Sport

MIkilvægur sigur í botnbaráttunni hjá Jóni Arnóri og félögum

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson skoraði aðeins 3 stig í stórsigri Granada gegn Joventut í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær.
Jón Arnór Stefánsson skoraði aðeins 3 stig í stórsigri Granada gegn Joventut í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær.
Jón Arnór Stefánsson skoraði aðeins 3 stig í stórsigri Granada gegn Joventut í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær. Granada sigraði 94-65 og lék Jón Arnór í 20 mínútur og hann hitti aðeins úr 1 af alls 7 skotum sínum utan af velli.

Íslenski landsliðsmaðurinn tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Granada er samt sem áður í fallbaráttu en liðið er í næst neðsta sæti með 7 sigurleiki og 23 tapleiki. Joventut er með 14 sigurleiki og kom því Granada verulega á óvart með stórsigrinum í gær.

Aðeins fjórar umferðir eru eftir af keppnistímabilinu og Granada á enn möguleika á að bjarga sér frá falli þar sem að næstu lið fyrir ofan eru með 8 og 9 sigurleiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×