Viðskipti innlent

Century Aluminum skráð í Kauphöllina

Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra, Logan W. Kruger, forstjóri Century Aluminum, og Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, hringdu bjöllu Kauphallarinnar í sameiningu í morgun.
Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra, Logan W. Kruger, forstjóri Century Aluminum, og Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, hringdu bjöllu Kauphallarinnar í sameiningu í morgun. Mynd/Pjetur

Century Aluminum, móðurfélag Norðuráls, var skráð á First North Iceland-hlutabréfalistann í Kauphöll Íslands klukkan 10 í morgun. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, og Logan W. Kruger, forstjóri Century Aluminum, héldu stutta tölu og lýstu yfir ánægju með samstarfið. Að því loknu hringdu þeir bjöllu Kauphallarinnar ásamt Björgvini Sigurðssyni, viðskiptaráðherra, og opnuðu fyrir viðskipti dagsins.

Century Aluminum er skráð á bandaríska Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn og er fyrsta skráða fyrir­tækið í Bandaríkjunum til að fá skráningu hér á landi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×