Viðskipti innlent

Ekkert nema algjör yfirráð

Þeim hluthöfum sem hefðu áhuga á að eiga áfram hlut sinn í Actavis, þrátt fyrir afskráningu félagsins, stendur það ekki til boða. Að minnsta kosti ekki ef Novator fær sínu framgengt.



„Forsenda fjármögnunar og lána frá hendi lánveitenda er að um full yfirráð yfir félaginu verði að ræða. Áhættan af þessum lánum er slík að hún er ekki fyrir almenna hluthafa að eiga við," segir Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Novators. „Novator mun því beita þeim úrræðum sem eðlileg eru til að ná þessu marki. Eitt verður látið yfir alla ganga í þeim efnum."

Til þess að Novator geti afskráð Actavis þarf einfaldan meirihluta stjórnar. Stjórnin mælti með nýju yfirtökutilboði Novators í síðustu viku. Það skilyrði er því í höfn. Ef tveir þriðju hluthafa ganga að tilboði Novators er félagið komið í þá stöðu að geta tekið afdrifaríkar ákvarðanir fyrir hönd Actavis. Novator gæti þá gripið til þeirra ráða að samþykkja sameiningu við annað félag í eigu Novators. Þetta kæmi til greina ef ákveðið hlutfall hluthafa myndi sitja sem fastast á sínum hlutum. Með þessu móti yrðu hlutir þessa minnihluta þynntir út, þar til Novator næði níutíu prósenta markinu sem nauðsynlegt er til að geta þvingað þá til að selja.



Upp til hópa hafa stærstu hluthafar í Actavis ekki gert upp hug sinn um sölu bréfa sinna. Karl Wernersson, annar stærsti hluthafi félagsins, undrast að óvinveitt tilboð hafi borist innan úr herbúðum félagsins. Hann ætlar að skoða hug sinn fram á síðasta dag. Lífeyrissjóðirnir skoða nú málin. Afstaða þeirra gæti skipt sköpum um þróun atburðarásarinnar sem framundan er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×