Viðskipti innlent

Sjálfkjörið í stjórn Existu

Sjálfkjörið er í næstu stjórn Existu, sem tekur til starfa eftir aðalfund félagsins sem haldinn verður á morgun. Ágúst Guðmundsson, Bogi Óskar Pálsson, Guðmundur Hauksson, Lýður Guðmundsson, Robert Tchenguiz og Sigurjón Rúnar Rafnsson hafa gefið kost á sér til stjórnarsetu.

Samkvæmt samþykktum félagsins er heimilt að sjö manns skipi stjórnina. Fyrir fundinum liggur tillaga um að stjórnarformaður fái 550 þúsund krónur í laun á mánuði en aðrir stjórnarmenn helming af þeirri fjárhæð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×