Handbolti

Valsmenn í úrslit annað árið í röð eftir framlengingu - myndasyrpa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valsmennir Elvar Friðriksson og Sigfús Páll Sigurðsson fagna hér marki í gær.
Valsmennir Elvar Friðriksson og Sigfús Páll Sigurðsson fagna hér marki í gær. Mynd/Vilhelm
Valsmenn tryggðu sér sæti í úrslitaeinvígi N1 deildar karla í handbolta eftir 30-26 sigur á Akureyri í framlengdum leik í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda í gær.

Valsmenn héldu hreinu í framlengingunni og mæta því Haukum annað árið í röð í úrslitaeinvíginu. Akureyri vann fyrsta leikinn en Valsmenn unnu tvo þá næstu og slógu norðanmenn út.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í Vodafone-höllinni í gær og myndaði baráttuna þar sem menn gerðu allt til þess að tryggja sínu liði sæti í lokaúrslitunum.

Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.





Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×