Lögreglan staðfestir að minnst 10 hafi fallið í skotárásinni Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. júlí 2011 22:07 Allt lék á reiðiskjálfi í Osló þegar sprengjan sprakk. Mynd/ afp.
Við höfum fengið upplýsingar um það að tíu hafi fallið, en við búumst við því að tala fallinna munu hækka, segir norska lögreglan í fréttatilkynningu um skotárásina í Útey í dag. Norska ríkissjónvarpið og Verdens Gang höfðu eftir vitnum í dag að á þriðja tug manna væru látnir. Norska Aftenposten segir að 17 manns hafi verið fluttir á sjúkrahús. Þessu til viðbótar er svo staðfest að sjö fórust í sprengjuárás í miðhluta Oslóar. „Miðað við það sem ég hef séð hafa minnst fjórir verið skotnir og drepnir," segir umdæmisstjóri ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins í Þelamörk. Maðurinn sem skaut að fólkinu var klæddur eins og lögreglumaður og sagðist vera að fara út í eyna vegna sprengjunnar sem sprakk í stjórnarráðshverfinu. Hann er Norðurlandabúi. Hann hefur verið handsamaður. Enn er grunur um að sprengja geti leynst í Útey og mun sprengjusveit rannsaka svæðið. Vitni, sem lögreglan telur ástæðu til að treysta, gáfu ábendingar um sprengjuna að sögn Aftenposten. Norska ríkissjónvarpið fullyrðir raunar að sprengiefni hafi þegar fundist í bíl í eynni.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira