Viðskipti innlent

Eimskip opnar nýja skrifstofu á Ítalíu

Eimskip opnar aðra skrifstofu sína í Genúa á Ítalíu í dag, 2. apríl. Opnun skrifstofunnar er liður í markvissri uppbyggingu Eimskips í Evrópu og miðast að því að styrkja enn frekar stöðu félagsins á ítalska markaðnum, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Þá segir ennfremur að Genúa sé ein mikilvægasta höfnin á Ítalíu og gegni lykilhutverki þegar kemur að flutningi á sjávar- og kjötafurðum, grænmeti og ávöxtum. Því er þetta kjörin staðsetning til að þróa viðskiptamöguleika á sviði hitastýrðra flutninga.

Skrifstofan mun leggja sérstaka áherslu á flutningsmiðlun og hitastýrða flutninga, að því er segir í tilkynningunni.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×