Alþjóðleg umhverfislögregla 3. febrúar 2007 18:45
Jacques Chirac, Frakklandsforseti, skorar á þjóðir heims að setja umhverfismál í forgang á alþjóðavettvangi. Fjörutíu og sex ríki styðja tillögu Chiracs um nýja umhverfisstofnun sem gæti jafnvel knúið ríki til að framfylgja alþjóðasáttmálum um loftslagsmál. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hélt áfram í París í dag og þar hvatti Jacques Chirac Frakklandsforseti þjóðir heims allar sem eina um að setja umhverfið í forgang. Evrópuþjóðirnar fögnuðu tillögu forsetans um stofnun sem gæti mótað reglur og jafnvel knúið ríki til að framfylgja þeim. Ekki fögnuðu þó allir. Þær þjóðir sem mest menga héldu sig til hlés, meðal annars Bandaríkin, Kína, Indland og Rússland. Alls samþykktu 46 þjóðir að taka þetta skref og fyrsti fundur um þessa stofnun verður haldinn í Marokkó nú í vor. Án þess að nefna Bandaríkin sérstaklega á nafn lýsti Chirac óánægju með að sannfæra þyrfti sumar stórar ríkar þjóðir um mikilvægi þessa. Mörgum spurningum um þessa umhverfislögreglu er ósvarað, til dæmis hvort hún muni hafa völd til að knýja þjóðir til að uppfylla skilyrði í alþjóðasáttmálum um loftslagsmál. Í tillögu Chiracs er eingöngu gert ráð fyrir að stofnunin meti skaða á umhverfinu og styðji þjóðir til að fylgja eftir ákvörðunum um loftslagsmál. Margar þjóðir hafa ekki uppfyllt markmið Kýótóbókunarinnar frá 1997 um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Bókun sem Bandaríkin skrifuðu aldrei undir. Chirac varaði Bandaríkjastjórn við í vikunni þegar hann sagði í viðtali að þau mættu eiga von á sérstökum kolefnistolli á útflutningsvörur ef þau skrifa ekki undir alþjóðlega samninga um loftslagsmál.
Erlent Fréttir Loftslagsmál Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira