Viðskipti innlent

Gunnar nýr framkvæmdastjóri HugurAx

Gunnar Ingimundarson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri HugurAx. Gunnar var einn stofnenda Hugar hf. sem sameinaðist Ax hugbúnaðarhúsi á síðasta ári undir nafninu HugurAx. Gunnar hefur gegnt starfi forstöðumanns sviðs Eigin Lausna hjá HugAx síðastliðið ár.

Gunnur tekur við af Páli Freysteinssyni, sem hefur verið framkvæmdarstjóri HugarAx frá sameiningu Hugar hf. og Ax hugbúnaðarhús í júní 2006.

Gunnar segir mjög ánægjulegt að taka við starfi framkvæmdastjóra HugarAx. ,,Fyrirtækið er í mjög góðum rekstri, er með öflugan hóp starfsmanna og stóran viðskiptavinahóp. Sameiningin á síðasta ári við Ax hugbúnaðarhús tókst mjög vel. Það eru mörg áhugaverð verkefni framundan.'"






Fleiri fréttir

Sjá meira


×