Handbolti

Rúnar: Kláruðum þetta þó ýmislegt hafi verið á móti okkur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Rúnar Sigtryggsson á hliðarlínunni í dag. Mynd/Daníel
Rúnar Sigtryggsson á hliðarlínunni í dag. Mynd/Daníel

„Þetta var mjög ánægjulegur sigur," sagði Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, sem vann frábæran sigur á Hlíðarenda í dag. Akureyri getur nú tryggt sér í úrslit með því að leggja Valsmenn norðan heiða á laugardag.

„Það er ekkert nýtt hjá okkur að við erum lengi að finna taktinn. Menn halda þó haus þrátt fyrir að þetta hafi verið lengi að koma. Við misstum Val ekki mjög langt frá okkur og komumst til baka í leikinn."

„Þrátt fyrir að ýmislegt hafi verið á móti okkur kláruðum við þetta samt. Við spiluðum meiri vörn en þeir, slepptum einhverjum fólskubrotum," sagði Rúnar.

„Það er bara hálfleikur eftir þennan leik. Við þurfum á öllu okkar að halda til að vinna Val, hvort sem það er heima eða úti. Við biðlum til okkar bæjarbúa að koma því þetta verður mjög erfitt á laugardaginn. Við þurfum allan þann stuðning sem til er í bænum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×