Handbolti

Óskar Bjarni hættir með Val

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Fréttablaðið/Daníel
Óskar Bjarni Óskarsson mun hætta þjálfun Vals eftir tímabilið. Óskar stýrir liðinu gegn Akureyri í kvöld í undanúrslitum Íslandsmótsins í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitarimmunni.

Þetta kom fram í Morgunblaðinu en þar segir jafnframt að Óskar vilji vinna áfram hjá Val.

Óskar hefur stýrt Valsskútunni í sjö ár en hann er einnig aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×