Viðskipti innlent

Úrvalsvísitalan setur nýtt met

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands.

Úrvalsvísitalan fór yfir 8.000 stiga múrinn stuttu eftir klukkan ellefu í dag og hefur aldrei verið hærri. Vísitalan hefur hækkað jafnt og þétt og hefur slegið hvert metið á fætur öðru síðastliðna tvö viðskiptadaga í Kauphöll Íslands.

Vísitalan stendur nú í 8.002 stigum og hefur hækkað um 0,88 prósent í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×