Handbolti

Atli hættur með Stjörnuna

Hans Steinar Bjarnason skrifar
Atli Hilmarsson. Mynd/Stefán
Atli Hilmarsson. Mynd/Stefán

Atli Hilmarsson er hættur að þjálfa kvennalið Stjörnunnar í handbolta. Atli staðfesti þetta í samtali við íþróttadeild nú fyrir hádegið.

Samningur Atla var útrunninn og honum boðin framlenging sem hann afþakkaði. Atli tilkynnti leikmönnum þetta í gær en hann hefur stýrt liðinu síðan í október 2008.

Samkvæmt heimildum íþróttadeildar á Stjarnan í viðræðum við Ragnar Hermannsson um þjálfarastarfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×