Viðskipti innlent

Þjóðarbúskapurinn aldrei næmari en nú

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands.

Íslenskur þjóðarbúskapur hefur aldrei jafn næmur fyrir breytingum á alþjóðlegum mörkuðum og nú um stundir. Þetta sést í nánum tengslum á milli gengis íslensku krónunnar og annarra hávaxtagjaldmiðla og erlendrar vaxtaþróunar. Tengsl má að nokkru leyti rekja til mikils viðskiptahalla,sem leiðir til þess að gengi krónunnar og framvinda þjóðarbúskaparins í heild eru háð hvata eða vilja erlendra fjárfesta og lánardrottna til að fjármagna hallann. Þetta kemur fram í riti Seðlabanka Íslands um ffjármálastöðugleikann á þessu ári, sem kom út fyrir stundu.

Í ritinu segir ennfremur að hvatinn sé sá mikli vaxtamunur sem sé á milli Íslands og helstu gjaldmiðlasvæða. Hann freistar áhættusækinna fjárfesta sem festi fé í hávaxtagjaldmiðlum víða um heim.

En á sama tíma hefur skuldsetning þjóðarbúsins og erlendar eignir þess vaxið hratt og önnur fjármálaleg tengsl við umheiminn stóraukist.

Þá segir að mikill sparnaður á heimsvísu hafi á undanförnum árum þrýst niður vöxtum og greitt fyrir fjármögnun mikils viðskiptahalla margra landa.

Þessar aðstæður geta breyst, þótt óvíst sé hvenær og hversu hratt það verði. Hversu mikil áhrif slíkt hafi á íslenskan þjóðarbúskap ræðst af miklu leyti af því hvort takist að draga úr ójafnvæginu sem nú er fyrir hendi áður en aðstæður á erlendum fjármálamörkuðum versna, að því er segir í ritinu.

Fjármálastöðugleiki 2007






Fleiri fréttir

Sjá meira


×