem hún verður. Það kemur í veg fyrir ágreining um framhaldið," sagði Össur. "Mér finnst það hins vegar góðs viti að í yfirlýsingu frá forustumönnum Framsóknarflokksins kom skýrt fram að af þeirra hálfu ríkir enginn efi um þennan rétt forsetans. Formaður flokksins hefur talað um nauðsyn þess að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram eins fljótt og kostur væri til þess að stjórnarskránni yrði hlýtt. Því á ekki von á öðru en að það takist gott samráð," sagði Össur. Í ályktuninni segir einnig að Samfylkingin telji að nauðsynlegur þáttur í lýðræðisþróun Íslendinga sé að skapa farveg þar sem tiltekinn fjöldi landsmanna eða ákveðið hlutfall alþingismanna getur óskað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Fleiri fréttir Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Benedikt Sveinsson er látinn Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Sjá meira