Viðskipti innlent

Tíðindalaust á hluthafafundi Glitnis

Tíðindalaust var á þéttsetnum hluthafafundi Glitnis sem lauk um klukkan hálf þrjú dag. Ný stjórn bankans tók við af fráfarandi stjórn og situr hún nú á sínum fyrsta fundi.

Einungis tveir af stjórnarmönnum fráfarandi stjórnar sitja í nýrri stjórn en stjórnarformaður hennar er Þorsteinn M. Jónsson, stjórnarformaður Vífilfells.

Gert er ráð fyrir að fundi nýrrar stjórnar Glitnis ljúki um klukkan 17:30 í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×