Viðskipti innlent

Vísitala neysluverð hækkaði um 5,3 prósent milli ára

Vísitala neysluverðs hækkaði um 5,3 prósent frá apríl í fyrra til síðasta mánaðar, samkvæmt Hagstofu Íslands. Dregið hefur úr verðbólgu síðustu tvo mánuði, aðallega vegna lækkunar virðisaukaskatts og afnáms vörugjalda í byrjun marsmánaðar. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,2 prósent, að sögn Hagstofunnar.

Þetta kemur fram í sérstöku riti Hagstofunnar um vísitölu neysluverðs frá apríl 2006 til apríl í ár. Í heftinu er fjallað um vísitölu neysluverðs og birtar töflur um þróun hennar síðustu tólf mánuði og vikið að árlegri endurnýjun á grunni vísitölunnar í mars á þessu ári.

Á vefsíðu Hagstofunnar segir að fjallað sé sérstaklega um fastskattavísitölu neysluverðs, sem reiknuð var í fyrsta sinn í mars á þessu ári og breytingar sem verða á tímasetningu verðsöfnunar vegna vísitölu neysluverðs í janúar á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×