Handbolti

Reynir tekur við karlaliði Fram

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Reynir í leik með landsliðinu.
Reynir í leik með landsliðinu.

Handknattleiksdeild Fram gekk í gær frá ráðningu á Reyni Þór Reynissyni sem þjálfara karlaliðs félagsins. Hann tekur við liðinu af Einari Jónssyni sem tók við keflinu af Viggó Sigurðssyni í vetur er hann var rekinn.

Þjálfarinn gerði tveggja ára samning við Safamýrarliðið.

Reynir Þór hefur þjálfað í kvennaboltanum síðustu ár. Fyrst hjá Víkingi og síðan hjá Fylki í fyrra

Reynir er fyrrum landsliðsmarkvörður Íslands í handknattleik og lék á sínum tíma 48 A-landsleiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×