Viðskipti innlent

Úrvalsvísitalan slær enn eitt metið

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands.

Úrvalsvísitalan fór í methæðir við lokun markaða í dag þegar lokagildi hennar stóð í 8.179 stigum, sem er einu stigi hærra en hæsta lokagildi hennar 29. maí síðastliðinn. Vísitalan hækkaði lítillega í dag, eða um 0,14 prósentustig.

Greiningardeild Landsbankans bendir á í Vegvísi sínum í dag að á sama tíma í fyrra stóð vísitalan í 5.413 stigum og hefur hækkað um 51 prósent síðan þá.

Mest var hækkun á gengi bréfa í Mosaic Fashions en bréf fyrirtækisins hækkaði um 4,3 prósent. Bréf í Straumi-Burðarási lækkuðu mest, eða um 0,48 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×