Körfubolti

Brynjar Þór og félagar unnu botnliðið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brynjar Þór Björnsson.
Brynjar Þór Björnsson.
Brynjar Þór Björnsson skoraði sjö stig þegar að lið hans, Jämtland, vann þægilegan sigur á botnliði Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta, 97-79.

Örebro er enn stigalaust á botni deildarinnar og eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik tóku leikmenn Jämtland völdin í þeim síðari.

Brynjar Þór spilaði í alls 22 mínútur í leiknum, skoraði sjö stig, gaf fimm stoðsendingar og stal boltanum tvívegis.

Jämtland komst með sigrinum úr fallsæti. Liðið situr nú í áttunda sæti með tólf stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×