Fótbolti

Zlatan tekur á sig launalækkun upp á 533 milljónir á ári

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic vill spila með Barcelona þótt að lækki mikið í launum.
Zlatan Ibrahimovic vill spila með Barcelona þótt að lækki mikið í launum. Mynd/AFP

Zlatan Ibrahimovic er tilbúinn að leggja á sig ýmislegt til þess að fá að spila með Evrópumeisturum Barcelona og þar á meðal að taka á sig mikla launalækkun. Ibrahimovic kemur til Barcelona á morgun til að ganga frá nýjum samningi en sænska blaðið Expressen hefur heimildir fyrir því að sænska stórstjarnan muni lækka þar mikið í launum.

Expressen segir að Zlatan hafi tólf milljónir evra í árslaun hjá Inter sem er um 2,1 milljarður íslenskra króna. Zlatan myndi hinsvegar "aðeins" fá níu milljónir evra í laun hjá Barcelona eða um 1,6 milljarða íslenskra króna.

Zlatan verður samkvæmt þessu með 1625 milljónir íslenskra króna í árslaun hjá Barcelona eða um 4 og hálfa mílljón íslenskar á dag. Hann verður því ekki með neina sultarlaun þó að hann lækki 1,4 milljón á dag við að fara til Evrópumeistarana.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×