Listar yfir kynferðisbrotamenn í Bretlandi og Bandaríkjunum 22. janúar 2007 18:45
Yfirvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum halda úti ítarlegum og uppfærðum listum yfir dæmda kynferðisbrotamenn í löndunum tveimur. Listar frá hverju fylki fyrir sig í Bandaríkjunum eru aðgengilegir á netinu og geta þarlendir notað þá til að kanna hvort dæmdir kynferðisbrotamenn eru búsettir í næsta nágrenni við þá. Bresk yfirvöld hófu að halda skrá yfir kynferðisbrotamenn fyrir áratug. Allir dæmdir kynferðisbrotamenn í Bretlandi þurfa að skrá sig á listann, geri þeir það ekki eiga þeir yfir höfði sér fimm ára fangelsi og sekt. Tveggja og hálfs árs dómur eða þyngri þýðir að kynferðisbrotamaður fer á listann fyrir lífstíð. Vægari dómur þýðir skráningu í sjö til tíu ár. Lögregla getur bannað mönnum af listanum að flytja í barnmörg hverfi í að minnsta kosti fimm ár eftir að þeir ljúka afplánun. Listinn er ekki aðgengilegur almenningi þó að fjölmiðlar þar hafi reynt að fá því breytt og jafnvel birt nöfn manna af honum í þeim tilgangi. Í Bandaríkjunum var lögfest að almenningur hefði takmarkaðan aðgang að lista yfir þarlenda kynferðisbrotamenn og eru þeir aðgengilegir á netinu. Það voru foreldrar Megan Kanka sem fengu lögin í gegn í heimafylki sínu. Lögin heita eftir Megan sem var sjö ára þegar kynferðisbrotamaður myrti hana árið 1994. Bill Clinton, þáverandi forseti, staðfesti lögin tveimur árum síðar og gilda þau því í öllum fylkjum. Samkvæmt lögunum er lögreglu í hverju fylki gert að upplýsa íbúa þegar dæmdur kynferðisbrotamaður flytur í nágrenni við þá.
Erlent Fréttir Mest lesið Gummi Emil feginn að ekki fór verr eftir misheppnaðan sveppatúr Innlent Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Erlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fimmti hver myndi helst velja að flytja til Danmerkur Innlent Ómetanleg vinátta eftir lífsbjörg Innlent Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Erlent Tilkynnt um helst til ungan ökumann Innlent Verið að fara fram á rannsókn, ekki þöggun Innlent Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fleiri fréttir Selenskíj heimsótti lykilríki og þakkaði fyrir vopnin Flúði þegar sveitir Maduro ætluðu að grípa hann Fimmtán á sjúkrahús eftir lestarslys í Svíþjóð Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Fjórir myrtir og fjöldi særður eftir skotárás í Alabama Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Sjá meira