Handbolti

Hlynur: Sárt því ég hef aldrei unnið titil á 18 ára ferli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Hlynur Morthens, markvörður Vals, hefur átt ótrúlegt tímabil með Hlíðarendaliðinu en ágæt markvarsla hans í dag dugði ekki til sigurs gegn Haukunum í oddaleik. Hlynur var í áfalli er blaðamaður Vísis hitti hann eftir leik.

„Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja. Þetta var hræðilegt. Sóknarleikurinn var lélegur allan leikinn og menn gerðu ekki eins og var lagt upp með. Haukarnir voru grimmari og unnu sína heimavinnu betur," sagði Hlynur en honum fannst sárt að hafa ekki fengið gull.

„Ég get ekki lýst því hversu svekktur ég er. Ég hef aldrei unnið titil og búinn að vera í þessu í 18 ár. Aldrei verið eins nálægt því og núna og þetta er sárt."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×