Lýðræði og frelsi bannorð í Kína 14. júní 2005 00:01
Kínversk stjórnvöld gera sér ljóst mikilvægi Netsins í viðskiptum og hvetja til þess að það sé notað í þeim tilgangi. Þeim er hins vegar meinilla við að almenningur sé að vafra á Netinu og fylgjast vandlega með slíkum samskiptum. Ef menn skrifa orð eins og „lýðræði“, „frelsi“ eða „mannréttindi“ fá þeir samstundis skömm í hattinn: „Svona orðbragð er bannað, vinsamlegast eyðið.“ Vefsíður eiga það líka til að hverfa. Reynt var að fara inn á Google og skrifa þar leitarorð eins og „Taívan“, „Tíbet“ og „Falun Gong“. Og svarið var alltaf það sama: „Þessi síða finnst ekki.“ Kínverskir bloggarar eru lítt hrifnir af þessu framtaki en geta lítið að gert. Microsoft-fyrirtækið er í samvinnu við kínverskt fyrirtæki sem er ríkisrekið og á samvinnu við stjórnvöld um að útiloka bönnuð orð. Talsmaður Microsoft segir að ella fengi fyrirtækið ekki að starfa í Kína. Og það er eins gott að fara varlega á Netinu í Kína. Að minnsta kosti fimmtíu og fjórir hafa verið sendir í fangelsi fyrir að skrifa greinar eða hugleiðingar sem ekki féllu í kramið hjá stjórnvöldum.
Erlent Fréttir Tækni Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Sjá meira