Tottenham ætlar sér sigur í kvöld 26. september 2005 00:01
Chris Houghton, aðstoðarmaður Martin Jol hjá Tottenham, segir að liðið sé búið að gleyma óförunum gegn Grimsby í deildarbikarnum í síðustu viku og segir að nú sé kjörið tækifæri til að taka góðan sprett í deildinni. Þjálfarar og leikmenn liðsins voru á einu máli um að tapið fyrir Grimsby hefði verið góð lexía fyrir liðið og nú vilja menn á White Hart Lane fara að vinna aftur, eftir að liðið hefur aðeins hlotið tvö stig af níu mögulegum í síðustu þremur leikjum í deildinni. "Við erum ekki sáttir við árangurinn úr síðustu leikjum, þó spilamennskan hafi verið þokkaleg á köflum. Ef maður hinsvegar nær að vinna þrjá til fjóra leiki í röð í deildinni, er maður fljótur að komast í góð mál og það er það sem við erum að vonast eftir núna," sagði Houghton. Lið Fulham hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum í deildinni, en Houghton segir að það gefi ekki rétta mynd af styrk liðsins. "Þeir eru með hörkulið og þó þeir hafi átt brösulega byrjun, er ég viss um að annað verður uppi á teningnum hjá þeim eftir tvo mánuði," sagði Houghton. Heiðar Helguson verður að öllum líkindum á varamannabekknum hjá Fulham í kvöld, en vel má vera að hann fái að koma inná í kvöld, eftir að hafa náð að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið í bikarnum í síðustu viku.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira