Körfubolti

Helena með fimm stig í sigurleik í Meistaradeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir og félagar í Good Angels Kosice unnu góðan 15 stiga útisigur á króatíska liðinu Gospic, 91-76, í Meistaradeild Evrópu í dag. Helena bætti stigaskor sitt frá því í fyrstu tveimur Euroleague-leikjum sínum.

Helena skoraði sína fyrstu körfu í Meistaradeildinni í dag og endaði leikinn með fimm stig og tvo stolna bolta á þrettán mínútum. Helena hitti úr 2 af 3 skotum sínum í leiknum en hún hafði aðeins skorað samtals 1 stig í fyrstu tveimur leikjunum.

Serbneska stelpan Miljana Bojovic var stigahæst hjá Kosice-liðinu með 22 stig en Lucia Kupcikova skoraði 19 stig og bandaríski framherjinn Danielle McCray var með 16 stig.  

Good Angels Kosice hefur þar með unnið 2 af fyrstu 3 leikjum sínum í Meistaradeildinni og er í 3. sætinu í sínum riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×