Viðskipti innlent

Úrvalsvísitalan slær nýtt met

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands.

Úrvalsvísitalan í Kauphöll Íslands náði nýjum methæðum við lokun markaða í dag þegar hún endaði í 7.904 stigum. Næstahæsta gildi hennar var á föstudag þegar hún fór í 7.859 stig.

Greiningardeild Landsbankans bendir á það í Vegvísi sínum í dag að með þessu áframhaldi sé ekki langt í að hún fari í 8.000 stig.

Vísitalan hækkaði um 0,96 prósentustig í dag og hefur hún því hækkað um 21,5 prósent frá áramótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×