Viðskipti innlent

Heimsótti Halifax um helgina

Um helgina sótti Geir H. Haarde heim borgina Halifax í Nova Scotia í Kanada.
Um helgina sótti Geir H. Haarde heim borgina Halifax í Nova Scotia í Kanada.

Viðskiptatækifæri bar á góma í heimsókn Geirs H. Haarde forsætisráðherra til Nova Scotia í Kanada um síðustu helgi, en um miðjan mánuðinn var gengið frá nýjum og víðtækum loftferðasamningi við Kanada.



Halifax í Nova Scotia byggist upp að stórum hluta í kringum sjávar­útveg og þar er sjávarfang í miklum metum. Borginni er oft líkt við San Francisco í Bandaríkjunum.Mynd/Getty Images

Loftferðasamningurinn er sá fyrsti sem gerður er milli ríkjanna og kemur í stað samkomulags frá árinu 2001 sem þá var gert vegna flugs Icelandair til Halifax.



HFX News, fréttarit í Halifax, greinir frá heimsókn Geirs og lýsir heimsókn hans á Íslendingaslóðir í Markland nærri gullnámum Moose River, en þangað komu um þrjátíu íslenskar fjölskyldur á árunum 1875 til 1882. „Ég verð að viðurkenna að vitneskja mín um þessa hluti var mjög takmörkuð fyrir komu mína hingað," hefur HFX News eftir forsætisráðherra eftir að hann hafði fundað á sunnudag með Len Goucher, ráðherra ferðamála. Flestir Íslendinganna fluttu á brott svo sem til Gimlis en einhverja afkomendur mun þó enn að finna í Nova Scotia. Í Markland var árið 2000 reist minnismerki um íslensku landnemana.



Í Halifax er loftferðasamningi ríkjanna fagnað en Icelandair hefur tekið upp að nýju flug þangað, árstíðabundið til að byrja með, en í maí á næsta ári á að taka upp heilsársflug þangað. Eins eru ráðagerðir um flug til Toronto. Á fundi ráðherranna hafði Goucher orð á sterkri stöðu krónunnar og sagði það gott því Nova Scotia yrði því ákjósanlegur áfangastaður fyrir Islendinga. Haft er eftir Geir Haarde að hann vildi gjarnan sjá viðskipti og fjárfestingu frá Kanada til Íslands líka og kvað ríkisstjórnir landanna mundu vinna að umhverfi þar sem aukin viðskipti fengju blómstrað á milli landanna og þar mundu liggja tækifæri fyrir frumkvöðla. „Við erum með stórt álver í eigu Alcan, en vildum gjarnan sjá annars konar fjárfestingu líka," hefur HFX News eftir Geir Haarde.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×