Þrír björgunarmenn létust við námu í Utah Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 17. ágúst 2007 19:20
Þrír björgunarmenn létust og í það minnst sex slösuðust þegar þeir reyndu að komast að sex námuverkamönnum sem lokuðust inni í námu fyrir ellefu dögum. Björgunarlið var að vinna í gegnum brak og grjótmulning til að komast að mönnunum í göngunum í Huntington í Utah í Bandaríkjunum. Verið var að taka ákvörðun um hvort snúa ætti björgunarliðinu til baka þegar skjálfti upp á 1,6 á Richter reið yfir og brak hrundi yfir mennina. Tveir létust samstundis, en sex slösuðust og voru fluttir á sjúkrahús, þar lést einn þeirra. Ekki er vitað hvort sexmenningarnir sem lokuðust þar inni fyrir ellefu dögum eru á lífi, en þeir eru fastir rúmlega 450 metra niðri í göngunum. Ríkisstjóri Utah sagðist vonast til að yfirvöld nýttu sér lærdóm sem draga mætti af slysinu og björgunaraðgerðum. Fjölskyldumeðlimir námuverkamannanna voru slegnir eftir atburðinn og söfnuðust saman við innganginn í göngin þar sem þeir biðu frétta. Reynt hefur verið að bora niður til mannanna og ná braki úr göngum sem féllu saman. Embættismenn segja aðstæður í námunni afar ótraustar. Fjöldi minni skjálfta hefur tafið störf björgunarmanna og grafið björgunartæki í grjót og mulning. Ekki hefur verið ákveðið hvenær björgunarstörf halda áfram, en beðið er eftir staðfestingu um öryggi áður en fleiri lífum verður stofnað í hættu.
Innlent Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Sjá meira