Handbolti

Óskar Bjarni: Mér fannst við bara tapa stigi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals. Mynd/Stefán
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals var ekki sáttur eftir 25-25 jafntefli við HK í kvöld. Valsmenn voru með 25-23 forustu þegar fjórar mínútur voru eftir en misstu leikinn niður í jafntefli.

„Mér fannst við bara tapa stigi hérna. Dómararnir gera alltof stór dýr mistök þegar þeir reka Orra útaf fyrir eitthvað sem ég gat ekki séð að væri eitthvað. Við erum að fá á okkur víti og tvær mínútur og fáum síðan sóknarbrot á línumanninn okkar þegar við erum búnir að vera kvarta yfir línumanninum þeirra allan leikinn," sagði Óskar Bjarni.

„Ég er ekki vanur að setja út á dómara og þeir dæma þetta yfir höfuð vel en þeir eru bara að gera of dýr mistök," sagði Óskar Bjarni. Valsliðið er búið að endurheimta marga leikmenn úr meiðslum og Óskar Bjarni fagnar því.

„Við erum að koma með menn aftur inn á bekkinn en þá vantar bara spilform og spilareynslu. Við eigum eftir að koma Siffa (Sigfús Páll Sigfússon) meira inni í þetta og Fúsi (Sigfús Sigurðsson) er að fá að spila hérna í þessum leik. Við eigum eftir að rúlla betur á mannskapnum og þegar við förum að rúlla honum meira þá erum við ógnvænlegir," sagði Óskar Bjarni.

„Mér sýnist vera að fá alla inn á réttum tíma en í fyrra misstum við alla í lokin. Ég vona að þetta snúist við. Baldvin og Sigurður eru að verða flottir og Fúsi er að koma og er að standa sig vel. Nú er bara að hirða tvo punkta á móti Haukum," sagði Óskar Bjarni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×